Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gæti varið 20 milljörðum dala í næstu yfir­töku

  • What: JP Morgan CEO discusses potential acquisitions
  • Impact: Financial market speculation
Read Full Article →

Jamie Dimon, for­stjóri JP­Morgan Chase, segir að bandaríski banka­risinn gæti varið allt að 20 milljörðum dala í yfir­töku á næstu árum. Þetta kom fram í máli hans á ráð­stefnu fjár­mála­geirans í gær, sam­kvæmt Financial Times. Dimon sagði að á næstu árum gæti skapast tækifæri til að verja 10 til 20 milljörðum dala í kaup á félagi. Hann tók þó fram að verð væru há, þar á meðal á hluta­bréfum JP­Morgan sjálfs, og að bankinn væri þolin­móður í ráðstöfun fjár­magns. JP­Morgan er stærsti banki Bandaríkjanna eftir eignum og er markaðsvirði hans meira en 800 milljarðar dala. Dimon hefur byggt bankann upp með yfir­tökum, þar á meðal á Bear Stearns, Was­hington Mutu­al og First Repu­blic. Á síðustu árum hefur bankinn þó fremur horft til minni kaupa sem auðveldara er að fella inn í reksturinn. Dimon til­greindi ekki hvers konar félag JP­Morgan gæti keypt. Bankanum er að jafnaði óheimilt að kaupa annan inn­láns­banka í Bandaríkjunum þar sem hann er þegar með meira en 10% af inn­lánum landsins. Undanþága var þó veitt þegar JP­Morgan keypti First Repu­blic í stjórn­valds­stýrðu sölu­ferli eftir fall bankans. Dimon sagði að JP­Morgan hefði 40 til 50 milljarða dala í eigið fé um­fram kröfur eftir­lit­saðila. Sam­kvæmt FT hefur ríkis­stjórn Donalds Trump fylgt mildari stefnu gagn­vart fjár­mála­geiranum en áður og sýnt af­slappaðri af­stöðu til sam­keppnis­mála. Dimon sagði einnig að þóknana­tekjur JP­Morgan af fjár­festingar­banka­starf­semi stefndu í að verða um 10% hærri á öðrum árs­fjórðungi en á sama tíma í fyrra. Tekjur af við­skipta­starf­semi stefndu jafn­framt í að hækka um að minnsta kosti 11%. Hann sagði mikinn kraft vera á markaðnum. Sam­runa- og yfir­töku­markaðurinn væri einn sá sterkasti í mörg ár og hluta­fjárút­boð stefndu í að verða mikil á árinu. Á móti sagði Dimon að rekstrar­kostnaður bankans árið 2026 yrði lík­lega um einum milljarði dala hærri en áður var spáð, eða um 106 milljarðar dala. Kostnaðar­aukningin skýrðist að mestu af betri af­komu bankans.

Share this article