Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Dómgreindarskortur Sigmundar Davíðs

Read Full Article →

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, sagði í gær að hann hefði talið það til marks um að Sjálfstæðisflokkurinn í borginni hygðist fara í samstarf með Viðreisn að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins tók ekki þátt í málþófi vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar í gærkvöldi, líkt og Miðflokkurinn gerði. Týr hefur talið Sigmund Davíð meðal ærlegri stjórnmálamanna landsins, en þarna fór hann illa að ráði sínu. Það er nefnilega svo að Sjálfstæðisflokkurinn er sá flokkur á Alþingi sem hvað harðast hefur gagnrýnt þessa Evrópudelluvegferð ríkisstjórnarinnar. Á báðum opnum fundunum með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur í utanríkismálanefnd var það Diljá Mist Einarsdóttir sem hélt uppi gagnrýninni á málsmeðferðina og málflutning ráðherrans, enda ræddu allir fjölmiðlar við hana að fundum loknum. Þar var Sigmundur Davíð hvergi sjáanlegur. Þetta er því allt saman óskaplega ómaklegt hjá Sigmundi Davíð. Sigmundur ætti miklu frekar að velta því fyrir sér hvers vegna Hildur Björnsdóttir valdi ekki Miðflokkinn. Týr fullyrðir að stór ástæða þess sé einn maður - aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs sjálfs, sem Sigmundur fól að setja saman lista Miðflokksins í borginni. Björn Ingi Hrafnsson lýsti því yfir aftur og aftur að stórkostlegra tíðinda væri að vænta af framboðsmálum Miðflokksins í borginni. Stórkostlegra. Eftirvæntingin var því mikil. En svo var það bara Ari Edwald sem mætti til leiks. Alveg ágætur maður en ekki sá guð almáttugur sem Björn Ingi hafði boðað. Og hvers vegna í ósköpunum völdu þeir félagar Helga Áss Grétarsson, Kjartan Magnússon og ekki síst Mörtu Guðjónsdóttur á listann? Héldu þeir að þetta ágæta fólk myndi sækja svo mörg atkvæði? Varla. En þeir vissu, eða áttu að vita, að framganga þremenninganna hafði verið með þeim hætti að Hildur Björnsdóttir ætti mjög erfitt með að starfa með þeim - nokkurn tíma. Það var dómgreindarskortur hjá Sigmundi að velja Björn Inga, bæði sem aðstoðarmann sem og næstum einvald við val á listanum í Reykjavík. Á eftir Birni Inga er sviðin jörð gjaldþrota. Að ógleymdu REI-málinu, sem er líklega stærsta tilraun til spillingar í Reykjavíkurborg. En það var auðvitað allt saman bara Bakkusi að kenna. Sem formaður Miðflokksins hefði Sigmundur Davíð átt að sjá að hvað sem Snorri Másson sagði nákvæmlega í fánamálinu, þá skildi þorri almennings það svo að Miðflokkurinn styddi ekki réttindi samkynhneigðra. Hvers vegna leiðrétti Sigmundur Davíð þann misskilning ekki? Þessu nokkuð skylt er Týr þeirrar skoðunar að aðeins eigi að flagga íslenska fánanum fyrir utan ráðhúsið, stofnanir borgarinnar og aðrar opinberar byggingar, nema sérstakt tilefni sé til annars. Tilefnin geta verið mörg — sjálfstæðisdagur Úkraínu 24. ágúst eða hinsegin dagar 17. maí, svo dæmi séu tekin. Sigmundur Davíð ætti því ef til vill að líta sér nær þegar hann veltir því fyrir sér hvers vegna Hildur Björnsdóttir kýs að starfa ekki með Miðflokknum. Og rétt eins og það á að flagga réttum fánum, þá ætti Sigmundur að hætta að flagga kjánum - og bjánum. Týr er fastur dálkur í Viðskiptablaðinu.

Share this article