„Miðað við langt og alvarlegt tímabil brota held ég að það sé ekki hægt að segja að hann sé of þungur,“ Jenný Kristín Valberg, teymisstýra Bjarkarhlíðar, um dóm sem féll nýlega í Landsrétti. Karlmaður var sakfelldur í vikunni vegna ítrekaðra grófra kynferðisbrota gegn systur sinni og hlaut fjögurra ára skilorðsbundinn fangelsisdóm. Brotin voru framin árin 2003–2007. Konan sagði brotin hafa byrjað þegar hún var þriggja eða fjögurra. Maðurinn játaði að hafa brotið á henni áður en hann náði sakhæfisaldri en var sakfelldur fyrir brot sem hann framdi eftir að hann varð fimmtán. Jenný segist ekki muna eftir dómi þar sem svo langt líði frá því að slíkt brot er framið þangað til dæmt er. Hún bendir á að brotin hafi verið ítrekuð, gegn barni og yfir langt tímabil. „Almennt séð eiga brot á milli tengdra að vega þyngra en önnur brot vegna þess að það er brotin friðhelgi einkalífsins og öryggi barnsins er ekki til staðar þegar brotin eiga sér stað á heimili barns. Þannig að það á alltaf að vega þyngra.“ Hægt að ræða við lögreglu í Bjarkarhlíð Í dómnum kemur fram að konan hafi leitað til Stígamóta og síðar Bjarkarhlíðar þar sem hún hafi fyrst heyrt að brotin væru ekki fyrnd. Jenný segir að oft leiti þolendur til þeirra sem lentu í ofbeldi þegar þeir voru mjög ungir sem halda að brotin séu fyrnd. „Ég held að þetta sé mikilvægur dómur fyrir aðra þolendur til að þeir átti sig á því að ef þeir vilja fara þessa leið er hægt að gera það.“ Jenný bendir á að í Bjarkarhlíð sé hægt að komast í samband við lögreglu sem getur flett upp hvort brotið sé fyrnt eða ekki. Í Bjarkarhlíð taki lögreglan einnig við framburðum þegar brot er fyrnt. „Það er hægt að fá ráðgjöf og stuðning varðandi allar helstu leiðir sem fólk vill fara með mál sín hjá lögreglunni. Það er hægt að kæra, það er hægt að bóka málin, það er hægt að gera áhættumat og annað í málum sem það á við. Það er hægt að koma málum í alls konar farveg.“