Innlent | mbl | 27.5.2026 | 15:15 Fékk skilorð fyrir kynferðisbrot gegn systur sinni Dómur var kveðinn upp í gær. Ljósmynd/Colourbox Setja bókamerki Tengdar fréttir Kynferðisbrot Nauðganir eiginmannsins flestar fyrndar Þriggja ára dómur fyrir brot gegn barni Áfrýjar dómi fyrir kynferðisbrot í Hafnarfirði „Sérstaklega alvarlegt“ en ekki nauðgun Gert að greiða 2,2 milljónir » Fleiri tengdar fréttir Landsréttur hefur dæmt karlmann í fjögurra ára skilorðsbundið fangelsi fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn systur sinni yfir fjögurra ára tímabil. Rétturinn sneri við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem sýknaði manninn. Einn landsréttardómari vildi dæma manninn í tveggja ára fangelsi. Manninum var gefin að sök að hafa brotið kynferðislega gegn systur sinni frá árinu 2003 til 2007. Hún var þá sjö til ellefu ára gömul og hann 15 ára og á tuttugasta aldursári þegar brotunum lauk. Í ákæru yfir manninum segir að hann hafi sett getnaðarlim sinn í kynfæri systur sinnar, haft við hana samræði, látið hana fróa sér og veita sér munnmök. Brotin áttu sér stað á heimili systkinanna, í sumarbústað og í fjölskylduferð á Spáni. Upphaf ákærutímabilsins miðast við þegar ákærði náði 15 ára aldri og er talinn sakhæfur en brotaþoli telur brotin hafa byrjað fyrr. Viðurkenndi að hafa brotið gegn systur sinni Maðurinn neitaði að hafa brotið á systur sinni eftir að hann náði 15 ára aldri en viðurkenndi að hafa brotið gegn henni áður en hann náði sakhæfisaldri. Hann gekkst við því að hafa komið við kynfæri systur sinnar með höndum en gat ekki sagt til um hversu oft það hefði verið. Þá viðurkenndi hann að hafa farið með fingur inn í leggöng hennar í eitt skipti í sumarbústað þegar hann var í sjöunda bekk. Hann neitaði að hafa brotið gegn henni að öðru leyti, þar með talið í sumarleyfi á Spáni. Fyrir skýrslutöku og dómi sagði maðurinn ítrekað að brotunum hefði lokið þegar hann var í 9. bekk og tengdi það tímamark við þegar hann missti sveindóminn. Hann tjáði sig hins vegar lítið um þá stúlku sem hann átti kynferðislegt samneyti við og veitti ekki frekari upplýsingar um hana annað en fyrsta nafn hennar í eitt skipti. Í önnur skipti sagðist hann hafa misst sveindóminn hjá „einhverri stelpu“. Taldi dómurinn þetta mikilvæga atriði óskýrt og rýra framburð mannsins. Framburður staðfestur frá upphafi Framburður brotaþola var staðfestur frá upphafi rannsóknar þar sem hún lýsti öllum meginatriðum með sama hætti fyrir dómi og í skýrslum hjá lögreglu. Framburður hennar var talinn trúverðugur auk þess sem hann átti sér stoð í framburði vitna og málsgögnum. Dómurinn horfði einnig til upptöku af samtali sem konan átti við bróður sinn á fullorðinsárum um brotin, framburðar vitna sem konan hafði greint frá brotunum og skýrslna frá Stígamótum og Bjarkahlíð. Vildi tveggja ára fangelsisvist Dómarar Landsréttar töldu að maðurinn hefði misnotað sér traust systur sinnar og brotið alvarlega gegn henni og var litið til þess við ákvörðun refsingar. Þá var einnig horft til ungs aldurs ákærða þegar brotin hófust, langt væri liðið frá því að brotin áttu sér stað auk þess sem maðurinn hefði ekki áður sætt refsingu. Símon Sigvaldsson landsréttardómari skilaði sérákvæði þar sem hann taldi hæfilega refsingu vera tveggja ára fangelsi í stað fjögurra ára skilorðsbundins fangelsis. Horfði hann til þess að brotin voru alvarleg auk þess sem maðurinn var á tuttugasta aldursári þegar brotunum lauk. Tengdar fréttir Kynferðisbrot Nauðganir eiginmannsins flestar fyrndar Þriggja ára dómur fyrir brot gegn barni Áfrýjar dómi fyrir kynferðisbrot í Hafnarfirði „Sérstaklega alvarlegt“ en ekki nauðgun Gert að greiða 2,2 milljónir » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Barcelona nær samkomulagi við enska landsliðsmanninn Fékk skilorð fyrir kynferðisbrot gegn systur sinni Myndir: Gríman afhent Arsenal þarf að greiða stórfé Verkfallið hefur áhrif á þrjú skip Eimskips Umræðan Tæknin lækkar fæðingartíðni Dýrabær lifir enn góðu lífi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óvissan í fluginu bætist við mótvind „Meirihluti sem ég reyndi að mynda fyrir 15 mánuðum“ Afhenti Daða 42 þúsund undirskriftir Ekki farið í aðlögun án þjóðarvilja Mest lesið Í gær Í vikunni Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Fulltrúar þriggja flokka undirrita samning í Viðey Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri Óbærileg ár fram undan Þórarna nýr forstjóri Gantaðist með götuheiti á borgarstjórnarfundi Óvissan í fluginu bætist við mótvind Ver Ísland gegn tölvuárásum Afhenti Daða 42 þúsund undirskriftir Sigmundur Davíð: „Augljóst í hvað stefndi“ Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Sagt að hafa veitingastað Safna undirskriftum gegn nýjum meirihluta Niðurrif húsa hefst brátt á Traðarreit Íhugar að flytja úr landi vegna skattastefnu Valdimar kveður: Síðustu dagar verið krefjandi Hret í kortunum og líkur á snjókomu „Hvaða hörmung ertu kominn með?“ Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Blóðugur reikningur á Tenerife Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Enginn mætti frá ríkisstjórninni Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Nýjast á mbl.is » Barcelona nær samkomulagi við enska landsliðsmanninn Fékk skilorð fyrir kynferðisbrot gegn systur sinni Myndir: Gríman afhent Arsenal þarf að greiða stórfé Verkfallið hefur áhrif á þrjú skip Eimskips Umræðan Tæknin lækkar fæðingartíðni Dýrabær lifir enn góðu lífi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óbærileg ár fram undan Óvissan í fluginu bætist við mótvind Ekki tekið tillit til mönnunar við skerðingu Gripinn við að sækja Fedex-sendingu í Hafnarfirði Mest lesið Í gær Í vikunni Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Fulltrúar þriggja flokka undirrita samning í Viðey Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri Óbærileg ár fram undan Þórarna nýr forstjóri Gantaðist með götuheiti á borgarstjórnarfundi Óvissan í fluginu bætist við mótvind Ver Ísland gegn tölvuárásum Afhenti Daða 42 þúsund undirskriftir Sigmundur Davíð: „Augljóst í hvað stefndi“ Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Sagt að hafa veitingastað Safna undirskriftum gegn nýjum meirihluta Niðurrif húsa hefst brátt á Traðarreit Íhugar að flytja úr landi vegna skattastefnu Valdimar kveður: Síðustu dagar verið krefjandi Hret í kortunum og líkur á snjókomu „Hvaða hörmung ertu kominn með?“ Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Blóðugur reikningur á Tenerife Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Enginn mætti frá ríkisstjórninni Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“