Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ætlar að fækka lögreglustjóraembættum

Read Full Article →

Innlent | mbl | 28.5.2026 | 10:38 Ætlar að fækka lögreglustjóraembættum Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Dómsmálaráðherra áformar að fækka lögreglustjóraembættum úr níu í fjögur eða fimm. Unnið er að útfærslu breytinga þessa efnis í ráðuneytinu og áformað er að frumvarp sem kveður á um breytingarnar verði lagt fram á Alþingi með haustinu. Tilgangur breytinganna er að mynda stærri og öflugri embætti um land allt, en sameining lögregluembætta á suðvesturhorni landsins verður skoðuð sérstaklega. Svo segir í tilkynningu sem birtist á vef dómsmálaráðuneytisins í dag þar sem einnig kemur fram að ráðherrann hafi kynnt fyrirhugaðar breytingar á skipulagi lögreglunnar á fundi lögregluráðs fyrr í þessari viku. Þar kemur og fram að breytingarnar miði að því að styrkja lögregluna á landsvísu, efla löggæslu og bæta skilvirkni. Ráðherrann kynnti þessi áform sín í ríkisstjórn sl. föstudag. Lögreglustöðvum og starfsfólki á ekki að fækka Þar kemur og fram að breytingarnar eigi ekki að verða til þess að starfsfólki embættanna eða lögreglustöðvum fækki. „Þvert á móti er það áfram skýr vilji minn að efla löggæslu og halda áfram að fjölga lögreglumönnum. Markmiðið er skýrt; að til verði stærri og sterkari embætti,“ er haft eftir Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra í tilkynningunni á vef ráðuneytisins. Þar er einnig haft eftir ráðherranum að hún telji umræddar breytingar verða til hagsbóta fyrir lögreglu í landinu öllu sem og fyrir almenning. „Síðustu breytingar á skipulagi lögreglu voru gerðar fyrir rúmum tíu árum og nú er tími til að taka næsta skref. Verkefni lögreglu hafa breyst, samfélagið hefur breyst og við þurfum að styrkja embættin til framtíðar. Með þessu verða til öflugri lögregluembætti á landinu öllu sem geta betur tekist á við breyttan veruleika, bæði innanlands og á alþjóðavísu,“ er haft eftir dómsmálaráðherra. Fram kemur að ráðherrann leggi mikla áherslu á náið samráð í tengslum við skipulagsbreytingarnar. Af þeirri ástæðu hafi verið skipaður samráðshópur sem gegni lykilhlutverki við útfærslu þeirra. Í hópnum eiga sæti þau Drífa Kristín Sigurðardóttir, skrifstofustjóri á skrifstofu löggæslumála í dómsmálaráðuneytinu, Páll Winkel, ráðuneytisstjóri dómsmálaráðuneytisins, Halla Bergþóra Björnsdóttir ríkislögreglustjóri, Grímur Hergeirsson, formaður Lögreglustjórafélags Íslands, og Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Stöðva borframkvæmdir í Skammadal Unga stjarnan fékk áminningu frá NBA Þrír særðir eftir hnífaárás á svissneskri lestarstöð ESB-gögnin verða ekki kynnt almenningi Ætlar að fækka lögreglustjóraembættum Umræðan Hræðsluáróður um staðreyndir Fyrirspurn til Kristrúnar Frostadóttur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ari Edwald: „Mjög skrýtið“ Myndbirtingin var ekki ólögmæt Skaut tollgæsla á bifreið með barn innanborðs? „Meirihluti sem ég reyndi að mynda fyrir 15 mánuðum“ Mest lesið Í gær Í vikunni Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Andlát: Stefán Carlsson Segja Ísland ógna útgáfufrelsi Stakk mann og sló annan með járnröri í höfuðið Gistu í hylki í Perú Kynna ný gögn í Óshlíðarmálinu fyrir lögreglu Þingmenn fái aðgang að trúnaðargögnum um ESB Gular viðvaranir vegna snjókomu Versluninni Air verður lokað í Kringlunni Borgarlínustöðvar boðnar út Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Óbærileg ár fram undan Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri Fulltrúar þriggja flokka undirrita samning í Viðey Afhenti Daða 42 þúsund undirskriftir Búið er að finna konuna Ari Edwald: „Mjög skrýtið“ Gripinn við að sækja Fedex-sendingu í Hafnarfirði Þórarna nýr forstjóri Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Enginn mætti frá ríkisstjórninni „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Nýjast á mbl.is » Stöðva borframkvæmdir í Skammadal Unga stjarnan fékk áminningu frá NBA Þrír særðir eftir hnífaárás á svissneskri lestarstöð ESB-gögnin verða ekki kynnt almenningi Ætlar að fækka lögreglustjóraembættum Umræðan Hræðsluáróður um staðreyndir Fyrirspurn til Kristrúnar Frostadóttur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Til marks um metnaðar- og áhugaleysi Borgarlínustöðvar boðnar út Icelandair: Flugfarþegar þurfa ekki að hafa áhyggjur Selenskí bað Trump um fleiri skotfæri Mest lesið Í gær Í vikunni Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Andlát: Stefán Carlsson Segja Ísland ógna útgáfufrelsi Stakk mann og sló annan með járnröri í höfuðið Gistu í hylki í Perú Kynna ný gögn í Óshlíðarmálinu fyrir lögreglu Þingmenn fái aðgang að trúnaðargögnum um ESB Gular viðvaranir vegna snjókomu Versluninni Air verður lokað í Kringlunni Borgarlínustöðvar boðnar út Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Óbærileg ár fram undan Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri Fulltrúar þriggja flokka undirrita samning í Viðey Afhenti Daða 42 þúsund undirskriftir Búið er að finna konuna Ari Edwald: „Mjög skrýtið“ Gripinn við að sækja Fedex-sendingu í Hafnarfirði Þórarna nýr forstjóri Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Enginn mætti frá ríkisstjórninni „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“

Share this article