Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Íhugar að kynna samningsmarkmið

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 30.5.2026 | 11:00 Íhugar að kynna samningsmarkmið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson Andrea Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Óræð niðurstaða um krónu og evru Segja kostnaðinn við krónuna líklega meiri en ábatann Ekki gert ráð fyrir aðildarviðræðum í fjárlögum Samtalið við þjóðina um ESB er hafið Varar við umgjörð » Fleiri tengdar fréttir Þegar Alþingi samþykkti þingsályktun um aðildarviðræður við ESB í vikunni var ljóst að mörgum þingmönnum þótti enn mörgum spurningum ósvarað eða a.m.k. óskýrt svarað. Blaðamaður náði stuttlega tali af Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur að loknum ríkisstjórnarfundi í gær og spurði út í nokkur álitaefni sem helst brunnu á þingmönnum í þessum efnum. Á meðal þess sem þótti óljóst voru svör ráðherrans um gildi ESB-réttarins. Spurð hvort einhver vafi leiki á því að ESB-rétturinn muni gilda hér á landi og ganga framar íslenskri löggjöf og stjórnarskrá, gangi Ísland í ESB, segir Þorgerður Katrín: „Það er alltaf verið að reyna að festa okkur í einhverjum setningum sem síðan er hægt að grípa til. Mér finnst ekki hægt að ræða nákvæmlega þetta nema í samhengi við samning.“ Má skilja svar þitt á þá leið að þú teljir mögulegt að fá undanþágur frá gildi ESB-réttarins á Íslandi við inngöngu? „Sáttmáli Evrópu hefur ekki breyst en hins vegar hafa vinnubrögð og nálgun meðal annars framkvæmdastjórnarinnar á umliðnum árum og síðustu misserum breyst. Við erum að sjá hina ýmsu framkvæmdastjóra eins og bara síðast sjávarútvegskommissarinn, sem segir alveg skýrt að það sé ýmislegt sem um er að semja, þannig að mér finnst mestu skipta hver niðurstaðan úr samningi yrði fyrir Ísland. Þar sjáum við raunverulega hvernig hagsmuna okkar hefur verið gætt.“ Setja fram ýtrustu kröfur Annað sem þingmenn stjórnarandstöðu virðast hafa áhyggjur af er að í meirihlutaáliti utanríkismálanefndar, þar sem fjallað er um samningsmarkmið, sé ekki með skýrum hætti kveðið á um fullt og óskorað vald Ísland yfir auðlindum sínum, þá sérstaklega sjávarútvegsauðlindinni. Hvar liggur rauða línan, er möguleiki á því að þið séuð að fara að gefa eitthvað eftir þar? „Við munum fara fram með ýtrustu kröfur, ég hef sagt það og ég mun ekki skrifa undir samning sem gengur gegn þeim.“ Hvað felst í „ýtrustu kröfum“? „Ýtrustu kröfur eru að við höfum yfirstjórn yfir fiskveiðunum, að við stjórnum þessu af því að við erum með gott fiskveiða- og stjórnunarkerfi og eins og ég segi, hér er sérstaða okkar algjör. Það hefur ekkert ríki eins og Ísland, þungavigtarríki í sjávarútvegsmálum, sótt um aðild að Evrópusambandinu. Það er ekkert hægt að bera saman aðrar þjóðir, með fullri virðingu fyrir þeim, hvort sem það eru Írar eða Spánverjar eða Bretar á sínum tíma. Okkar sérstaða er algjör þegar kemur að sjávarútvegsmálum og ég bind vonir við að framkvæmdastjórnin sjái það að það sé nú ekki gott að hrófla mjög við sterku og sjálfbæru fiskveiðistjórnarkerfi. Miklu frekar fyndist mér að að framkvæmdastjórnin ætti að líta til þessa kerfis okkar sem ákveðinnar fyrirmyndar í því að stjórna fiskveiðum.“ Maður hugsar óhjákvæmilega til Íra sem lentu í því að þegar á reyndi var undanþága sem þeir höfðu vegna fiskveiða virt að vettugi. Hvernig verður hægt að tryggja að undanþágur sem Ísland fengi verði virtar þegar á reynir? „Hér þykir mér verið að bera saman epli og appelsínur, en hitt er síðan að það er líka í grunnreglum Evrópusambandsins regla um hlutfallslegan stöðugleika. Þetta snýst allt um það hverjir mega veiða hér innan landhelginnar og hér hafa ekki erlend fiskiskip fengið að veiða nema gegn samningum, eins og til að mynda Færeyingar hafa á grunni fiskveiðistjórnunarsamnings á milli landanna fengið að veiða ákveðinn hluta botnfisksins sem er skilgreindur í samningnum. Þessi regla um hlutfallslegan stöðugleika mun ekki á neinn hátt opna eitt eða neitt hingað til Íslands.“ Þakkar stjórnarandstöðunni Breytingartillaga minnihluta um að samningsmarkmið verði kynnt fyrir þjóðinni ekki seinna en mánuði fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu var felld af meirihlutanum. Kemur ekki til greina að kynna samningsmarkmið tímanlega fyrir þjóðinni þannig hún sé upplýst um hvað umboðið sem þið sækist eftir felur í sér? „Ég vil bara fyrst þakka stjórnarandstöðunni fyrir að treysta ríkisstjórninni til að setja sjálf samningsmarkmiðin og í öðru lagi vil ég þakka stjórnarandstöðunni fyrir að draga fram samningsmarkmið. Það segir manni það að þau gera þá ráð fyrir því að það sé um eitthvað að semja af því að þau láta stundum þannig að það sé ekki um neitt að semja og eru með alls konar dómsdagsspár. Hitt er síðan að það er alveg skýrt að bæði samningsmarkmiðin og viðmiðin koma mjög skýrt fram, bæði í greinargerðinni með þingsályktuninni en ekki síður á því hvernig hvernig meirihluti utanríkismálanefndar einmitt dregur fram samningsmarkmiðin í áliti sínu.“ Meirihlutaálitið telur 50 síður og kannski ólíklegt að öll þjóðin muni rýna það. Er það ekki ábyrgðarhluti í þágu upplýstrar umræðu að samningsmarkmiðin verði dregin fram og kynnt almennilega fyrir þjóðinni áður en hún gengur til atkvæðagreiðslu? „Það getur vel verið að við gerum það. Það getur líka vel verið að við drögum fram sérstaklega sjötta kaflann í nefndarálitinu þar sem farið er yfir samningsmarkmiðin.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Ísland og ESB Óræð niðurstaða um krónu og evru Segja kostnaðinn við krónuna líklega meiri en ábatann Ekki gert ráð fyrir aðildarviðræðum í fjárlögum Samtalið við þjóðina um ESB er hafið Varar við umgjörð » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Slot rekinn frá Liverpool Annar leikmaður frá Val til Stjörnunnar Nýr grunur í máli Anne Elisabeth Hagen Íhugar að kynna samningsmarkmið Halla fékk daumavinnuna hjá Loro Piana Umræðan Staðalbúnaður tungumálsins Óhreina tauið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Leggja línurnar um lágmarksbirtu í nýbyggingum Búast má við töfum á landamærum Spyr hvort staða Landsbókasafns sæmi þjóðinni Haustið ber með sér óvissu Mest lesið Í gær Í vikunni Tekur undir orð Bjarna Myndband: Handtaka í Hveragerði „Grunsamleg háttsemi“ við grunnskóla Timburdekkið lagt niður Hluthafar greiði launin Skatturinn slæm ákvörðun en Ísland nái sér á strik Svarar gagnrýni kennara: „Niðurstaðan stendur“ Líkur á að kjarasamningar bresti Vill selja Landsbankann vegna samgöngusáttmálans Breyta fánareglum Reykjavíkurborgar Lést við barnsburð á Landspítalanum Inga farin í veikindaleyfi Eldri hjón unnu 336 milljónir Myndband: Handtaka í Hveragerði Veðurstofan varar við eldingaveðri og gul viðvörun gengur yfir Inga Sæland: Vonast til að verða ekki lengi frá Andlát: Stefán Jökulsson Séra Kristján segir af sér vegna meints brots Einn fluttur á slysadeild eftir harðan árekstur Daði tjáir sig um símtalið við Hildi Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Nýjast á mbl.is » Slot rekinn frá Liverpool Annar leikmaður frá Val til Stjörnunnar Nýr grunur í máli Anne Elisabeth Hagen Íhugar að kynna samningsmarkmið Halla fékk daumavinnuna hjá Loro Piana Umræðan Staðalbúnaður tungumálsins Óhreina tauið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Haustið ber með sér óvissu Meiðyrðamáli foreldranna vísað frá Fá loksins fund um gullhúðunina Íhugar að kynna samningsmarkmið Mest lesið Í gær Í vikunni Tekur undir orð Bjarna Myndband: Handtaka í Hveragerði „Grunsamleg háttsemi“ við grunnskóla Timburdekkið lagt niður Hluthafar greiði launin Skatturinn slæm ákvörðun en Ísland nái sér á strik Svarar gagnrýni kennara: „Niðurstaðan stendur“ Líkur á að kjarasamningar bresti Vill selja Landsbankann vegna samgöngusáttmálans Breyta fánareglum Reykjavíkurborgar Lést við barnsburð á Landspítalanum Inga farin í veikindaleyfi Eldri hjón unnu 336 milljónir Myndband: Handtaka í Hveragerði Veðurstofan varar við eldingaveðri og gul viðvörun gengur yfir Inga Sæland: Vonast til að verða ekki lengi frá Andlát: Stefán Jökulsson Séra Kristján segir af sér vegna meints brots Einn fluttur á slysadeild eftir harðan árekstur Daði tjáir sig um símtalið við Hildi Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað

Share this article