Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Konan fundin Mist Þormóðsdóttir Grönvold Konan sem lögreglan á Suðurnesjum lýsti eftir í kvöld er fundin. Frekari upplýsingar verða ekki veittar, segir í tilkynningu frá lögreglunni. Fréttin hefur verið uppfærð. Fyrir 19 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Náttúra Ástin páfagaukanna: eitt par hefur stækkað stofn í útrýmingarhættu svo um munar Ættstofn einhverrar sjaldgæfustu páfagaukategundar heims hefur vaxið stórlega undanfarið, ekki síst vegna dugnaðar eins pars á Nýja-Sjálandi. Á tveimur árum hafa þau eignast tugi unga, meira en tíunda hluta þekktrar stærðar stofnsins. Fyrir 22 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Nýliðar fengu þjálfun í Ráðhúsinu 16 nýir borgarfulltrúar taka til starfa í borgarstjórn í næstu viku. Þeir fengu innsýn í nýja starfið í Ráðhúsinu í dag. Nýliðadagar borgarstjórnar halda áfram fram á föstudag. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Fótbolti Fyrsti Evróputitill Crystal Palace kominn í hús Crystal Palace mætti spænska liðinu Rayo Vallecano í úrslitaleik Sambandsdeildar Evrópu í kvöld. Aðeins eitt mark var skorað í leiknum og titillinn fór til Crystal Palace. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Aðstoðarmaður Matthew Perry dæmdur í fangelsi Persónulegur aðstoðarmaður Matthew Perry hefur verið dæmdur í 41 mánaðar fangelsi eftir að hafa játað að sprauta leikarann með ketamíni með þeim afleiðingum að hann lést. Aðstoðarmaðurinn er sá fimmti og síðasti til að vera dæmdur í málinu. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Þarfir barna miklu meiri en hjálparsamtök geta annast Þarfir barna í heiminum eru miklu meiri en hjálparsamtök geta annast og mörg þeirra búa við krefjandi aðstæður, samkvæmt framkvæmdastjóra UNICEF. Þjóðarleiðtogar þurfi að gera betur. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hver verða laun nýrra kjörinna bæjarstjóra á Akureyri og í Reykjanesbæ? Laun bæði Vilhjálms Árnasonar og Berglindar Óskar Guðmundsdóttur gætu orðið vel á fjórðu milljón á mánuði þegar þau taka við starfi bæjarstjóra, hvort í sínu sveitarfélagi. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Segir mikilvægt að sinna forvörnum gegn smitum á bráðamóttöku Yfirlæknir á smitsjúkdómadeild Landspítala segir skýrt verklag vera á bráðamóttöku spítalans ef starfsfólk reynist útsett fyrir berklasmiti. Starfsfólk hefur kvartað undan skorti á smitvörnum. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Bandaríkin segja fréttir um friðarsamkomulag uppspuna Vonir um frið á milli Íran og Bandaríkjanna glæddust í dag eftir að íranskir fjölmiðlar sögðust hafa komist yfir samningsdrög á milli Bandaríkjanna og Íran. Yfirvöld í Bandaríkjunum segja fréttir af samningnum uppspuna. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 „Svik við kjósendur sem kusu breytingar“ Ekki eru allir á eitt sáttir með nýjan meirihluta í borgarstjórn. Formaður Miðflokksins segist hundsvekktur. Ari Edwald, oddviti flokksins í Reykjavík, segir að Sjálfstæðisflokkurinn hafi svikið kjósendur. Sumir Sjálfstæðismenn virðast sammála. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Landsnet skákaði þremur landeigendum í Hæstarétti Mist Þormóðsdóttir Grönvold Hæstiréttur hafnaði í dag kröfu landeigenda þriggja jarða í sveitarfélaginu Vogum um að ákvörðun um eignarnám á landi þeirra yrði felld úr gildi. Með þessu staðfestir Hæstiréttur í dag dóm Landsréttar og Héraðsdóms Reykjaness. Íslenska ríkið fékk heimild til eignarnáms á svæðinu árið 2024. Þar hyggst Landsnet leggja Suðurnesjalínu 2 í lofti að hluta um jarðirnar. Forstjóri Landsnets hefur sagt að línunni sé ætlað að stuðla að auknu raforkuöryggi og flutningsgetu á Reykjanesskaga. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 „Mér finnst þetta skárri kosturinn“ Oddviti Sósíalistaflokksins hefur áhyggjur af húsnæðismálum og því nýr meirihluti ætli að bjóða út sorphirðu. Hún vonast til að Borgarlína verði áfram í forgangi. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Enn langt í land í viðræðum Icelandair og flugmanna Ríkissáttasemjari segir enn langt í land í kjaraviðræðum Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Fundur fór fram í dag og er annar skipulagður á morgun klukkan 10:00. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sigmundur segir sögulegu tækifæri kastað á glæ Formaður Miðflokksins segir að Sjálfstæðisflokkurinn vilji frekar höfða til þeirra sem styðja ekki flokkinn heldur en þeirra sem geta unnið með honum að alvöru breytingum. Hann segir sögulegu tækifæri kastað á glæ í Reykjavík. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Framsókn hefur lokið máli sínu Alexander Kristjánsson Framsóknarflokkurinn hefur lokið máli sínu um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB. Stefán Vagn Stefánsson, þingflokksformaður flokksins, greindi frá þessu í umræðum á Alþingi. Stefán sagði málið vera illa undirbúið, samningsmarkmið væru óljós og að þingnefnd hefði fengið takmarkaðan tíma til að ræða það. „Framsókn telur hagsmunum Íslands best borgið utan Evrópusambandsins,“ sagði Stefán. Hann sagði flokkinn þó treysta þjóðinni til að segja nei í atkvæðagreiðslunni. Þingmenn ræða nú þingsályktunartillögu um að boða til þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst. Til þess að svo verði þarf að samþykkja hana eigi síðar en á föstudag. Stefán Vagn Stefánsson, þingflokksormaður Framsóknar. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Ekkja Andemariams: „Hér í Svíþjóð hefur ekkert gerst í þessu máli, ég hef engar bætur fengið“ Sænska ríkið og Karolinska-sjúkrahúsið hafa ekki beðist afsökunar á plastbarkamálinu og lýst yfir vilja til að greiða skaðabætur í málinu. Uppljóstrari í málinu og blaðamaðurinn sem skrifaði mest um það gagnrýna þetta. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál Vísbendingar um að öryggisúttekt vanti á Stuðlum Umboðsmaður Alþingis hefur kallað eftir svörum frá Barna- og fjölskyldustofu vegna ábendingar um að ekki hafi farið fram öryggisúttekt á neyðarvistunardeild Stuðla eftir framkvæmdir vegna eldsvoða haustið 2024. Sautján ára piltur lést í eldsvoðanum. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Saknar húsnæðismálanna í áherslum meirihlutans „Sem vinstrimanneskja þá er maður auðvitað ekkert spenntur fyrir hægristjórn og þeim áherslum sem þar birtast,“ segir Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Vinstrisins. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hrókeringar á Norður- og Austurlandi Nokkur breyting varð á meirihlutum á Norðurlandi í kjölfar sveitarstjórnarkosninganna og eru meirihlutaviðræður ýmist búnar eða langt á veg komnar. Nýir meirihlutar eru á Akureyri, í Norðurþingi, Fjallabyggð, Dalvíkurbyggð og í Skagafirði. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 „Það verður nóg að gera hjá okkur í minnihlutanum“ Pétur Marteinsson óskar nýjum meirihluta í borginni til hamingju. Honum líst þó ekki á áform hans í samgöngumálum. „Mér finnst það boða meiri tafir og meiri umferð,“ segir hann. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Líbanon 30 drepnir í loftárásum Ísraela í Suður-Líbanon Tugir hafa látið lífið í árásum Ísraela á Líbanon síðasta sólarhring. Árásirnar eru þær mestu í suðurhluta landsins síðustu vikur. Óttast er að þær flæki til muna samningaviðræður Bandaríkjanna og Írans. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Zelensky bað Trump um fleiri loftvarnaflaugar Brynjólfur Þór Guðmundsson Volodomyr Zelensky, forseti Úkraínu, hefur leitað á náðir Donalds Trumps, forseta Bandaríkjanna, til að styrkja loftvarnir landsins. Zelensky bað Trump um aðstoð við að fá fleiri Patriot-loftvarnaeldflaugar til að verjast eldflaugaárásum Rússa. Beiðnina setti Zelensky fram fáeinum dögum eftir eina mestu eldflauga- og drónaárás Rússa á Úkraínu frá upphafi stríðsins. Úkraínumenn gátu skotið niður fjölda dróna en áttu erfiðara með að verjast eldflaugunum. Volodymyr Zelensky. EPA / ANGELO CARCONI Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Framlengja samstarfið í Múlaþingi Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn mynda meirihluta í bæjarstjórn Múlaþings. Flokkarnir störfuðu líka saman á síðasta kjörtímabili. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Fleiri konur snúa aftur í ofbeldissambönd Fleiri konur snúa aftur í ofbeldissambönd eftir að hafa leitað sér aðstoðar en síðustu ár. Framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins segir að vel sé fylgst með þróuninni og vonar að nýtt húsnæði verði til bóta. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnsýsla Kolbeinn tekur við af Bryndísi Brynjólfur Þór Guðmundsson Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur flutt Kolbein Árnason úr stöðu skrifstofustjóra í ráðuneytinu í embætti ráðuneytisstjóra. Hann tekur við af Bryndísi Hlöðversdóttur sem flyst í starf sérfræðings í ráðuneytinu. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að Bryndís hafi óskað eftir flutningi og ráðherra hafi nýtt heimild í starfsmannalögum til að flytja Kolbein til í starfi. Kolbeinn hefur lengi starfað hjá ráðuneytinu. Hann starfaði líka hjá skilanefndum og slitastjórn Kaupþings. Hann var fyrsti framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi frá stofnun þeirra 2014 til ársins 2016. Kolbeinn Árnason. Aðsend / Atvinnuvegaráðuneytið Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Stefnt á 14,7 milljarða hagræðingu á árinu Áætluð hagræðing ráðuneytanna í fjárlögum ársins 2026 nemur samtals um 14,7 milljörðum króna. Ekki er hægt að svara til um áhrif einstakra tillagna starfshóps forsætisráðherra. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Mosfellsbær Stöðva borun í Skammadal vegna mengunar í Varmá Veitur eru hættar borframkvæmdum í Skammadal í bili meðan leitað er leiða til að koma í veg fyrir að mengun hljótist af þeim. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Telur að niðurstaðan hafi „legið í loftinu“ Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðiprófessor telur engin aug