Eins og fram hefur komið á þessum vettvangi á Týr almennt séð erfitt með að átta sig á Daða Má Kristóferssyni fjármálaráðherra — hvaðan hann er að koma, hvert hann er að fara og hvað hann er yfirhöfuð að segja. *** Eins og Týr hefur áður fjallað um frábað Daði Már sér allt tal um að hagkerfið stefndi í kreppuverðbólgu (e. stagflation) í snerru við Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins, á Alþingi í janúar. Spurður um verðbólgumælinguna nokkrum vikum síðar sagði hann við blaðamann Morgunblaðsins að kreppuverðbólga hefði verið á Íslandi síðustu fjögur ár. Á svipuðum tíma sagði hann að breytingar á opinberum álögum á einstaka vöruflokka til að ná niður verðbólgu væru eins og að pissa í eigin skó. Það er vissulega rétt ef við völd er ríkisstjórn sem hefur þá einu lausn að hækka skatta og álögur. Nokkru síðar tilkynnti ríkisstjórnin um tímabundna lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti sem aðgerð til að stemma stigu við verðbólgunni — að ógleymdu því að loka „hleðslugatinu“, en það er önnur saga. *** Nú vita væntanlega flestir að síðustu verðbólgumælingar eru því marki brenndar að ríkið og opinberir aðilar hækkuðu gjöld og álögur mikið um áramótin. Innflutt verðbólga er ekki mikil um þessar mundir, hvað svo sem verður þegar líða tekur á árið. Enn og aftur spurði blaðamaður Morgunblaðsins Daða Má út í viðbrögð hans við vaxtahækkun Seðlabankans í síðustu viku. Það stóð ekki á svörum frekar en fyrri daginn: „Ég verð auðvitað að halda því til haga að hækkanir opinberra gjalda eru ekki verðbólguhvetjandi þó að þær hækki verðbólgu.“ Ha? *** Eitt sinn rýndu menn í Kremlarlógíu en nú eru okkar færustu sérfræðingar farnir að helga sig Daðalógíunni. Fæstir þeirra eru góðir í henni enda er nánast ómögulegt að ráða í hana, eins og ofangreind dæmi bera með sér. Týr er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í blaðinu sem kom út 27. maí 2026.