- What: U.S. government discusses funding for domestic drone companies
- Impact: May affect the future of the U.S. drone industry
Bandarísk stjórnvöld eiga nú í viðræðum við fjölda bandarískra drónafyrirtækja um mögulega fjármögnun. Þetta kemur fram á vef WSJ en þar segir að markmiðið sé að efla innlenda framleiðslu og lækka kostnað við herdróna. Viðræðurnar eru einnig hluti af víðtækari stefnu yfirvalda um að styrkja bandaríska varnariðnaðinn og draga úr þörf á erlendri framleiðslu, sérstaklega frá Kína. Varnamálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur ekki enn tekið endanlega ákvörðun um fjárfestingar eða skilmála en meðal þeirra fyrirtækja sem yfirvöld líta til eru Performance Drone Works, Neros Technologies, og Sequoa Captal. Eitt fyrirtækjanna, Unusual Machines, er einnig á listanum en það félag selur íhluti í dróna og tengist jafnframt syni forsetans, Donald Trump Jr., þar sem hann er talinn upp sem ráðgjafi hjá fyrirtækinu.