Nú styttist óðum í HM karla í fótbolta í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó. Mótið hefst 11. júní og stendur til 19. júlí. Allir 104 leikir mótsins verða sýndir beint á RÚV og RÚV 2. Hér eru upplýsingar um allt sem þú þarft að vita um mótið . Stofan hitar upp fyrir valda leiki og hver leikdagur er gerður upp á HM kvöldi. Edda Sif Pálsdóttir og Helga Margrét Höskuldsdóttir stýra skútunni og þeim til halds og traust verður einvalalið sérfræðinga: Eiður Smári Guðjohnsen, Arnar Gunnlaugsson, Adda Baldursdóttir, Óskar Hrafn Þorvaldsson og Albert Brynjar Ingason. Auk þess mæta fleiri þjóðþekktir sparkspekingar sem sérstakir leynigestir þegar líður á mótið.