- What: Discussion about a secret room in the Icelandic Parliament
- Impact: Political transparency and internal procedures
Innlent | Morgunblaðið | 30.5.2026 | 11:30 Leyniherbergi í Alþingishúsinu Hið alræmda „leyniherbergi“ þinghússins kallast réttu nafni næðisrými og líkist hefðbundnu fundarherbergi, með löngu borði, stólum og skjá. mbl.is/Eggert Jóhannesson Andrea Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Hið dulúðuga „leyniherbergi“ í Alþingishúsinu hefur verið nokkuð áberandi í umræðunni að undanförnu, eftir að ríkisstjórnin kom óvænt saman á sunnudag eftir sveitarstjórnarkosningar og aflétti trúnaði á gögnum tengdum aðildarviðræðum við ESB gagnvart utanríkismálanefnd þingsins. Þá máttu aðeins nefndarmenn sjá gögnin, í „leyniherbergi“, undir ströngum trúnaðarskilyrðum. Nefndarmenn minnihluta mótmæltu hinum ríka trúnaði sem um gögnin gilti. Miðflokksmenn stóðu fyrir málþófi í þingsal allt þar til Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, fór þess á leit við forseta þingsins að aflétta trúnaði gagnvart þingmönnum öllum, ekki aðeins nefndarmönnum. Morgunblaðið falaðist eftir nánari upplýsingum um „leyniherbergið“ frá skrifstofu Alþingis – og fékk. Herbergið er strangt til tekið kallað „næðisrými“ og er á 2. hæð í Smiðju þinghússins. Frétt af mbl.is ESB-gögnin verða ekki kynnt almenningi Þar gátu allir þingmenn kynnt sér gögnin umþrættu á fimmtudaginn sl. að viðstöddum starfsmanni. Þeim var ekki heimilt að fara þangað inn með skriffæri, tölvur eða síma, enda var þeim óheimilt að taka myndir af gögnunum eða afrita þau með nokkrum hætti, svo sem með því að skrifa niður upplýsingar úr þeim. Þingmönnunum var gert að tilkynna um komu eða bóka tíma til að tryggja viðveru starfsmanns. Gögnin, sem telja 297 blaðsíður, voru afhent í þríriti, hvert um sig í meðalstóru bréfabindi (80 mm). Þannig var sá möguleiki fyrir hendi að þrír þingmenn gætu skoðað gögnin í einu, hver í sínu herbergi og að viðstöddum starfsmanni. Það kom þó aldrei til þess, en í tvígang skoðuðu tveir þingmenn gögnin á sama tíma, hvor í sínu herbergi að viðstöddum starfsmanni. Af 63 þingmönnum nýttu 11 sér heimildina til að skoða gögnin. Miðflokksmenn nýttu sér heimildina og einn framsóknarmaður en enginn Sjálfstæðismaður. Gögnin voru varðveitt í læstum skjalaskáp á nefnda- og greiningarsviði á milli heimsókna. Að lokinni afgreiðslu málsins í þingsal var gögnunum komið fyrir í skjalasafni Alþingis. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Leyniherbergi í Alþingishúsinu Miðill læknaði hann af kviðsliti Grillaður lambahryggvöðvi sem enginn stenst Slot rekinn frá Liverpool Annar leikmaður frá Val til Stjörnunnar Umræðan Staðalbúnaður tungumálsins Óhreina tauið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óræð niðurstaða um krónu og evru Segja stöðuna betri: „Skiljanlega er fólki brugðið“ Bendir á fleiri leiðir en að hækka laun Lyfta grettistaki í Gambíu Mest lesið Í gær Í vikunni Tekur undir orð Bjarna Myndband: Handtaka í Hveragerði „Grunsamleg háttsemi“ við grunnskóla Timburdekkið lagt niður Hluthafar greiði launin Skatturinn slæm ákvörðun en Ísland nái sér á strik Breyta fánareglum Reykjavíkurborgar Svarar gagnrýni kennara: „Niðurstaðan stendur“ Líkur á að kjarasamningar bresti Vill selja Landsbankann vegna samgöngusáttmálans Lést við barnsburð á Landspítalanum Inga farin í veikindaleyfi Eldri hjón unnu 336 milljónir Myndband: Handtaka í Hveragerði Veðurstofan varar við eldingaveðri og gul viðvörun gengur yfir Inga Sæland: Vonast til að verða ekki lengi frá Andlát: Stefán Jökulsson Séra Kristján segir af sér vegna meints brots Einn fluttur á slysadeild eftir harðan árekstur Daði tjáir sig um símtalið við Hildi Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Nýjast á mbl.is » Leyniherbergi í Alþingishúsinu Miðill læknaði hann af kviðsliti Grillaður lambahryggvöðvi sem enginn stenst Slot rekinn frá Liverpool Annar leikmaður frá Val til Stjörnunnar Umræðan Staðalbúnaður tungumálsins Óhreina tauið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Miðill læknaði hann af kviðsliti Segja stöðuna betri: „Skiljanlega er fólki brugðið“ Meiðyrðamáli foreldranna vísað frá Spyr hvort staða Landsbókasafns sæmi þjóðinni Mest lesið Í gær Í vikunni Tekur undir orð Bjarna Myndband: Handtaka í Hveragerði „Grunsamleg háttsemi“ við grunnskóla Timburdekkið lagt niður Hluthafar greiði launin Skatturinn slæm ákvörðun en Ísland nái sér á strik Breyta fánareglum Reykjavíkurborgar Svarar gagnrýni kennara: „Niðurstaðan stendur“ Líkur á að kjarasamningar bresti Vill selja Landsbankann vegna samgöngusáttmálans Lést við barnsburð á Landspítalanum Inga farin í veikindaleyfi Eldri hjón unnu 336 milljónir Myndband: Handtaka í Hveragerði Veðurstofan varar við eldingaveðri og gul viðvörun gengur yfir Inga Sæland: Vonast til að verða ekki lengi frá Andlát: Stefán Jökulsson Séra Kristján segir af sér vegna meints brots Einn fluttur á slysadeild eftir harðan árekstur Daði tjáir sig um símtalið við Hildi Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað