Samninganefndir Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna, FÍA, komu saman á fundi hjá Ríkissáttasemjara í dag og koma aftur saman klukkan tíu í fyrramálið. Ríkissáttasemjari hefur sett samningsaðila í fjölmiðlabann og vildu Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, og Jón Þór Þorvaldsson, formaður FÍA, því lítið tjá sig þegar Viðskiptablaðið leitaði til þeirra í dag. Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari segir í samtali við Viðskiptablaðið að viðræðurnar þokist áfram. Aftur á móti sé langt á milli manna og undirritun kjarasamninga langt frá því að vera í sjónmáli. Samtalið sé þó lifandi, sem sé aðalatriðið. Kjaradeilunni var vísað til Ríkissáttasemjara í apríl síðastliðnum. Kjarasamningar hafa verið lausir frá því í lok september 2025, en viðræðurnar hafa verið snúnar frá þeim tíma. Til marks um það var fyrsti formlegi fundur milli Icelandair og FÍA frá því í lok desember í lok mars síðastliðins, en nokkrir óformlegir fundir fóru fram í millitíðinni. Til að byrja með strönduðu viðræðurnar á réttinum til starfsloka. FÍA höfðaði dómsmál gegn Icelandair í tengslum við málið. Um miðjan mars náðu FÍA og Icelandair samkomulagi. Formaður FÍA hafði áður sagt að ef aðilar næðu saman um þann þátt gætu kjaraviðræðurnar gengið hratt fyrir sig. Það virðist ekki hafa gengið eftir. Átta ferðum aflýst Deilt hefur verið um mögulegar óformlegar verkfallsaðgerðir flugmanna í mánuðinum, en Icelandair hefur ítrekað þurft að aflýsa eða fresta flugferðum þar sem erfitt hefur reynst að manna áhafnir. Þann 5. maí var farþegaflugi til Kaupmannahafnar aflýst vegna mönnunarvanda og þremur dögum síðar var flugi til Seattle aflýst af sömu ástæðu. Þann 14. maí var fraktflugi til Berlínar sömuleiðis aflýst. Það var síðan um helgina sem alls átta flugferðum var aflýst, þar af fjórum vegna mönnunarvanda á laugardag. Icelandair sendi fyrr í mánuðinum frá sér yfirlýsingu þar sem fram kom að margt benti til að um óformlegar verkfallsaðgerðir væri að ræða. Formaður FÍA neitaði því alfarið og sagði um helgina að staðan sýndi að flugáætlun Icelandair hefði ekki staðist álagspróf. Icelandair sagði aftur á móti í svari við fyrirspurn Vísis að rekja mætti mönnunarvandann til breyttrar hegðunar flugmanna sem félagið hefði ekki forsendur til að gera ráð fyrir. Flugmenn hefðu þannig skyndilega hætt að selja frídaga, sem síðast hefði sést í kringum verkfall flugmanna fyrir rúmum áratug. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu , sem kemur út í fyrramálið. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .