Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 20 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Eldur í rafhlaupahjóli í Fellahverfi Brynja Dögg Friðriksdóttir Dælubíll. RÚV / Ragnar Visage Allar stöðvar slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins voru boðaðar þegar útkall barst rétt fyrir klukkan þrjú í nótt vegna elds í rafhlaupahjóli í Fellahverfi. Íbúar hússins náðu þó að koma hlaupahjólinu út úr húsinu og slökkva eldinn sjálfir, samkvæmt varðstjóra hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Það reyndist því einungis þörf fyrir einn dælubíl á vettvang til að reykræsta eftir eldinn. Fyrir 40 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Sprunga fundin og hluti íbúanna fær að snúa aftur heim til sín Brynja Dögg Friðriksdóttir Íbúi sem þurfti að yfirgefa heimili sitt vegna yfirvofandi sprengjuhættu þiggur veitingar hjá sjálfboðaliðum Rauða krossins í Fountain Valley. AP / Jill Connelly Sprunga fannst á birgðatanki í Garden Grove í Kaliforníu og yfirvöld telja ekki lengur hættu á að tankurinn springi í loft upp þar sem dregið hefur úr þrýstingi og lekinn hefur stöðvast. Um 26. 000 lítrar af metýl-metakrýlati eru geymdir í tankinum, sem er mjög rokgjarnt og eldfimt efni. Lekans varð fyrst vart á fimmtudaginn og um 50.000 íbúar í næsta nágrenni þurftu að yfirgefa heimili sín af öryggisástæðum. Nú hafa 16.000 þeirra fengið að snúa aftur heim til sín. Hættan er þó ekki alveg liðin hjá og líklega þarf að tæma tankinn af varkárni áður en restin af íbúunum fær að snúa aftur heim til sín. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Bandaríski herinn gerði árásir á hafnarborg og skip Árásirnar voru á skotmörk í hafnarborginni Bandar Abbas og á tvö skip sem voru að koma fyrir tundurduflum. Írönsk stjórnvöld hafa ekki brugðist við árásunum og það er óljóst hvort þær hafi áhrif á viðkvæmt vopnahlé sem hófst 8. apríl. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Íran Opnað fyrir internetið að nýju Forseti Írans tilkynnti í gær að opnað verði fyrir internet-samband að nýju. Almenningur hefur ekki haft aðgang að netinu í 87 daga. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Undirskriftarlisti stofnaður gegn nýjum meirihluta í Hafnarfirði Kjósendur í Hafnarfirði safna nú undirskriftum gegn nýjum meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar í bænum. Um 850 undirskriftir voru komnar á listann um miðnætti. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Síle Jarðskjálfti að stærðinni 6,9 Brynja Dögg Friðriksdóttir Jarðskjálftar eru algengir í Chile. Vegir á Chiloe-eyju suður af Santiago í Chile eyðilögðust í jarðskjálfta þar 25. desember 2016. Myndin tengist fréttinni óbeint. EPA / ALVARO VIDAL Jarðskjálfti að stærðinni 6,9 varð í norður Chile í gær. Skjálftinn átti upptök sín á um 100 km dýpi í Atacama-eyðimörkinni um 31 km frá borginni Calama. Ekki hefur verið tilkynnt um manntjón eða eyðileggingu á innviðum. Chile liggur á mörkum þriggja flekaskila svo jarðskjálftar eru algengir í Chile. Stærsti skjálfti sem sögur fara af varð í Validiva 1960 en sá var 9,5 að stærð. Árið 2010 varð skjálfti að stærðinni 8,8 út fyrir strönd Chile. Skjálftinn olli mikilli flóðbylgju og yfir 520 fórust. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Frakkland Tveir unglingar í varðhaldi grunuð um morð á 11 ára dreng Brynja Dögg Friðriksdóttir Franskir lögreglumenn. Myndin tengist fréttinni óbeint. EPA / MARTIN LELIEVRE / POOL Tveir unglingar eru í varðhaldi eftir að 11 ára drengur fannst látinn í Rennes í Frakklandi í gær. Drengurinn fannst með blautt handklæði bundið um hálsinn á bökkum Vilaine-árinnar. Áður hafði verið greint frá því að drengurinn væri 12 ára. 16 ára drengur var handtekinn heima hjá sér í gær og 15 ára stúlka var handtekin eftir að hún gaf sig sjálf fram við lögreglu, samkvæmt upplýsingum frá saksóknara í Rennes. Þau eru grunuð um að hafa myrt drenginn en sést hafði til þeirra með drengnum á svæðinu fyrr um daginn. Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Áhorfendamet þegar FH-ingar urðu fyrstir til að vinna Blika FH hleypti spennu í toppbaráttu Bestu deildar kvenna í fótbolta í kvöld þegar Hafnarfjarðarliðið varð það fyrsta í ár til að vinna Íslandsmeistara Breiðabliks í deildinni. Áhorfendmet féll á leik í efstu deild kvenna. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Þriðjungur telur ebólu ekki raunverulega Samkvæmt könnun alþjóðlegra hjálparsamtaka telur þriðjungur íbúa Ituri-héraðsins í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó ebólu ekki vera raunverulega. Lögregla þar hefur skorist í leikinn þegar fólk reynir að endurheimta lík ástvina sem hafa dáið úr ebólu. 25. maí 2026 kl. 20:25INNLENDAR FRÉTTIR Suðurland Kýrin Ástrós og Bubbi Morthens Kýrin Ástrós á bænum Brúnastöðum í Flóahreppi er mikill kostagripur en hún mjólkaði um 13 þúsund lítra af mjólk á síðasta ári og stundum er hún að mjólka um 54 lítra á dag. Það sem meira er, Bubbi Morthens tengist fjósinu á Brúnastöðum. 25. maí 2026 kl. 20:08INNLENDAR FRÉTTIR Tónlist „Já bíddu gefum þessu séns, sjáum hvert það fer og hvar það lendir“ Fagtónlistarfólk, nemendur í Listaháskóla Íslands og fólk í starfsendurhæfingu hafa unnið saman að stóru tónlistarverkefni í vetur undir nafninu Korda samfónía. Hljómsveitin ætlar að flytja afraksturinn á tónleikum í Hörpu. 25. maí 2026 kl. 19:59ERLENDAR FRÉTTIR Svíþjóð „Þetta var mjög erfitt, mann verkjar í hjartað“ Tveggja ára drengur var týndur í 15 klukkustundir í gær. Afi drengsins segir það hafa verið erfitt þegar lögreglan kom og ekki vitað hvaða fréttir hún myndi færa. Hermaður fann hann í mýrlendi í um 20 mínútna göngufjarlægð frá húsi hans. 25. maí 2026 kl. 19:41INNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Hefur áhyggjur af háu hlutfalli sérfræðilækna í hlutastarfi samhliða rekstri á eigin stofu Meira en helmingur sérfræðilækna sem starfa á Landspítala er aðeins í hlutastarfi á spítalanum og flestir þeirra reka eigin læknastofu samhliða. Forstjóri Landspítala lýsti áhyggjum af þróuninni á ársfundi spítalans. 25. maí 2026 kl. 19:30INNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Staðan á Herjólfi skýrist á allra næstu dögum Enn sér ekki fyrir endann á vandræðum í tengslum við siglingar Herjólfs til og frá Vestmannaeyjum. Framkvæmdastjóri segir mikilvægt að tryggja öruggar siglingar til frambúðar. 25. maí 2026 kl. 19:01ÍÞRÓTTIR Fótbolti Fyrsti deildarsigur Fram í ár Fram vann í dag sinn fyrsta leik í Bestu deild kvenna í fótbolta á yfirstandandi Íslandsmóti þegar liðið vann Þór/KA, 3-2 í botnslag. Sjötta umferð deildarinnar hófst með tveimur leikjum í dag. 25. maí 2026 kl. 18:21INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking hafa náð samkomulagi um meirihlutasamstarf í Hafnarfirði. 25. maí 2026 kl. 17:37ERLENDAR FRÉTTIR Bretland Vann ostahlaupið í þriðja sinn: „Ef þessi brekka er helvíti, er ég djöfullinn sjálfur!“ Ostakapphlaupið í Gloucestershire fór fram í steikjandi hita í dag. Þýski Youtube-arinn Tom Kopke vann þriðja árið í röð. 25. maí 2026 kl. 16:26ERLENDAR FRÉTTIR Bretland Methiti í Bretlandi – fór upp í tæp 35 stig Þorgils Jónsson Hitamet var slegið í Bretlandi í dag þar sem mælar Kew Gardens í Lundúnum fóru allt upp í 34,8 stig síðdegis, það mesta sem mælst hefur í maí þar í landi. Met var frá árinu 1944 féll í hádeginu, en svo bætti enn í. EPA / ANDY RAIN Hitabylgja gengur sömuleiðis yfir meginland Evrópu þar sem búast má við að hitamet falli í Frakklandi, Portúgal og á Spáni. EPA / ANDY RAIN Fréttin var uppfærð með nýju hitameti síðdegis. 25. maí 2026 kl. 16:15ERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Danadrottning lögð inn á sjúkrahús í annað sinn á tveimur vikum Margrét Þórhildur fyrrverandi Danadrottning hefur verið lögð inn á sjúkrahús í annað sinn á tveimur vikum, í þetta sinn vegna blóðsöfnunar í mjöðm í kjölfar falls. Mary Danadrottning segir hana þegar hafa gengist undir aðgerð. 25. maí 2026 kl. 15:25INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Kona flutt á sjúkrahús eftir að fíkniefnapakkning sem hún hafði innvortis rofnaði Kona á fimmtugsaldri var flutt á sjúkrahús í gær eftir að fíkniefnapakkning sem hún hafði reynt að smygla innvortis rofnaði. Líklega var kókaín í pakkningunum. Kona á sjötugsaldri var flutt á sjúkrahús fyrr í mánuðinum við svipaðar kringumstæður. 25. maí 2026 kl. 15:22ERLENDAR FRÉTTIR Afríka WHO varar nágrannaríki Kongó við frekari útbreiðslu ebólu Mist Þormóðsdóttir Grönvold Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hvetur lönd sem liggja að Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó til að ráðast í tafarlausar aðgerðir til að sporna gegn frekari útbreiðslu ebóluveirunnar. Í yfirlýsingu sem stofnunin sendi frá sér í dag segir að nágrannaríki Kongó séu í mikilli hættu vegna ebólufaraldursins sem þar geisar. Hann breiðist sérstaklega hratt út og geti valdið alvarlegum blæðingum og líffærabilun sem leitt geta til dauða. WHO hefur skráð tíu staðfest dauðsföll af völdum veirunnar frá 15. maí en grunur er um 220 dauðsföll til viðbótar sem ekki hafa verið staðfest. Einn hefur látist í Úganda, nágrannaríki Kongó, vegna veirunnar. AP / Moses Sawasawa 25. maí 2026 kl. 15:08ÍÞRÓTTIR Körfubolti Besta frammistaðan í körfubolta á Íslandi Doddi fékk körfuboltaspekinginn Svala Björgvinsson til að fara yfir bestu frammistöðu körfuboltafólks á Íslandi eftir ótrúlegan leik Jeremy Pargo, 40 ára gamals leikmanns Grindavíkur gegn Tindastól í Síkinu á dögunum. Sportrásin á Rás 2. 25. maí 2026 kl. 14:22ERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Rússar hyggja á áframhaldandi árásir á Kyiv Mist Þormóðsdóttir Grönvold Rússnesk stjórnvöld hafa sagt erlendum ríkisborgurum og starfsmönnum sendiráða í Kyiv, höfuðborg Úkraínu, að yfirgefa borgina sem allra fyrst vegna áframhaldandi loftárása rússneska hersins. „Árásirnar beinast bæði að ákvarðanatökumiðstöðvum og stjórnstöðvum“ segir í yfirlýsingu rússneska utanríkisráðuneytisins. Að minnsta kosti einn var drepinn og 20 særðust í árásum Rússa á Kyiv í nótt. Úkraínsk stjórnvöld og bandaríska sendiráðið hafa varað íbúa borgarinnar við hugsanlegum loftárásum og