Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Klárast ekki nema með samkomulagi við Miðflokkinn

Read Full Article →

Innlent | mbl | 27.5.2026 | 13:42 Klárast ekki nema með samkomulagi við Miðflokkinn Sigríður Andersen segir margt enn óframkomið í umræðum um málið. mbl.is/Karítas Kjartan Leifur Sigurðsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Ekki farið í aðlögun án þjóðarvilja Ekki óafturkræfar breytingar gerðar Kannast ekki við samkomulag um lok ESB umræðu Ný aðildarríki ESB yrðu án neitunarvalds fyrstu árin Vonlaus samningur verður ekki lagður fyrir þjóðina » Fleiri tengdar fréttir Alþingi Klukkan tifar í sölum Alþingis Umræðum um þjóðaratkvæðagreiðsluna framhaldið í dag Vonlaus samningur verður ekki lagður fyrir þjóðina Mestu sérhagsmunir í sögunni Svör um ESB-aðlögun „málum blandin“ » Fleiri tengdar fréttir Umræðu á Alþingi um ráðgerða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið mun ekki ljúka í dag nema samkomulag um að ljúka viðræðum muni nást við þingflokk Miðflokksins. Þetta segir Sigríður Á. Andersen, þingflokksformaður flokksins, í samtali við mbl.is. Tíminn er naumur til afgreiðslu tillögunnar ef dagsetning þjóðaratkvæðagreiðslunnar, 29. ágúst, á að standast. Nefndardagar eru í þinginu næstu tvo daga og þarf umræðunni því að ljúka í dag. Sigríður segir þó margt sem þurfi að ræða svo unnt sé að ljúka umræðum. Frétt af mbl.is Umræðum um þjóðaratkvæðagreiðsluna framhaldið í dag Sjálfstæðismenn taka ekki til máls Athygli vekur að allir þingmenn Miðflokksins eru á mælendaskrá um málið en þingmenn annarra stjórnarandstöðuflokka virðast ekki ætla að taka til máls í umræðum dagsins. „Sjálfstæðisflokknum einhverra hluta vegna er mikið í mun að ljúka þessari umræðu, skýringin á því kom kannski fram í dag. Miðflokkurinn á eftir að koma mörgum sjónarmiðum á framfæri í þessari umræðu og mun gera það alveg óhikað, eins og þurfa þykir,“ segir Sigríður. Frétt af mbl.is Sigmundur Davíð: „Augljóst í hvað stefndi“ Eins og áður segir er ekki mikill tími til stefnu til að afgreiða tillöguna en Sigríður segir tímapressuna vera sjálfskipaða af hálfu ríkisstjórnarinnar. „Það hefur ekki komið fram af hverju í ósköpunum þessi dagsetning, 29. ágúst, er valin. Þetta er skemmsti fyrirvari sem lög leyfa. Þetta er mjög óvanalegt og það er mjög undarlegt að geta ekki svarað því af hverju þessi dagsetning varð fyrir valinu.“ Frétt af mbl.is Kannast ekki við samkomulag um lok ESB umræðu Tugir skjala bætast við Segir þingflokksformaðurinn það einnig áhugavert að enn séu að bætast við skjöl um málið eftir að utanríkismálanefnd afgreiddi tillöguna út úr nefnd. Hún segir tugi skjala síðan þá hafa bæst við frá stjórnvöldum. „Það eru ekki bara skjölin sem eru í leyniherberginu, heldur hefur innsendum erindum, sem opinber eru á vef Alþingis, fjölgað um nokkra tugi. Við vitum þó ekki neitt hvað er í leyniherberginu og höfum kallað eftir því að þau verði gerð aðgengileg.“ Segir dómsmálaráðherrann fyrrverandi það miður að ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafi ekki kveðið sér til hljóðs í umræðum um þjóðaratkvæðagreiðsluna. Hún segir þó eðlisbreytingu hafa orðið á málinu að undanförnu. „Núna tala ráðherrarnir um að það sé ekki víst að almenningi verði kynntur sá samningur sem kemur úr aðildarviðræðum kjósi fólk með því. Það fer víst bara eftir því hvort stjórnarflokkarnir fýli samninginn. Það er óboðlegt að ráðherrar komi ekki og geri grein fyrir þessu sjónarmiði fyrir þinginu. Hvað ef þjóðinni hugnast samningur sem Samfylkingunni eða Viðreisn hugnast ekki?“ Frétt af mbl.is Vonlaus samningur verður ekki lagður fyrir þjóðina Ætlar að leyfa umræðunni að eiga sér stað Þrátt fyrir að Miðflokkurinn telji dagsetningu þjóðaratkvæðagreiðslunnar ekki ákjósanlega er ljóst að stjórnarmeirihlutinn er þeirrar skoðunar að dagsetningunni verði ekki breytt. Mun því vera reynt að ljúka umræðunni í dag. „Þau klára þessa umræðu auðvitað ekkert án samkomulags við Miðflokkinn,“ segir Sigríður. Er von á því að slíkt samkomulag náist? „Ég ætla að leyfa þessari umræðu að eiga sér stað í dag og sjá hvort menn hressist eitthvað og komi inn í þingsal að svara spurningum,“ segir Sigríður. Tengdar fréttir Ísland og ESB Ekki farið í aðlögun án þjóðarvilja Ekki óafturkræfar breytingar gerðar Kannast ekki við samkomulag um lok ESB umræðu Ný aðildarríki ESB yrðu án neitunarvalds fyrstu árin Vonlaus samningur verður ekki lagður fyrir þjóðina » Fleiri tengdar fréttir Alþingi Klukkan tifar í sölum Alþingis Umræðum um þjóðaratkvæðagreiðsluna framhaldið í dag Vonlaus samningur verður ekki lagður fyrir þjóðina Mestu sérhagsmunir í sögunni Svör um ESB-aðlögun „málum blandin“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Meirihlutinn starfar áfram næstu fjögur árin Ari Edwald: „Mjög skrýtið“ Olga í tveggja leikja bann „Fjórða vaktin“ íþyngjandi fyrirtækjum Klárast ekki nema með samkomulagi við Miðflokkinn Umræðan Tæknin lækkar fæðingartíðni Dýrabær lifir enn góðu lífi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hér má skoða samstarfssáttmála nýs meirihluta Þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot á Múlaborg Óvissan í fluginu bætist við mótvind Ari Edwald: „Mjög skrýtið“ Mest lesið Í gær Í vikunni Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Fulltrúar þriggja flokka undirrita samning í Viðey Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri Óbærileg ár fram undan Þórarna nýr forstjóri Gantaðist með götuheiti á borgarstjórnarfundi Óvissan í fluginu bætist við mótvind Ver Ísland gegn tölvuárásum Tæpur þriðjungur gesta var í boði ríkisins Gangandi umferð þrýst út í bílagötu Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Sagt að hafa veitingastað Safna undirskriftum gegn nýjum meirihluta Niðurrif húsa hefst brátt á Traðarreit Íhugar að flytja úr landi vegna skattastefnu Valdimar kveður: Síðustu dagar verið krefjandi Hret í kortunum og líkur á snjókomu „Hvaða hörmung ertu kominn með?“ Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Blóðugur reikningur á Tenerife Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Enginn mætti frá ríkisstjórninni Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Nýjast á mbl.is » Meirihlutinn starfar áfram næstu fjögur árin Ari Edwald: „Mjög skrýtið“ Olga í tveggja leikja bann „Fjórða vaktin“ íþyngjandi fyrirtækjum Klárast ekki nema með samkomulagi við Miðflokkinn Umræðan Tæknin lækkar fæðingartíðni Dýrabær lifir enn góðu lífi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ari Edwald: „Mjög skrýtið“ Segir fjárskort tefja framkvæmdir í Árneshreppi Þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot á Múlaborg Fulltrúar þriggja flokka undirrita samning í Viðey Mest lesið Í gær Í vikunni Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Fulltrúar þriggja flokka undirrita samning í Viðey Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri Óbærileg ár fram undan Þórarna nýr forstjóri Gantaðist með götuheiti á borgarstjórnarfundi Óvissan í fluginu bætist við mótvind Ver Ísland gegn tölvuárásum Tæpur þriðjungur gesta var í boði ríkisins Gangandi umferð þrýst út í bílagötu Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Sagt að hafa veitingastað Safna undirskriftum gegn nýjum meirihluta Niðurrif húsa hefst brátt á Traðarreit Íhugar að flytja úr landi vegna skattastefnu Valdimar kveður: Síðustu dagar verið krefjandi Hret í kortunum og líkur á snjókomu „Hvaða hörmung ertu kominn með?“ Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Blóðugur reikningur á Tenerife Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Enginn mætti frá ríkisstjórninni Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“

Share this article