Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ákvað strax að liggja ekki bara yfir bókunum

Read Full Article →

Innlent | mbl | 27.5.2026 | 21:14 Ákvað strax að liggja ekki bara yfir bókunum Þrátt fyrir að hafa haft í nógu að snúast utan skólans útskrifaðist Heiðrún Vala Hilmarsdóttir með 9,9 í lokaeinkunn frá Kvennaskólanum og varð þar með dúx skólans. Ljósmynd/Aðsend Valgerður Birna Magnúsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Útskriftir Sakamál og mannslíkaminn heilluðu Bjóst ekki við því að dúxa Jafnvægi er lykillinn að velgengni Stefndi alltaf að því að standa sig vel HR útskrifaði 217 nemendur » Fleiri tengdar fréttir Heiðrún Vala Hilmarsdóttir ákvað strax í upphafi skólagöngu sinnar í Kvennaskólann í Reykjavík haustið 2023 að hún ætlaði ekki að liggja yfir námsbókunum alla menntaskólagönguna, heldur gefa sér tíma til þess að sinna félagsstörfum, sellónámi og eiga góðar stundir með vinkonum sínum. Sú ákvörðun kom hins vegar síður en svo niður á námsárangri hennar, enda kom í ljós við útskriftarathöfn Kvennaskólans í Reykjavík síðastliðinn föstudag að hún hafði dúxað skólann með 9,9 í lokaeinkunn. „Þetta kom mér alveg smá á óvart, þó ég hafi alveg vitað að ég væri með góða meðaleinkunn,“ segir Heiðrún Vala í samtali við mbl.is. „Það er svo svakalega mikið af rosalega klárum krökkum í Kvennó. En já, ég vissi alveg að þetta væri möguleiki.“ Á menntaskólagöngunni gaf Heiðrún Vala sér tíma til þess að verja dýrmætum stundum með vinkonum sínum, sem frá vinstri heita: Ellý Hákonardóttir, Ragna Björk Snæbjörnsdóttir, Nína Rakel Svavarsdóttir, Rakel Sara Sveinsdóttir Berg, Svava Marín Sindradóttir, Hildur Sesselja Birgisdóttir og Elísabet Ýr Guðjónsdóttir. Ljósmynd/Aðsend Dýrmætur tími fyrir annað en nám Heiðrún Vala hefur sannarlega ekki setið auðum höndum á þriggja ára menntaskólagöngu sinni, en utan skóla lagði hún stund á fullt klassískt sellónám og stefnir að því að ljúka við framhaldspróf á hljóðfærið að lokinni árspásu og er virk í ungliða- og ungmennahreyfingum á borð við Amnesty International og UN Women. „Ég eyddi alveg töluverðum tíma í að læra líka, en var samt dugleg að vera með vinkonum mínum, taka þátt í félagsstörfum og gera eitthvað skemmtilegt inn á milli,“ segir hún. „Ég tók ákvörðun um að ég ætlaði ekki bara eitthvað að liggja yfir námsbókunum allan menntaskólatímann, af því að þetta er svo dýrmætur tími til þess að eiga með vinum sínum og hafa gaman.“ Heiðrún Vala ásamt stjórn ungmennaráðs UN Women, formanninum Parísi Önnu Bergmann og varaformanninum Magnúsi Inga Árnasyni, en sjálf gegndi hún starfi ritara. Ljósmynd/Aðsend Heiðrún Vala var í stjórn ungliðaráðs Amnesty International, og stýrði meðal annars ungliðaráðstefnu Evrópudeilda samtakanna í Stokkhólmi í fyrra. Ljósmynd/Aðsend Stefnir rakleiðis í lögfræðina Félagsfræði og lögfræði voru í sérstöku uppáhaldi hjá Heiðrúnu Völu, sem brautskráðist af félagsvísindabraut á föstudaginn sem leið og hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í félagsfræði, og stefnir hún rakleiðis í nám við lögfræðideild Háskóla Íslands í haust. „Félagsfræðin var í miklu uppáhaldi hjá mér, og lögfræðin líka, en ég hafði mikinn áhuga á eiginlega öllum áföngunum sem ég var að læra og lagði mig jafnt og þétt fram yfir önnina í náminu,“ segir hún. Heiðrún Vala hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur í félagsfræði, sem er í sérstöku uppáhaldi hjá henni. Ljósmynd/Aðsend Að launum fyrir hinn framúrskarandi námsárangur hlaut Heiðrún Vala verðlaun úr Minningarsjóði frú Þóru Melsteð og viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í félagsfræði. Þá hlaut hún einnig menntaverðlaun Háskóla Íslands sem veitt eru nemanda sem hefur sýnt framúrskarandi árangur á stúdentsprófi auk þess að hafa náð eftirtektarverðum árangri á sviði lista eða íþrótta eða átt mikilvægt framlag til skólafélaga eða skólans. 183 nemendur brautskráðust frá Kvennaskólanum í Reykjavík síðastliðinn föstudag. Ljósmynd/Kvennaskólinn í Reykjavík Tengdar fréttir Útskriftir Sakamál og mannslíkaminn heilluðu Bjóst ekki við því að dúxa Jafnvægi er lykillinn að velgengni Stefndi alltaf að því að standa sig vel HR útskrifaði 217 nemendur » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Sannfærandi Fylkismenn enn á toppnum Ákvað strax að liggja ekki bara yfir bókunum Sóttur til Rúmeníu og settur í farbann Pam Bondi greind með krabbamein Fyrsti Evróputitill Palace Umræðan Tæknin lækkar fæðingartíðni Dýrabær lifir enn góðu lífi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Selenskí bað Trump um fleiri skotfæri Gripinn við að sækja Fedex-sendingu í Hafnarfirði Inga kynnir áform um einkunnabreytingu Gera má ráð fyrir snjó og krapa á vegum Mest lesið Í gær Í vikunni Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Fulltrúar þriggja flokka undirrita samning í Viðey Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri Óbærileg ár fram undan Afhenti Daða 42 þúsund undirskriftir Ari Edwald: „Mjög skrýtið“ Þórarna nýr forstjóri Gripinn við að sækja Fedex-sendingu í Hafnarfirði Gantaðist með götuheiti á borgarstjórnarfundi Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Sagt að hafa veitingastað Safna undirskriftum gegn nýjum meirihluta Niðurrif húsa hefst brátt á Traðarreit Íhugar að flytja úr landi vegna skattastefnu Valdimar kveður: Síðustu dagar verið krefjandi Hret í kortunum og líkur á snjókomu „Hvaða hörmung ertu kominn með?“ Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Blóðugur reikningur á Tenerife Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Enginn mætti frá ríkisstjórninni Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Nýjast á mbl.is » Sannfærandi Fylkismenn enn á toppnum Ákvað strax að liggja ekki bara yfir bókunum Sóttur til Rúmeníu og settur í farbann Pam Bondi greind með krabbamein Fyrsti Evróputitill Palace Umræðan Tæknin lækkar fæðingartíðni Dýrabær lifir enn góðu lífi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skipta bókavörðum safnsins út fyrir öryggisverði Gripinn við að sækja Fedex-sendingu í Hafnarfirði Afhenti Daða 42 þúsund undirskriftir Inga kynnir áform um einkunnabreytingu Mest lesið Í gær Í vikunni Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Fulltrúar þriggja flokka undirrita samning í Viðey Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri Óbærileg ár fram undan Afhenti Daða 42 þúsund undirskriftir Ari Edwald: „Mjög skrýtið“ Þórarna nýr forstjóri Gripinn við að sækja Fedex-sendingu í Hafnarfirði Gantaðist með götuheiti á borgarstjórnarfundi Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Sagt að hafa veitingastað Safna undirskriftum gegn nýjum meirihluta Niðurrif húsa hefst brátt á Traðarreit Íhugar að flytja úr landi vegna skattastefnu Valdimar kveður: Síðustu dagar verið krefjandi Hret í kortunum og líkur á snjókomu „Hvaða hörmung ertu kominn með?“ Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Blóðugur reikningur á Tenerife Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Enginn mætti frá ríkisstjórninni Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“

Share this article