Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Icelandair framlengir flug til Færeyja

Read Full Article →

Icelandair hefur ákveðið að framlengja flug til Færeyja og verða eyjarnar nú heilsársáfangastaður í leiðakerfi félagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair en félagið hóf að fljúga til Færeyja í maí 2024. Flogið verður þrisvar sinnum í viku yfir vetrartímann, á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum. Flugið milli Íslands og Færeyja gegnir einnig mikilvægu hlutverki í að tengja Færeyjar við Norður-Ameríku í gegnum Ísland og hefur Icelandair fundið fyrir auknum áhuga á þeim tengingum, ekki síst frá bandarískum ferðamönnum sem vilja heimsækja bæði Ísland og Færeyjar í einni ferð. Sjá einnig Hluta­bréf Icelandair enn á niður­leið „Færeyjaflugið fór strax vel af stað og frá upphafi var markmiðið að stefna að flugi allt árið. Það er því mjög ánægjulegt að tilkynna um heilsársflug nú aðeins tveimur árum eftir að við byrjuðum að fljúga þangað. Færeyjar eru einstakur og vaxandi áfangastaður sem hefur upp á margt að bjóða fyrir okkar viðskiptavini,“ segir Tómas Ingason, framkvæmdastjóri tekju-, þjónustu- og markaðssviðs Icelandair.

Share this article