Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Umræðum um þjóðaratkvæðagreiðsluna ekki lokið

Read Full Article →

Síðari umræðu um þingsályktunartillögu utanríkisráðherra varðandi framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu var frestað laust fyrir klukkan hálf tólf í kvöld. Utanríkisráðherra er á mælendaskrá þingfundar sem hefst klukkan þrjú á morgun ásamt átta þingmönnum Miðflokksins. Þeir hafa farið fram á að leynd verði aflétt af gögnum áður en hægt verður að greiða atkvæði um tillöguna. Þau gögn munu vera geymd í fundarherbergi sem allir þingmenn í utanríkismálanefnd hafa aðgang að. Fleiri þingmenn stjórnarandstöðu tóku undir kröfuna. Stjórnarandstaðan hótar því að láta ekki af umræðu, þvert á samkomulag um að klára h ana í gær og greiða atkvæði um málið, sem meirihlutinn taldi vera í gildi. Stjórnarliðar leggja til að þjóðaratkvæðagreiðslan verði haldin 29. ágúst og til að það gangi eftir þarf að ljúka umræðunni í þessari viku og meirihluti þingheims að samþykkja þingsályktunartillöguna. Minnihlutinn í utanríkismálanefnd leggur til að þjóðaratkvæðagreiðslan verði 17. október.

Share this article