Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Segja kostnaðinn við krónuna líklega meiri en ábatann

Read Full Article →

Innlent | mbl | 29.5.2026 | 13:38 | Uppfært 15:48 Segja kostnaðinn við krónuna líklega meiri en ábatann Skýrslan er skrifuð af hópi erlendra sérfræðinga undir stjórn Catherine L. Mann, fyrrverandi aðalhagfræðings OECD, sem situr í peningastefnunefnd seðlabanka Evrópu. mbl.is/Kristinn Ingvarsson Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Ekki gert ráð fyrir aðildarviðræðum í fjárlögum Samtalið við þjóðina um ESB er hafið Varar við umgjörð Mikilvægum spurningum enn ósvarað „Þetta er góður tími“ » Fleiri tengdar fréttir Kostnaður við að halda úti íslensku krónunni er líklega meiri en sá ábati sem af henni hlýst. Þetta er niðurstaða sérfræðingahóps sem Daði Már Kristófersson, varaformaður Viðreisnar og fjármála- og efnahagsráðherra, fól að vinna skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að skýrslunni sé ætlað að leggja grunn að upplýstri umræðu um framtíðarfyrirkomulag gjaldmiðlamála hér á landi. Efnt er til ráðstefnu af þessu tilefni þriðjudaginn 2. júní. Hópnum var falið að meta kosti og galla sjálfstæðs gjaldmiðils í samanburði við aðild að stærra gjaldmiðlasvæði, svo sem evrusvæðinu. „Helstu niðurstöður skýrslunnar eru að kostnaðurinn við íslensku krónuna sé verulegur og líklega að jafnaði meiri en sá ábati sem fylgir sjálfstæðum gjaldmiðli. Höfundar telja að gengi krónunnar sé ekki til þess fallið að stuðla að efnahagslegum stöðugleika, nema í stóráföllum og að gengissveiflur hafi oft fremur magnað en dregið úr áhrifum efnahagsskella,“ segir í tilkynningunni. Kostir og gallar Þá segir að upptaka evru geti haft í för með sér lægri vexti, minni viðskiptakostnað, aukinn stöðugleika og betri aðgang að fjármálamörkuðum. Á móti er bent á að upptaka evru fæli í sér að Ísland gæfi upp sjálfstæða peningastefnu. Þá myndi aukin ábyrgð færast yfir á ríkisfjármál, vinnumarkað og aðra hagstjórn til að tryggja stöðugleika. Umbætur á vinnumarkaði eru taldar nauðsynlegar óháð fyrirkomulagi gengismála. Slíkar umbætur væru þó forsenda farsællar aðildar að myntbandalagi, að mati skýrsluhöfunda. Skýrslan er skrifuð af hópi erlendra sérfræðinga undir stjórn Catherine L. Mann, fyrrverandi aðalhagfræðings OECD, sem situr í peningastefnunefnd seðlabanka Evrópu. Einnig voru í hópnum Hilde Christiane Bjørnland, prófessor við Norska viðskiptaháskólann, Steinar Holden, prófessor við Háskólann í Osló, og Stijn Claessens, fyrrverandi aðstoðarframkvæmdastjóri hagfræðisviðs Alþjóðagreiðslubankans, BIS, sem nú starfar við Yale-háskóla. Skýrsluna má finna hér . Ráðstefna opin öllum í Hörpu 2. júní Fjallað verður um efni skýrslunnar á opinni ráðstefnu í Hörpu þann 2. júní næstkomandi. Catherine L. Mann, sem fer fyrir hópi skýrsluhöfunda, mun gera grein fyrir helstu niðurstöðum og taka þátt í pallborði. Þá munu Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra og Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri flytja ávarp. Einnig verður ávarp frá ECB seðlabanka Evrópu. Að loknum ávörpum verða haldnar pallborðsumræður. Tengdar fréttir Ísland og ESB Ekki gert ráð fyrir aðildarviðræðum í fjárlögum Samtalið við þjóðina um ESB er hafið Varar við umgjörð Mikilvægum spurningum enn ósvarað „Þetta er góður tími“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Daði tjáir sig um símtalið við Hildi Farþegar aldrei verið fleiri Spyr hvort staða Landsbókasafns sæmi þjóðinni Myndir: Mikil stemning við forsýningu á nýjum Mercedes-Benz Vara við vanmerktum ofnæmisvöldum í próteinstykki Umræðan Evruland og Krónuland Maður mjólkar ekki dauða kú Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Margt jákvætt í nýjum verðbólgutölum Breytingar boðaðar í borginni Varar við umgjörð Haustið ber með sér óvissu Mest lesið Í gær Í vikunni Lést við barnsburð á Landspítalanum Inga farin í veikindaleyfi Veðurstofan varar við eldingaveðri og gul viðvörun gengur yfir Andlát: Stefán Jökulsson Einn fluttur á slysadeild eftir harðan árekstur Inga Sæland: Vonast til að verða ekki lengi frá Búast má við töfum á landamærum Skoðað að taka upp klippikort Andlát: Aðalsteinn Bergdal Sjaldgæfur 13. aldar forngripur fannst í Árbæ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Víðir vill ekki tjá sig Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Andlát: Stefán Carlsson Kristrún: „Þetta hefur aldrei verið gert“ „Þetta eru alvarleg tíðindi“ Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segja Ísland ógna útgáfufrelsi Stakk mann og sló annan með járnröri í höfuðið Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Lést við barnsburð á Landspítalanum Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Nýjast á mbl.is » Daði tjáir sig um símtalið við Hildi Farþegar aldrei verið fleiri Spyr hvort staða Landsbókasafns sæmi þjóðinni Myndir: Mikil stemning við forsýningu á nýjum Mercedes-Benz Vara við vanmerktum ofnæmisvöldum í próteinstykki Umræðan Evruland og Krónuland Maður mjólkar ekki dauða kú Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Meiðyrðamáli foreldranna vísað frá „Sýnir að þessar slár eru að gera sitt gagn“ Varar við umgjörð Óttast að atvinnulífið sé úr jafnvægi Mest lesið Í gær Í vikunni Lést við barnsburð á Landspítalanum Inga farin í veikindaleyfi Veðurstofan varar við eldingaveðri og gul viðvörun gengur yfir Andlát: Stefán Jökulsson Einn fluttur á slysadeild eftir harðan árekstur Inga Sæland: Vonast til að verða ekki lengi frá Búast má við töfum á landamærum Skoðað að taka upp klippikort Andlát: Aðalsteinn Bergdal Sjaldgæfur 13. aldar forngripur fannst í Árbæ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Víðir vill ekki tjá sig Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Andlát: Stefán Carlsson Kristrún: „Þetta hefur aldrei verið gert“ „Þetta eru alvarleg tíðindi“ Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segja Ísland ógna útgáfufrelsi Stakk mann og sló annan með járnröri í höfuðið Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Lést við barnsburð á Landspítalanum Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Loka

Share this article