Innlent | mbl | 27.5.2026 | 13:20 Daði um undirskriftalistann: „Mjög impónerandi“ Daði fékk undirskriftarlistann afhentan í morgun. mbl.is/Eggert Jóhannesson Magnea Marín Halldórsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Kílómetragjald Afhenti Daða 42 þúsund undirskriftir Eldsneytisfyrirtæki fá bréf eftir helgi Á fund Daða með 40 þúsund undirskriftir „Við erum komin yfir 40 þúsund“ 38 þúsund manns hafa mótmælt kílómetragjaldi » Fleiri tengdar fréttir „Þú færir ekki af stað í þetta ef þú tryðir ekki að þú gætir haft áhrif og við viljum lifa í þannig samfélagi,“ segir Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, um hinn farsæla undirskriftalista gegn kílómetragjaldinu sem var afhentur ráðherranum fyrr í dag. Framkvæmd gjaldsins hefur verið gagnrýnd, meðal annars vegna mismælinga og sekta, og hafa tæplega 42.000 manns sett nöfn sín á listann sem Maria Csizmás stendur fyrir. Frétt af mbl.is Afhenti Daða 42 þúsund undirskriftir Býr til þrýsting Telurðu að þessi listi geti haft einhver áhrif? „Já, hann gerir það og hefur gert það nú þegar. Þetta býr til þrýsting á að laga framkvæmdina og þess vegna hefur þetta raunverulega hjálpað okkur að gera þetta betur,“ segir Daði Már í samtali við mbl.is og bætir jafnframt við að ráðuneytið sé opið fyrir öllum hugmyndum um hvernig sé hægt að gera betur. „Þetta er auðvitað hluti af langri vegferð. Við erum að horfa á orkuskipti í samgöngum. Það var búið að innleiða þetta fyrirkomulag fyrir rafmagnsbíla því að eitthvert fyrirkomulag varð að vera. Við gátum ekki haft gamla fyrirkomulagið þar.“ Allur bílaflotinn, óháð orkugjafa, hafi verið að þróast í átt að rafmagnsbílunum með stöðugt meiri nýtni, sem sé jákvætt en þýði líka að komin hafi verið upp staða þar sem gamla fyrirkomulagið hafi verið pínu ósanngjarnt. Það hafi lagt þyngri byrðar á eldri bíla heldur en yngri og þess vegna hafi breytinga verið þörf. „Svo er það auðvitað líka þannig, og það gleymist oft í þessari umræðu, að fyrir þungu bílana hefur þetta fyrirkomulag verið mjög lengi og þess vegna var þetta raunverulega fyrst og fremst kerfisbreyting fyrir minni bíla. En varðandi framkvæmdina þá hefur þetta skipt okkur mjög miklu máli.“ Daði Már með ábyrgðarmönnum listans, Maríu Csizmás og Daða Frey Ólafssyni. mbl.is/Eggert Jóhannesson „Það þarf mikinn kjark“ Hvað finnst þér um þetta framtak? „Mér finnst þetta mjög impónerandi, ég verð að viðurkenna það, og eins og ég sagði við Maríu: mér finnst alveg sérstaklega impónerandi að einhver sem er ekki úr íslensku málumhverfi skuli ráðast í þetta vegna þess að það þarf mikinn kjark, og þess vegna ber ég mikla virðingu fyrir því að hún sérstaklega hafi gert þetta. Mér finnst líka bara almennt að almenningur láti sig stefnumótun varða – það er merki um gott samfélag, vegna þess að þú færir ekki af stað í þetta ef þú tryðir ekki að þú getir haft áhrif og við viljum lifa í þannig samfélagi.“ Frétt af mbl.is Á fund Daða með 40 þúsund undirskriftir Tengdar fréttir Kílómetragjald Afhenti Daða 42 þúsund undirskriftir Eldsneytisfyrirtæki fá bréf eftir helgi Á fund Daða með 40 þúsund undirskriftir „Við erum komin yfir 40 þúsund“ 38 þúsund manns hafa mótmælt kílómetragjaldi » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Daði um undirskriftarlistann: „Mjög impónerandi“ Ný stjórn SFHR tekin við störfum Menntaskólinn í Kópavogi útskrifaði eftir metaðsókn Gott samtal breytti hugsjón Agnars Flottustu sumarfötin núna Umræðan Tæknin lækkar fæðingartíðni Opin skilyrði vegna ESB viðræðna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki óafturkræfar breytingar gerðar Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Ekki tekið tillit til mönnunar við skerðingu Afhenti Daða 42 þúsund undirskriftir Mest lesið Í gær Í vikunni Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Fulltrúar þriggja flokka undirrita samning í Viðey Óbærileg ár fram undan Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri Þórarna nýr forstjóri Gantaðist með götuheiti á borgarstjórnarfundi Óvissan í fluginu bætist við mótvind Ver Ísland gegn tölvuárásum Tæpur þriðjungur gesta var í boði ríkisins Gangandi umferð þrýst út í bílagötu Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Sagt að hafa veitingastað Safna undirskriftum gegn nýjum meirihluta Niðurrif húsa hefst brátt á Traðarreit Íhugar að flytja úr landi vegna skattastefnu Valdimar kveður: Síðustu dagar verið krefjandi Hret í kortunum og líkur á snjókomu „Hvaða hörmung ertu kominn með?“ Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Blóðugur reikningur á Tenerife Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Enginn mætti frá ríkisstjórninni Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Nýjast á mbl.is » Daði um undirskriftarlistann: „Mjög impónerandi“ Ný stjórn SFHR tekin við störfum Menntaskólinn í Kópavogi útskrifaði eftir metaðsókn Gott samtal breytti hugsjón Agnars Flottustu sumarfötin núna Umræðan Tæknin lækkar fæðingartíðni Opin skilyrði vegna ESB viðræðna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki farið í aðlögun án þjóðarvilja Ný aðildarríki ESB yrðu án neitunarvalds fyrstu árin Þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot á Múlaborg Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Mest lesið Í gær Í vikunni Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Fulltrúar þriggja flokka undirrita samning í Viðey Óbærileg ár fram undan Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri Þórarna nýr forstjóri Gantaðist með götuheiti á borgarstjórnarfundi Óvissan í fluginu bætist við mótvind Ver Ísland gegn tölvuárásum Tæpur þriðjungur gesta var í boði ríkisins Gangandi umferð þrýst út í bílagötu Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Sagt að hafa veitingastað Safna undirskriftum gegn nýjum meirihluta Niðurrif húsa hefst brátt á Traðarreit Íhugar að flytja úr landi vegna skattastefnu Valdimar kveður: Síðustu dagar verið krefjandi Hret í kortunum og líkur á snjókomu „Hvaða hörmung ertu kominn með?“ Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Blóðugur reikningur á Tenerife Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Enginn mætti frá ríkisstjórninni Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“