- What: New coalition formed in Reykjavik
- Impact: Potential changes in city governance
Innlent | Morgunblaðið | 29.5.2026 | 10:33 Breytingar boðaðar í borginni Nýr borgarstjórnarmeirihluti með Björgu Magnúsdóttur, Einar Þorsteinsson og Hildi Björnsdóttur í fararbroddi. mbl.is/Eggert Andrés Magnússon [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Hilmar Gunnarsson verður bæjarstjóri Sjálfstæðismenn semja við Samfylkingu Gylfi verður bæjarstjóri í Ísafjarðarbæ Myndbirtingin var ekki ólögmæt „Það verður ekkert hik á okkur“ » Fleiri tengdar fréttir Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks í Reykjavíkurborg ætlar sér ljóslega að breyta borginni frá þeirri stefnu, sem Samfylkingin hefur að mestu markað undanfarna áratugi. Samstarfssáttmáli flokkanna þriggja, sem kynntur var í gær, er ekki langur en greinilegt að nýi meirihlutinn lætur þar kveða við mun borgaralegri tón en ómað hefur í ráðhúsinu um langa hríð. Þar er mikil áhersla lögð á ráðdeild í rekstri, hagræðingu og aukið hlutverk einkaframtaks, stóraukið lóðaframboð og endurskoðun umdeildra samgöngu- og skipulagsákvarðana, án þess að láta félagslegar áherslur í málefnum barna, skóla, íþrótta og eldra fólks mæta afgangi. Róttækar kerfisbreytingar Í upphafi sáttmálans er talað um „ákall borgarbúa eftir breytingum“ og að ráðast þurfi í „róttækar breytingar á stjórnskipulagi og rekstri borgarinnar“. Minna fer hins vegar fyrir félagsverkfræði í loftslags-, skipulags- og samfélagsmálum eins og títt var í fyrri meirihlutasáttmálum í borginni. Nýi meirihlutinn boðar að nýta eigi tíma og fjármuni borgarinnar og borgaranna betur. Talsverð áhersla er lögð á þjónustu við fjölskyldur. Boðuð er „stórsókn í skólamálum“, mælanleg markmið um árangur í skólastarfi og aukna stoðþjónustu við börn. Þá skal auglýsa eftir samstarfi við vinnustaði um rekstur leikskóla eða daggæslu, virkja atvinnulífið til þess að rjúfa herkví í leikskóla- og daggæslumálum. Svipaða sögu má segja um sorphirðu, en bjóða á út sorphirðu í einu hverfi í tilraunaskyni, með það fyrir augum að undirbúa rekstrarútboð á allri sorphirðu eins og í nágrannasveitarfélögunum. Hins vegar sést að í samgöngumálum hefur þurft að leita málamiðlunar. Meirihlutinn vill leita „samtals“ við ríkisstjórnina og nágrannasveitarfélög um endurskoðun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, fjármögnun hans og framkvæmdahraða, án þess að farið sé út í mikil smáatriði eða jarðsprengjusvæði borgarlínunnar. En það er boðuð endurskoðun á umdeildu deiliskipulag við Suðurlandsbraut í samstarfi við hagaðila, og breytingar á gatnamótum við Höfðabakka á einnig að taka til skoðunar. Þá skal stytta gjaldskyldutíma bílastæða í Miðbænum. Svigrúm hins óljósa Allt eru þetta pólitískar stefnubreytingar, sem eflaust vísa veginn um fleira. Misveigamiklar hver og ein, og ekki of nákvæmlega greint frá því í hverju breytingar skuli felast. Að því leyti má segja að flokkarnir hafi skilið eftir mikið svigrúm um útfærslur og afleiðingar. Meirihlutinn ætlar að staldra ögn við í málefnum borgarlínu og umferðar, sem mestum deilum hafa valdið meðal íbúa og atvinnulífs, án þess þó að lýsa yfir algjörum viðsnúningi í almenningssamgöngum. En við blasir að ný stjórnvöld í borginni ætla sér ekki að breyta ferðavenjum borgaranna með góðu eða illu, heldur er áherslan á þjónustu og valfrelsi. Ástæða þessa almenna orðalags er þó sjálfsagt ekki síður sú, að meirihlutinn var myndaður á aðeins tveimur dögum og eigi því eftir hnýta ýmsa lausa enda. Eins og sést á því að flokkarnir geyma sér það til 2. júní að birta nákvæma verkefnaskrá á verkefnalisti.is, sem borgarbúar bíða ugglaust með óþreyju. Uppbygging nýrra hverfa Meirihlutinn er hins vegar mun afdráttarlausari í húsnæðis- og skipulagsmálum. Stórauka á húsnæðisuppbyggingu, breyta skipulagi nýrra hverfa í Keldnalandi og Úlfarsárdal og skipuleggja ný framtíðarhverfi á Kjalarnesi, Geldinganesi, Gufunesi og Granda. Það kann að reynast afdrifaríkasta stefnubreytingin í sáttmálanum, þar sem snúið er frá hinni dýru þéttingarstefnu í eldri hverfum, sem hefur verið við lýði mörg undanfarin ár með víðtækum afleiðingum um land allt, með nýjum hverfum, fleiri lóðum og þá ódýrara húsnæði. Boðuð er langþráð skattalækkun til Reykvíkinga með lækkun fasteignaskatta á bæði íbúðar- og atvinnuhúsnæði, en áformað að bæta samkeppnishæfni höfuðborgarinnar með því að styðja við atvinnulíf, menningu og skapandi greinar. Reykjavík eigi að vera „frjálslynd en ekki stjórnlynd“ og eigi „að mæta þörfum en ekki breyta þeim.“ Í því skyni á auðvitað að hafa sundlaugar borgarinnar opnar til tíu á kvöldin, sem einhvern veginn varð að hitamáli. Mjög að höfði Hildar Þegar samstarfssáttmálinn er borinn saman við kosningastefnu flokkanna þriggja blasir við að þar fær Sjálfstæðisflokkurinn flest af sínu fram í samræmi við ítarlega verkefnaskrá hans. Það má einnig finna eitt og annað úr stefnu Viðreisnar, ekki síst kannski í orðalagi. Það má vel sjá af áformum í leikskólamálum um fjölbreytt rekstrarform og dagvist frá lokum fæðingarorlofs. Það stangast ekki á við stefnu Sjálfstæðisflokksins, en orðfærið er frá Viðreisn. Framsókn fékk skýrasta sérmál sitt inn í sáttmálann með 60.000 kr. frístundastyrk fyrir tekjulágt eldra fólk, en einnig mætti nefna ýmis samgöngumál, sem komið er til móts við í sáttmálanum. Orðafroðan horfin Fæst af því sem í samstarfssáttmálanum er kemur á óvart, en hugsanlega má meira lesa í það sem vantar. Þar er hlaupið yfir loftslagsmarkmið, fjölmenningu, hinseginfræðslu og fleiri dyggðamál Viðreisnar. Hann er heldur ekki jafnafdráttarlaus í einstökum umferðar- og miðborgarmálum og Sjálfstæðisflokkurinn útmálaði í kosningastefnu sinni, hver sem raunin verður í verkefnalistanum. Að því leyti má segja að samstarfið snúist um praktísk verkefni borgarinnar, sem kemur vel heim og saman við orð oddvita um að þeir verði dæmdir af verkum sínum. En orðafroða fyrri áratuga, hún er á bak og burt. Það er þá breyting! Samstarfssáttmáli Breiðar strokur Samstarfssáttmáli nýja meirihlutans í borgarstjórn Reykjavíkur er stuttur og ekki tæmandi, en tekið er fram að ítarlegri verkefnalisti verði gerður aðgengilegur þriðjudaginn 2. júní. Um sumt er hann líka eilítið óljós, boðar endurskoðun, kortlagningu og breytingar á ýmsu án þess að greina frá því í hvaða veru. En hann er skýr um grundvallarbreytingar á stjórnkerfi og rekstri borgarinnar og að skipulags- og samgöngumál verði tekin upp. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Hilmar Gunnarsson verður bæjarstjóri Sjálfstæðismenn semja við Samfylkingu Gylfi verður bæjarstjóri í Ísafjarðarbæ Myndbirtingin var ekki ólögmæt „Það verður ekkert hik á okkur“ » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Taka undir tíðindin um leikmann Liverpool Braut gegn lögum og dvaldi ólöglega á landinu Gagnadrifin raforkuviðskipti lykill að samkeppnishæfni Verkefni sem skilar tæpum milljarði á Suðurlandi Lota í breyttu orkulandslagi Umræðan Evruland og Krónuland Hvað felst í aðild? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Til marks um metnaðar- og áhugaleysi Sjaldgæfur 13. aldar forngripur fannst í Árbæ „Þetta er góður tími“ Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Mest lesið Í gær Í vikunni Lést við barnsburð á Landspítalanum Veðurstofan varar við eldingaveðri og gul viðvörun gengur yfir Andlát: Stefán Jökulsson Sjaldgæfur 13. aldar forngripur fannst í Árbæ Einn fluttur á slysadeild eftir harðan árekstur Kennari segir skóla án aðgreiningar ekki virka Skoðað að taka upp klippikort Varar við umgjörð „Ég mun segja nei 29. ágúst“ Þæfingsfærð á Fjarðarheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Víðir vill ekki tjá sig Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Andlát: Stefán Carlsson Kristrún: „Þetta hefur aldrei verið gert“ „Þetta eru alvarleg tíðindi“ Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segja Ísland ógna útgáfufrelsi Stakk mann og sló annan með járnröri í höfuðið Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Lést við barnsburð á Landspítalanum „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Nýjast á mbl.is » Taka undir tíðindin um leikmann Liverpool Braut gegn lögum og dvaldi ólöglega á landinu Gagnadrifin raforkuviðskipti lykill að samkeppnishæfni Verkefni sem skilar tæpum milljarði á Suðurlandi Lota í breyttu orkulandslagi Umræðan Evruland og Krónuland Hvað felst í aðild? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þetta er góður tími“ Mikilvægum spurningum enn ósvarað Haustið ber með sér óvissu Veðurstofan varar við eldingaveðri og gul viðvörun gengur yfir Mest lesið Í gær Í vikunni Lést við barnsburð á Landspítalanum Veðurstofan varar við eldingaveðri og gul viðvörun gengur yfir Andlát: Stefán Jökulsson Sjaldgæfur 13. aldar forngripur fannst í Árbæ Einn fluttur á slysadeild eftir harðan árekstur Kennari segir skóla án aðgreiningar ekki virka Skoðað að taka upp klippikort Varar við umgjörð „Ég mun segja nei 29. ágúst“ Þæfingsfærð á Fjarðarheiði