Innlent | Morgunblaðið | 29.5.2026 | 9:45 Samtalið við þjóðina um ESB er hafið Fjölmenni var hjá Framsóknarflokknum á fyrsta fundinum í fundaröð vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar um viðræður við Evrópusambandið. Óskar Bergsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Varar við umgjörð Mikilvægum spurningum enn ósvarað „Þetta er góður tími“ „Ég mun segja nei 29. ágúst“ Fólk ekki upplýst um hvað taki við » Fleiri tengdar fréttir „Samtalið er hafið um eina mikilvægustu atkvæðagreiðslu í sögu þjóðarinnar. Við leggjum áherslu á upplýsta umræðu með breiðri skírskotun sem nær utan um alla þætti stjórnskipunar landsins og hættuna á enn frekara framsali á löggjafarvaldi til Brussels,” sagði Lilja Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokksins eftir fyrsta fundinn í fundaröð Framsóknarflokksins í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem verður 29. ágúst næstkomandi. „Við erum að hefja röð funda um allt land þar sem allir eru velkomnir og þessi fundur sýndi gríðarlegan áhuga fólks á umfjöllunarefninu. Við vorum með mjög öfluga frummælendur og fólkið sat lengi og umræðan var innihaldsrík.“ Frummælendur á fundinum voru Frosti Sigurjónsson fv. alþingismaður, Ögmundur Jónasson fv. ráðherra, Erna Bjarnadóttir hagfræðingur, Magnea Gná Jóhannsdóttir varaborgarfulltrúi og Sigurður Ingi Jóhannsson, alþingismaður og fv. formaður Framsóknarflokksins. Fundarstjóri var Lilja Alfreðsdóttir. Afsal á auðlindaforræði Fundurinn var fjölmennur og segir Lilja að umræðuefnið hafi verið víðtækt þar sem farið var yfir mikilvægi auðlindaforræðis þjóðarinnar, efnahagsmálin, auðlindamálin og lýðræðishugsjónir í anda Jóns Sigurðssonar. „Velmegun okkar grundvallast algjörlega á því að við getum nýtt auðlindir okkar til útflutnings í þágu allra landsmanna, sem er rauði þráðurinn í röksemdafærslu Framsóknarflokksins. Á EES-samningnum og því að ganga inn í Evrópusambandið er grundvallarmunur þar sem um er að ræða afsal á auðlindaforræði og framsal valds til Brussel.“ Lilja segir að innganga í ESB sé miklu meira en viðskiptasamningur og að margir helstu lögspekingar þjóðarinnar segi að stjórnarskrá Íslands heimili ekki þetta framsal sem spurt er um í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Aðrir munu semja fyrir okkur Frummælendur nálguðust umfjöllunarefnið með áherslu á mismunandi þætti. Magnea Gná ræddi um uppruna valds. Hvort það eigi að liggja fyrir utan landsteinana, eins og Evrópusambandsaðild auðvitað þýðir, eða hvort það eigi áfram að liggja hjá þjóðinni í þeim mæli sem það hefur gert og hefur reynst Íslendingum best. Frosti fór yfir mismunandi hagkerfi og benti á að þau ríki sem vegnað hefur best séu ríki sem hafa sjálfstæða peningastefnu og hafa meira um sín mál að segja heldur en minna. Hann fór líka yfir sveiflur á evru samanborið við aðra gjaldmiðla. Ögmundur fór yfir stöðu Íslands í dag og hversu langt við höfum náð sem samfélag og gerði að umtalsefni rök ESB-sinna um að fá sæti við borðið. Ef að því kæmi þá værum við í raun að missa sæti við borðið en ekki öðlast sæti. Sem dæmi þá nefndi hann að í stað þess að utanríkisráðherra Íslands semji fyrir hönd þjóðarinnar í fríverslunarsamningum ríkja þá verði það utanríkismálastjóri ESB sem gerir það fyrir okkur og við munum ekki sitja þar við borðið heldur verði það aðrir sem geri það fyrir okkur. Það eigi ekki bara við í stórum samningum heldur líka í samskiptum við alþjóðastofnanir þar sem við höfum getað lagt áherslu á sérstöðu okkar sem fámenns ríkis með miklar auðlindir og mikla auðlegð. Erna benti á mikilvægi tollverndar á landbúnaðarvörum og fæðuöryggis Íslands sem verður ekki til staðar ef tollverndin verður felld niður og á þessu sviði verði gjörbreyting. Sigurður Ingi lagði í sínu máli áherslu á að auðlindaforræði þjóðarinnar hefði skilað mikilli velmegun sem ekki mætti fórna. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Ísland og ESB Varar við umgjörð Mikilvægum spurningum enn ósvarað „Þetta er góður tími“ „Ég mun segja nei 29. ágúst“ Fólk ekki upplýst um hvað taki við » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Fimm drengir hlutu ágætiseinkunn frá Flensborgarskólanum Samtalið við þjóðina um ESB er hafið Deildi 64 færslum á einum klukkutíma Aron: Aðeins börnin og fjölskyldan mikilvægari Tristan skýtur bara púðurskotum í dag Umræðan Evruland og Krónuland Maður mjólkar ekki dauða kú Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þetta er góður tími“ Varar við umgjörð Segja Ísland ógna útgáfufrelsi Mikilvægum spurningum enn ósvarað Mest lesið Í gær Í vikunni Lést við barnsburð á Landspítalanum Veðurstofan varar við eldingaveðri og gul viðvörun gengur yfir Andlát: Stefán Jökulsson Sjaldgæfur 13. aldar forngripur fannst í Árbæ Kennari segir skóla án aðgreiningar ekki virka Varar við umgjörð „Ég mun segja nei 29. ágúst“ Þæfingsfærð á Fjarðarheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Víðir vill ekki tjá sig Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Andlát: Stefán Carlsson Kristrún: „Þetta hefur aldrei verið gert“ „Þetta eru alvarleg tíðindi“ Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segja Ísland ógna útgáfufrelsi Stakk mann og sló annan með járnröri í höfuðið Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Nýjast á mbl.is » Fimm drengir hlutu ágætiseinkunn frá Flensborgarskólanum Samtalið við þjóðina um ESB er hafið Deildi 64 færslum á einum klukkutíma Aron: Aðeins börnin og fjölskyldan mikilvægari Tristan skýtur bara púðurskotum í dag Umræðan Evruland og Krónuland Maður mjólkar ekki dauða kú Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óttast að atvinnulífið sé úr jafnvægi Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Umfangsmikil umbótavinna í kjölfar banaslyss Til marks um metnaðar- og áhugaleysi Mest lesið Í gær Í vikunni Lést við barnsburð á Landspítalanum Veðurstofan varar við eldingaveðri og gul viðvörun gengur yfir Andlát: Stefán Jökulsson Sjaldgæfur 13. aldar forngripur fannst í Árbæ Kennari segir skóla án aðgreiningar ekki virka Varar við umgjörð „Ég mun segja nei 29. ágúst“ Þæfingsfærð á Fjarðarheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Víðir vill ekki tjá sig Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Andlát: Stefán Carlsson Kristrún: „Þetta hefur aldrei verið gert“ „Þetta eru alvarleg tíðindi“ Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segja Ísland ógna útgáfufrelsi Stakk mann og sló annan með járnröri í höfuðið Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Loka