Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Sauðfé í skjól undan éljagangi og kornbændur vona að ekki frysti

Read Full Article →

Vetrarfærð er á fjallvegum um landið norðaustan- og austanvert. Bændur hafa orðið að hýsa sauðfé og kornbændur vona að veðrið gangi hratt yfir. Snemmsumar er viðkvæmur tími í ýmiss konar útiræktun. Júníhret síðustu tvö ár fór illa með kornbændur víða um landið norðanvert og miðað við spákortin var óvíst hvort akrarnir myndu fölna þriðja árið í röð. Hjólreiðamaður á Borgarfirði eystra sendi fréttastofu þetta myndband af færðinni á Vatnsskarði í morgun: Hálka, snjóþekja eða krapi er á fjallvegum austanlands og gul viðvörun í gildi fram á kvöld. Bændur í kornrækt segjast vongóðir um að uppskeran sleppi, hretið sé ekki eins slæmt og í fyrra. Haukur Marteinsson, kúa- og kornbóndi í Þingeyjarsveit, segist telja að þetta sleppi til hjá flestum - en samkvæmt spánni tekur að hlýna nú um helgina. „Í fyrra lentum við í því að það var svo ofboðsleg úrkoma að það hreinlega bara skolaðist úr ökrunum næringarefni og við sáum bara næringarskorts einkenni á bygginu og korninu og grasi líka“, segir Haukur. „Núna virðist þetta nú ætla að vera vægara, mun minni úrkoma og ekkert mikið frost í kortunum. Auðvitað misjafnt eftir því hvar akrarnir eru og bæirninr eru í hæð frá sjávarmáli, hvaða hitastig er. En þetta virðist allt ætla að sleppa til held ég.“ Sauðfjárbændur reyna að hýsa eða koma fé í skjól Sauðfjárbændur norðan- og austan til hafa orðið að koma lambfé í skjól undan snjókomu, en flestir virðast hafa haldið fjárstofnum sínum nærri þegar ljóst var orðið í hvað stefndi. Á bænum Desjarmýri við Borgarfjörð eystra er staðan svona: Þeir sem ætla að vera á ferðinni um fjallvegi norðaustan- og austanlands í dag ættu að fylgjast vel með færð og veðri, um hádegisbil er víða hálka, snjókoma eða krapi á leiðum milli byggða. Veðrinu á að slota með kvöldinu og síðustu viðvaranir falla úr gildi klukkan ellefu.

Share this article