- What: A shooting occurred at a train station in Switzerland
- Impact: Three people were injured
Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 31 mínútuERLENDAR FRÉTTIR Sviss Þrír særðir eftir hnífaárás á lestarstöð í Sviss Grétar Þór Sigurðsson Lestarstöðin í Winterthur er á meðal fjölförnustu lestarstöðva Sviss. Wikimedia Commons / Adrian Michael Maður særði þrjá með eggvopni á lestarstöð í borginni Winterthur í norðurhluta Sviss í morgun. Svissneska lögreglan hefur handtekið grunaðan árásarmann. Í tilkynningu lögreglu segir að árásin hafi verið gerð skömmu eftir klukkan hálf níu að staðartíma. Maðurinn sem var handtekinn er 31 árs gamall Svisslendingur. Tildrög árásarinnar eru til rannsóknar. Fyrir 1 mínútuINNLENDAR FRÉTTIR Austurland Bændur bregðast við snjókomu norðan og austanlands Fyrir 30 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Evrópusambandið Temu sektað um 30 milljarða króna fyrir að selja ólöglegar vörur innan Evrópusambandsins Kínverska netverslunin Temu þarf að greiða 30 milljarða króna sekt til Evrópusambandsins fyrir að passa ekki nógu vel upp á að ólöglegar og hættulegar vörur, þar á meðal fyrir börn, séu ekki seldar í aðildarríkjum ESB. Fyrir 59 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál „Mér voru afhent gögn sem ég hafði enga heimild til að fá aðgang að“ Embætti landlæknis afhenti karlmanni viðkvæmar upplýsingar um fjóra aðra þegar hann óskaði eftir afriti af eigin sjúkraskrá. Upplýsingarnar höfðu verið svertar en reyndust samt auðlesanlegar. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Verðbólgan er 5,1 prósent Ársverðbólga seig lítillega milli mánaða og fór úr 5,2 í 5,1 prósent. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Zelensky til Svíþjóðar Brynjólfur Þór Guðmundsson Volodomyr Zelensky, forseti Úkraínu, kemur til Svíþjóðar í dag. Sænski fjölmiðillinn Aftonbladet segir að heimsókn forsetans snúist um Saab Gripen herþotur. Blaðið hefur eftir heimildarmönnum sínum að Svíar ætli að gefa Úkraínustjórn nokkrar herþotur og að á sama tíma hefjist viðræður um kaup Úkraínumanna á fleiri Gripen-þotum. Slík kaup myndu Úkraínumenn fjármagna með láni frá Evrópusambandinu. Gripen er nýjasta tegund sænskra herþota, af nýjustu og fullkomnustu gerð orrustuþota. Gripen-herþota á Keflavíkurflugvelli í febrúar. Försvarsmakten/Swedish Armed Forces Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Telur Rússa reyna að leiða Evrópusambandið í gildru Utanríkismálastjóri ESB segir Rússa reyna að skapa ágreining innan þess með því að fá aðildarríki til að deila um hver eigi að leiða viðræður við Rússa um lok stríðsins í Úkraínu. Samstaða og innihald viðræðna skipti meira máli en hver taki þátt. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Svikull leyniþjónustumaður tekinn með milljarða í gulli Lögreglumenn fundu gullstangir að andvirði 40 milljóna dala á heimili handtekins yfirmanns hjá bandarísku leyniþjónustunni CIA. Maðurinn laug og falsaði upplýsingar til að fá starfið. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Útlit fyrir að umræða um þjóðaratkvæði klárist í dag Umræða um þingsályktunartillögu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið klárast líklega í dag. Beiðni um að allir þingmenn fengju aðgang að trúnaðargögnum utanríkismálanefndar um þjóðaratkvæðagreiðsluna var samþykkt í gær. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Þetta verða sérfræðingar RÚV á HM Heimsmeistaramót karla í fótbolta hefst 11. júní. Allir leikir mótsins verða sýndir beint á stöðvum RÚV og þeir svo gerðir upp í HM kvöldi. Þar verður valinn sérfræðingur í hverju sæti. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Gular viðvaranir vegna snjókomu Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir í fjórum landshlutum vegna snjókomu í dag og á morgun. Aðstæður á fjallvegum gætu orðið varasamar fyrir bíla á sumardekkjum. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Sjónvarpshandritshöfundurinn sem „spáði“ Trump forsetaembætti gefur sjálfur kost á sér Bandarískur handritshöfundur Simpsons-þáttanna sem „spáði“ fyrir um að Donald Trump yrði forseti hefur sjálfur boðað framboð eftir tvö ár. Hann er meðal fyrstu manna til að gefa kost á sér og kveðst „framsækinn Repúblikani“. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vestmannaeyjabær Einn fremsti sérfræðingur á sviði neðansjávargangagerðar til liðs við Eyjagöng Eyjagöng ehf. hafa gert samstarfssamning við norskan vísindamann sem er einn fremsti sérfræðingur heims á sviði neðansjávargangagerðar. Hann hefur áratuga reynslu og er ætlað að veita tæknilega ráðgjöf við undirbúning og hönnun eyjaganga. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ástralía Kona ákærð fyrir aðild að hryðjuverkasamtökunum sem kenna sig við íslamskt ríki Lögregluyfirvöld í Ástralíu hafa lagt fram ákæru gegn tæplega hálffertugri konu fyrir aðild að hryðjuverkasamtökunum sem kenna sig við íslamskt ríki og fyrir að hafa haldið inn á þekkt átakasvæði. Hundruð kvenna tóku svipaða ákvörðun fyrr á öldinni. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína Sendifulltrúi SÞ í málefnum Palestínu sett á svartan lista Bandaríkjanna að nýju Þvingunaraðgerðir Bandaríkjanna hafa verið endurvaktar gegn sérstökum sendifulltrúa Sameinuðu þjóðanna í málefnum Palestínu. Hún hefur gagnrýnt Ísraelsríki fyrir harðneskjulega framgöngu gegn Palestínumönnum á Gaza. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Ísraelsher gerir þungar árásir á innviði Hezbollah í Týros Markús Þ. Þórhallsson Ísraelsher hefur lagt til atlögu að hernaðarinnviðum Hezbollah-hreyfingarinnar nærri hafnarborginni Týros í suðurhluta Líbanon. Hér má sjá skemmdir eftir loftárás Ísraela á Týros 26. maí. EPA / Stringer Skömmu áður hafði herinn skipað íbúum að forða sér brott og halda sig fjarri vegna yfirvofandi árása. Ísraelsher kveðst í yfirlýsingu á samskiptamiðlinum Telegram nauðugur einn kostur að ráðast af hörku á Hezbollah. Líbanski ríkisfréttamiðillinn NNA greinir frá árásum á Týros auk svæða norðan við borgina þar sem eldar logi í byggingum. Týros er ein af elstu borgum heims og er á heimsminjaskrá UNESCO vegna þess. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kanada Carney boðar kaup á háþróuðum eftirlits- og öryggisbúnaði frá SAAB Stjórnvöld í Kanada hyggjast semja við SAAB um kaup á eftirlitskerfum og flugvélum. Bandarísk kerfi og flugvélar verða því ekki fyrir valinu. Forsætisráðherrann hefur sagst vilja draga úr þörf landsins fyrir hernaðarsamvinnu við Bandaríkin. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína Nýskipaður leiðtogi hernaðararms Hamas drepinn í loftárás Ísraelshers Nýskipaður leiðtogi hernaðararms Hamas var drepinn ásamt hluta fjölskyldu sinnar í loftárás á Gazaborg á þriðjudag. Ísraelsher hefur skipulega leitað fyrri foringja sveitanna uppi og drepið þá. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Bandaríkjaher gerði árás á hernaðarleg skotmörk í Íran Bandaríkjaher hefur gert árásir á hernaðarleg skotmörk í Íran sem hann segir ógna skipaferðum um Hormússund. Bandaríkjaforseti varar Ómana við afskiptum af siglingum um sundið. Írönsk stjórnvöld vilja samstarf við Óman. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Enn ósamið um hvernig ljúka eigi umræðunni — þingfundur að morgni Markús Þ. Þórhallsson Enn er ósamið á Alþingi um hvernig ljúka eigi umræðunni um þingsályktunartillögu utanríkisráðherra varðandi framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Boðað hefur verið til þingfundar í fyrramálið. RÚV / Ragnar Visage Þingfundi lauk klukkan tuttugu mínútur fyrir eitt í nótt eftir að þingmenn Miðflokksins ræddu sín á milli um þingsályktunartillöguna og aðildarumsóknina. Sú breyting var gerð á dagskrá þingsins eftir fund í forsætisnefnd í kvöld að þingfundur hefst klukkan hálf ellefu í fyrramálið. Dagurinn var ætlaður til nefndastarfa samkvæmt starfsáætlun, sem færast yfir á laugardag. 28. maí 2026 kl. 0:00INNLENDAR FRÉTTIR Orkumál Stefnt að því að ljúka við Suðurnesjalínu 2 í haust Forstjóri Landsnets segist ánægð með niðurstöðu Hæstaréttar sem hafnaði í dag kröfu landeigenda í Vogum um að ákvörðun um eignarnám á landi þeirra yrði felld úr gildi. Vonir standa til að framkvæmdum vegna Suðurnesjalínu 2 ljúki í haust. 27. maí 2026 kl. 23:42INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Nýr meirihluti boðar hagræðingar í Reykjavík Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks í Reykjavík stefnir að því að auka traust á borgarstjórn, láta af stjórnlyndi og ráðast í víðtækar stjórnkerfisbreytingar. 27. maí 2026 kl. 22:11ERLENDAR FRÉTTIR Náttúra Ástin páfagaukanna: eitt par hefur stækkað stofn í útrýmingarhættu svo um munar Ættstofn einhverrar sjaldgæfustu páfagaukategundar heims hefur vaxið stórlega undanfarið, ekki síst vegna dugnaðar eins pars á Nýja-Sjálandi. Á tveimur árum hafa þau eignast tugi unga, meira en tíunda hluta þekktrar stærðar stofnsins. 27. maí 2026 kl. 22:08INNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Nýliðar fengu þjálfun í Ráðhúsinu 16 nýir borgarfulltrúar taka til starfa í borgarstjórn í næstu viku. Þeir fengu innsýn í nýja starfið í Ráðhúsinu í dag. Nýliðadagar borgarstjórnar halda áfram fram á föstudag. 27. maí 2026 kl. 21:16ÍÞRÓTTIR Fótbolti Fyrsti Evróputitill Crystal Palace kominn í hús Crystal Palace mætti spænska liðinu Rayo Vallecano í úrslitaleik Sambandsdeildar Evrópu í kvöld. Aðeins eitt mark var skorað í leiknum og titillinn fór til Crystal Palace. 27. maí 2026 kl. 20:53ERLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Aðstoðarmaður Matthew Perry dæmdur í fangelsi Persónulegur aðstoðarmaður Matthew Perry hefur verið dæmdur í 41 mánaðar fangelsi eftir að hafa játað að sprauta leikarann með ketamíni með þeim afleiðingum að hann lést. Aðstoðarmaðurinn er sá fimmti og síðasti til að vera dæmdur í málinu. 27. maí 2026 kl. 20:27ERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Þarfir barna miklu meiri en hjálparsamtök geta annast Þarfir barna í heiminum eru miklu meiri en hjálparsamtök geta annast og mörg þeirra búa við krefjandi aðstæður, samkvæmt framkvæmdastjóra UNICEF. Þjóðarleiðtogar þurfi að gera betur. 27. maí 2026 kl. 19:52INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkos