Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Zelensky bað Trump um fleiri loftvarnaflaugar

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 13 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Zel­en­sky bað Trump um fleiri loft­varnaflaug­ar Brynjólfur Þór Guðmundsson Volodomyr Zelensky, forseti Úkraínu, hefur leitað á náðir Donalds Trumps, forseta Bandaríkjanna, til að styrkja loftvarnir landsins. Zelensky bað Trump um aðstoð við að fá fleiri Patriot-loftvarnaeldflaugar til að verjast eldflaugaárásum Rússa. Beiðnina setti Zelensky fram fáeinum dögum eftir eina mestu eldflauga- og drónaárás Rússa á Úkraínu frá upphafi stríðsins. Úkraínumenn gátu skotið niður fjölda dróna en áttu erfiðara með að verjast eldflaugunum. Volodymyr Zelensky. EPA / ANGELO CARCONI Fyrir 4 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 „Það verður nóg að gera hjá okkur í minni­hlut­an­um“ Pétur Marteinsson óskar nýjum meirihluta í borginni til hamingju. Honum líst þó ekki á áform hans í samgöngumálum. „Mér finnst það boða meiri tafir og meiri umferð,“ segir hann. Fyrir 13 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Líbanon 30 drepn­ir í loft­árás­um Ísra­ela í Suður-Líban­on Tugir hafa látið lífið í árásum Ísraela á Líbanon síðasta sólarhring. Árásirnar eru þær mestu í suðurhluta landsins síðustu vikur. Óttast er að þær flæki til muna samningaviðræður Bandaríkjanna og Írans. Fyrir 33 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Fram­lengja sam­starf­ið í Múla­þingi Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn mynda meirihluta í bæjarstjórn Múlaþings. Flokkarnir störfuðu líka saman á síðasta kjörtímabili. Fyrir 50 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Fleiri konur snúa aftur í of­beld­is­sam­bönd Fleiri konur snúa aftur í ofbeldissambönd eftir að hafa leitað sér aðstoðar en síðustu ár. Framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins segir að vel sé fylgst með þróuninni og vonar að nýtt húsnæði verði til bóta. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnsýsla Kol­beinn tekur við af Bryn­dísi Brynjólfur Þór Guðmundsson Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur flutt Kolbein Árnason úr stöðu skrifstofustjóra í ráðuneytinu í embætti ráðuneytisstjóra. Hann tekur við af Bryndísi Hlöðversdóttur sem flyst í starf sérfræðings í ráðuneytinu. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að Bryndís hafi óskað eftir flutningi og ráðherra hafi nýtt heimild í starfsmannalögum til að flytja Kolbein til í starfi. Kolbeinn hefur lengi starfað hjá ráðuneytinu. Hann starfaði líka hjá skilanefndum og slitastjórn Kaupþings. Hann var fyrsti framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi frá stofnun þeirra 2014 til ársins 2016. Kolbeinn Árnason. Aðsend / Atvinnuvegaráðuneytið Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Stefnt á 14,7 millj­arða hag­ræð­ingu á árinu Áætluð hagræðing ráðuneytanna í fjárlögum ársins 2026 nemur samtals um 14,7 milljörðum króna. Ekki er hægt að svara til um áhrif einstakra tillagna starfshóps forsætisráðherra. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Mosfellsbær Stöðva borun í Skamma­dal vegna meng­un­ar í Varmá Veitur eru hættar borframkvæmdum í Skammadal í bili meðan leitað er leiða til að koma í veg fyrir að mengun hljótist af þeim. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Telur að nið­ur­stað­an hafi „legið í loft­inu“ Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðiprófessor telur engin augljós vandræði við það að nýr meirihluti í Reykjavík sé naumur. „En eins manns meirihluti er alltaf flókinn.“ Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 „Við ætlum okkur að hafa festu og vinnu­frið“ Hildur Björnsdóttir, verðandi borgarstjóri, ætlar fyrst að ráðast í hagræðingu, endurskoðun samgöngusáttmála og undirbúning vinnustaðaleikskóla. Hún segir stjórnarformennsku í Orkuveitunni ekki vera sárabætur fyrir oddvita Miðflokksins. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Svein­dís missir af næstu leikj­um Ís­lands Sveindís Jane Jónsdóttir verður ekki með Íslandi gegn Úkraínu og Spáni í lokaleikjum liðsins í riðlahluta undankeppni HM kvenna í fótbolta. Sveindís er meidd en í hópinn í hennar stað kemur Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir, leikmaður Breiðabliks. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Áætla að hefja fram­kvæmd­ir við náms­garða í júlí Verktakar sýna útboði um uppbyggingu námsgarða við Háskólann á Akureyri mikinn áhuga. Áætlað er að framkvæmdir hefjist strax í júlí. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR EM karla í handbolta 2026 Dagur sekt­að­ur fyrir að gagn­rýna Evr­ópu­mót­ið Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Króata í handbolta, fékk 4000 evra (um 590 þúsund króna) sekt frá evrópska handknattleikssambandinu fyrir ummæli sem hann lét falla á EM í janúar. Hann gagnrýndi skipulagningu mótsins þar harðlega. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Dæmdur í þriggja ára fang­elsi fyrir að hafa brotið á barni á Múla­borg Karlmaður á þrítugsaldri var í gær dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að hafa brotið gegn barni á leikskólanum Múlaborg. Hann starfaði sem leiðbeinandi á leikskólanum, þar sem hann braut gegn barninu. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálf­stæð­is­flokk­ur, Við­reisn og Fram­sókn mynda meiri­hluta Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsóknarflokkur hafa náð saman um myndun nýs meirihluta í Reykjavík. Meirihlutinn boðar samstarf við vinnustaði um leikskóla, endurskoðun á fjármögnun og framkvæmdahraða samgöngusáttmálans, skipulag framtíðarhverfa á Kjalarnesi, Geldingarnesi, Gufunesi og Granda og frístundastyrk fyrir tekjulága eldri borgara. Þá verða sundlaugar opnar til kl. 22. Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri. Björg Magnúsdóttir verður forseti borgarstjórnar og Einar Þorsteinsson formaður borgarráðs. Einar og Björg skipta síðan á embættum 1. júní á næsta ári. FRÉTTAVAKT Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fjölmiðlar Fót­bolti.net legið niðri í sól­ar­hring: „Ekki net­árás“ Vefurinn Fótbolti.net liggur niðri vegna þess að netþjónn sem síðan notast við hrundi í gær. „Það er ekki netárás, það eru engin gögn að týnast,“ segir einn eigenda. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf At­vinnu­leysi eykst milli ára Atvinnuleysi var 5,8 prósent í apríl samkvæmt tölum Hagstofunnar en 3,9 prósent samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar. Báðar sýna aukningu atvinnuleysis milli ára en mismikla. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Húsnæðismál „Ég er ekki að upp­lifa frost“ Formaður Félags fasteignasala segir ástandið á fasteignamarkaði erfitt en að markaðurinn sé ekki frosinn. Fólk reyni í auknum mæli að finna nýjar leiðir til að láta samninga ganga upp. Fyrir 6 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist „Það er ekki hægt að sjá eftir neinu“ Þau Ragnhildur Gísladóttir og Helgi Björnsson ætla að halda tónleika þar sem þau flytja sína helstu smelli og segja sögur. Þau eru sammála um að það sé eyðileggjandi að vera með eftirsjá og að maður verði að standa með sínum ákvörðunum. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Landsréttur Fékk skil­orðs­bund­inn dóm fyrir ít­rek­uð kyn­ferð­is­brot gegn systur sinni Karlmaður var í gær sakfelldur fyrir að brjóta kynferðislega gegn systur sinni. Brotin framdi hann um árabil fyrir tveimur áratugum. Dómurinn klofnaði þar sem tveir dómarar vildu skilorðsbunda refsingu mannsins en einn ekki. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Skúra­veð­ur víðast hvar Það gengur á með skúrum á stórum hluta landsins. Íbúar austan til sleppa þó við bleytu því þar er útlit fyrir að verði bjart og þurrt. Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Hvaða Ís­lend­ing­ar eru að fara á „dýrasta HM sög­unn­ar“? HM í fótbolta í ár hefur verið mikið á milli tannanna á fólki. Mótið er haldið að mestu í Bandaríkjunum en einnig í Kanada og Mexíkó. Sérfræðingar segja þetta dýrasta HM sögunnar. En hvaða Íslendingar eru að fara? Hvernig ætla þeir að gera þetta? Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Svíþjóð Ný lög banna hjóna­band frænd­systk­ina og an­n­arra náinna ætt­ingja Markús Þ. Þórhallsson Sænska þingið hefur ákveðið að banna hjónabönd frændsystkina og annarra náinna skyldmenna. Svíar og Norðmenn hafa bannað hjónaband frændsystkina með lögum. Mynd úr safni. Pexels / Deesha Chandra Frumvarp þess efnis var samþykkt nær einróma í þinginu og lögin taka gildi 1. júlí. Engar undanþágur verða veittar frá ákvæðum þeirra, meðal annars verða ekki staðfest skyldleikahjónabönd sem verða til erlendis. Norðmenn staðfestu svipuð lög í fyrra. Samkvæmt ákvæðum íslenskra hjúskaparlaga þurfa frændsystkin aðeins að hafa náð 18 ára aldri og vera lögráða til að mega ganga í hjónaband. Bann við giftingu systkinabarna var afnumið árið 1972. Því er aðeins bannað að vígja í hjónaband systkini og skyldmenni í beinan legg, á borð við foreldri og barn. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Einn gisti fanga­geymsl­ur grun­að­ur um lík­ams­árás Markús Þ. Þórhallsson Maður gisti fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í morgun grunaður um að hafa framið líkamsárás í Háaleitishverfi. Einn maður gisti fangaklefa eftir nóttina grunaður um líkamsárás. Þ / RÚV Lögreglan rannsakar einnig innbrot og þjófnað úr gámi í Hafnarfirði. Þetta kemur fram í morgunskeyti lögreglunnar þar sem að stærstum hluta er greint frá umferðarlagabrotum á borð við hraðakstur, akstur undir áhrifum og án ökuréttinda. Minnst einn fékk sekt fyrir að aka talsvert yfir löglegum hraða. Einn ók bifreið búinni nagladekkjum, annar hafði filmur í framrúðum og þeim þriðja var gert að mæta með bíl sinn í skoðun enda ljóslaus að aftanverðu. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Kan­a­da­menn setja á komu­bann vegna ebólu — grunur um til­felli á Ind­landi Markús Þ. Þórhallsson Heilbrigðisstarfsfólk í Kongó undirbýr greftrun manneskju sem lést af völdum ebólu. EPA / Stringer Kanadísk stjórnvöld hafa frá og með deginum í dag lagt á níutíu daga komubann fyrir ríkisborgara Lýðstjórnarlýðveldsins Kongó, Úganda og Suður-Súdan vegna faraldurs ebólu sem þar geisar. Kanadískum ríkisborgurum og öðrum sem heimsótt hafa smitsvæðin er gert að sæta þriggja vikna sóttkví frá og með 30. maí. Bandaríkjastjórn hefur sett takmarkanir á komur ríkisborgara landanna þriggja og stjórnvöld á Bahama hafa svipuð áform í bígerð. Enn hefur ekki greinst ebólasýking í Kanada, Bandaríkjunum

Share this article