Fréttamiðillinn BBC greindi frá því í vikunni að þjórfémenning bandarískra ferðamanna væri farin að dreifast víða um heim. Hefðin um að gefa þjórfé er rótgróin í Bandaríkjunum en mikil umræða hefur verið undanfarin ár og telja margir þjórfémenninguna komna út í öfgar. Í flestum bandarískum stórborgum þar sem boðið er upp á borðþjónustu hefur tíðkast að gefa 15-20% þjórfé. Sífellt fleiri staðir, sem bjóða litla sem enga aukaþjónustu, hafa hins vegar tekið upp á því að biðja viðskiptavini um þjórfé. Verslanir, bakarí og bensínstöðvar eru meðal þeirra staða sem hafa tekið upp á því að biðja um þjórfé og hafa margir rekist á beiðni um þjórfé við sjálfsafgreiðslukassa. BBC segir að þessi menning hafi nú fært sig yfir til Íslands og minnist á fjölda bandarískra ferðamanna sem koma til landsins. Árið 2010 heimsóttu 50.810 bandarískir ferðamenn Ísland en á síðasta ári voru þeir orðnir 660.114. Sjá einnig Hættir við 15% þjónustugjaldið Talskona frá Eflingu ræddi við BBC og segir að þessi þróun hafi orðið til þess að fjöldi veitingastaða hér á landi spyrji nú viðskiptavini hvort þeir vilji bæta þjórfé við reikninginn. Sú beiðni fari þó fyrir brjóstið á mörgum Íslendingum. „Þjórfé hefur ekki verið hluti af íslenskri hefð vegna þess að hér hefur lengi ríkt samfélagssátt um að atvinnurekendur beri ábyrgð á því að greiða starfsfólki sínu mannsæmandi laun.“ Ferðamenn frá Bandaríkjunum gera hins vegar ráð fyrir að þjórfé sé eðlilegur hluti af þjónustu. Sum greiðslukerfi eru nú forrituð þannig að þau biðji sjálfkrafa viðskiptavini um að velja upphæð fyrir þjórfé. „Flestum á Íslandi finnst ekki eðlilegt að greiða aukalega ofan á hátt verðlag, til dæmis þegar verið er að kaupa sér drykk á bar.“