Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

KR vann Val og Víkingur sigraði Stjörnuna

Read Full Article →

KR-ingar byrjuðu með látum á móti Val í Vesturbæ Reykjavíkur í kvöld. Arnór Ingvi Traustason kom KR 1-0 yfir á 8. mínútu og aðeins mínútu síðar hafði Luke Rae aukið forskotið í 2-0. Tryggvi Hrafn Haraldsson minnkaði muninn fyrir Val í 2-1 með marki úr vítaspyrnu á 50. mínútu en Eiður Gauti Sæbjörnsson gulltryggði 3-1 sigur KR með marki á 65. mínútu. Víkingur vann svo öruggan 3-1 sigur á Stjörnunni. Gylfi Þór Sigurðsson kom Víkingi í 1-0 með marki úr vítaspyrnu á 28. mínútu og Óskar Borgþórsson bætti við öðru marki á 36. mínútu. Damel Dankerlui minnkaði muninn fyrir Garðbæinga í 2-1 en Valdimar Þór Ingimundarson kom Víkingi svo í 3-1 og innsiglaði þar með sigur Víkings. Leikur Stjörnunnar og Víkings í kvöld var styrktarleikur fyrir Ingvar Jónsson markvörð Víkings sem á nú í baráttu við krabbamein. Ingvar spilaði áður með Stjörnunni og varð meðal annars Íslandsmeistari með Stjörnumönnum árið 2013. Víkingur er á toppnum með 25 stig, þremur stigum á undan KR sem er í 2. sæti. Báðir leikir kvöldsins eru leikir sem hefði átt að spila síðar í sumar, en var flýtt vegna þátttöku Víkings, Vals og Stjörnunnar í Evrópukeppni í júlí. Stjarnan er í 9. sæti eftir níu leiki með aðeins sjö stig, langt frá því sem væntingar Garðbæinga gerðu ráð fyrir á þessum tímapunkti og því farið að hitna vel undir Jökli Elísabetarsyni þjálfara Stjörnunnar.

Share this article