Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Þórarna Gró verður forstjóri HSA fram á haust

Read Full Article →

Alma Möller heilbrigðisráðherra hefur sett Þórörnu Gró Friðjónsdóttur sem forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands frá 1. júní til 1. september. Þórarna Gró Friðjónsdóttir.Ljósmynd / Stjórnarráðið Guðjón Hauksson lætur af embættinu um mánaðamótin og tekur við starfi forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri. Þórarna hefur starfað hjá HSA síðustu átta ár, fyrst sem rekstrarstjóri á Egilsstöðum og Vopnafirði en síðustu fjögur ár sem framkvæmdastjóri mannauðs hjá HSA. Embætti forstjóra HSA verður auglýst laust til umsóknar á næstu dögum. Gert er ráð fyrir að nýr forstjóri stofnunarinnar verði skipaður 1. september.

Share this article