Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Seldi allan hlut sinn í Reitum á 3,9 milljarða

Read Full Article →

Fjár­festingafélagið Kjölur hefur selt allan hlut sinn í Reitum fyrir tæp­lega 3,9 milljarða króna. Þetta kemur fram í um­fjöllun Inn­herja. Kjölur var einn stærsti einka­fjár­festirinn í Reitum, sem er stærsta fast­eignafélagið í Kaup­höllinni að markaðsvirði. Við­skipti með 31,75 milljónir hluta í Reitum gengu í gegn fyrir opnun markaða í morgun á genginu 122 krónur á hlut. Það jafn­gildir tæp­lega 3,9 milljörðum króna að markaðsvirði og er um 1,7% yfir dagsloka­gengi Reita í gær. Sam­kvæmt Inn­herja var það Kjölur sem stóð að baki sölunni. Arcti­ca Finance hafði um­sjón með við­skiptunum og kaup­endur bréfanna voru einkum líf­eyris­sjóðir Salan jafn­gildir um 4,5% hlut í Reitum. Kjölur er í jafnri eigu við­skipta­félaganna Guð­mundar Inga Jóns­sonar og Þor­láks Trausta­sonar og hefur verið í hópi stærstu einka­fjár­festa Reita um ára­bil. Vitað hefur verið um áhuga Kjalar á að selja í Reitum um nokkurt skeið. Fjár­festingafélagið minnkaði hlut sinn í félaginu í mars þegar það seldi bréf fyrir 870 milljónir króna. Salan þá kom í kjölfar þess að Guð­mundur Ingi dró fram­boð sitt til stjórnar Reita til baka. Hann var ósáttur við hvernig staðið var að ákvörðun um hver tæki við stjórnar­for­mennsku í félaginu. Fyrir aðal­fund Reita lá fyrir að Þórarinn Viðar Þórarins­son, sem hafði verið stjórnar­for­maður um ára­bil, myndi ekki gefa kost á sér áfram. Guð­mundur Ingi hafði haft augastað á því að taka við for­menns­kunni. Niður­staðan varð hins vegar sú að Árni Sigur­jóns­son, lög­fræðingur hjá JBT-Marel og fyrr­verandi stjórnar­for­maður Sam­taka iðnaðarins, kom nýr inn í stjórn Reita fyrir til­stuðlan Gildis líf­eyris­sjóðs og var í kjölfarið gerður að stjórnar­for­manni. Á aðal­fundi Reita í mars sagði Guð­mundur Ingi að hann hygðist minnka stöðu sína í félaginu frekar, en aðeins ef gengi bréfanna væri ásættan­legt. Sjá einnig Guð­mundur selur í Reitum fyrir 870 milljónir „Ég hef þegar selt eitt pró­sent af mínum hlut og hef hugsað mér að selja meira, en það tók mig sex ár að safna þessum hlutum í Reitum. Ég er ekki að fara að selja þessa hluti á ein­hverri útsölu vegna þess að Reitir eru frábært félag. Ég tel að það sé stór­lega van­metið núna,“ sagði Guð­mundur á aðal­fundinum. Á fundinum gagn­rýndi Guð­mundur jafn­framt fram­göngu líf­eyris­sjóða í hlut­hafa­hópi Reita og beindi spjótum sínum sér­stak­lega að Gildi. Hann sagði líf­eyris­sjóðinn hafa þröngvað sjónar­miðum sínum á stjórn þegar kom að vali á stjórnar­for­manni. Langstærsti hlut­hafi Reita fyrir sölu Kjalar var Gildi með ríf­lega 19% hlut. Þar á eftir komu Líf­eyris­sjóður verslunar­manna með 11,5% og LSR með yfir 10%. Fjár­festingafélagið Brim­garðar, í eigu Mata-fjöl­skyldunnar, er stærsti einka­fjár­festirinn í Reitum með ríf­lega 9% hlut, bæði í eigin nafni og í gegnum fram­virka samninga. Þar sem Brim­garðar eru ráðandi hlut­hafi í Eik, öðru skráðu fast­eignafélagi, hefur félagið hins vegar engin ítök í stjórn Reita. Sjá einnig „Ég er ekki að fara að selja þessa hluti á ein­hverri útsölu“

Share this article