- What: New emergency department to open in September
- Impact: Improves emergency care capacity at Landspítala
Innlent | mbl | 30.5.2026 | 19:20 Bráðamatsdeild opnuð í september Gámaeiningar hafa verið reistar við bráðamóttökuna að breskri fyrirmynd. mbl.is/Eggert Jóhannesson Freyr Bjarnason [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Hjúkrunarheimili, skortur Hyggjast fjölga hjúkrunarrýmum um tæpan helming Hjúkrunarrýmum lokað í Seljahlíð Halda eftir 105 þúsundum Ekki best að hafa fólk heima Ekki líkur á framlengingu samninga » Fleiri tengdar fréttir Ný bráðamatsdeild, sem er risin við bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi, verður opnuð í september næstkomandi. Þetta kemur fram í svari við fyrirspurn mbl.is í tengslum við stöðu mála vegna álags á bráðamóttökunni og berklasmita. Frétt af mbl.is Bráðamatsdeildin risin í Fossvogi Fram kom í tilkynningu frá Landspítalanum fyrir þremur mánuðum síðan að deildin yrði opnuð innan skamms. Frétt af mbl.is Nýrri bráðamatsdeild ætlað að dreifa álagi Um 20 rýma sólarhringsdeild verður að ræða þar sem þverfaglegt teymi mun sinna sjúklingum með bráð veikindi á sviði lyflækninga. Deildin og skipulag starfseminnar er nýmæli að erlendri fyrirmynd. Bráðamóttaka Landspítalans. mbl.is/Kristinn Magnússon Vilja létta álagi af bráðamóttöku „Markmiðið er að létta álagi af bráðamóttökunni, bæta flæði sjúklinga og bæta jafnframt þjónustu við sjúklinga (Áhersla er á skjótt og markvisst mat á sjúklingum, samþætta teymisvinnu og skýra og árangursríka verkferla),” segir einnig í svarinu. Frétt af mbl.is Á vakt við óviðunandi aðstæður í áratugi Ýmsar ástæður fyrir betri stöðu „Það hefur verið gripið til margvíslegra aðgerða vegna álags á bráðamóttökunni með áherslu á úrræði sem gera Landspítala kleift að útskrifa aldraða einstaklinga með færni- og heilsumat í viðeigandi úrræði," segir í svarinu um stöðu mála á bráðamóttökunni. Staðan hafi batnað síðan starfsfólk Landspítala fundaði um bráðamóttökuna í febrúar síðastliðnum. „Í vikunni (26. maí) voru 76 einstaklingar með færni og heilsumat á Landspítala en þegar verst lét fór fjöldinn yfir 130 og var lengi vel um milli 100 og 120." Fram kemur að ýmsar ástæður séu fyrir þessari betri stöðu á bráðamóttökunni. Opnun Urðarhvarfs var hraðað eins og unnt var en þar eru 100 skammtímahjúkrunarrými sem Landspítali hefur alfarið til ráðstöfunar fyrir einstaklinga af spítalanum sem eru með færni- og heilsumat. 48 skammtímarými á Vífilsstöðum verða opnuð á ný í júní eftir endurbætur á húsnæðinu, auk þess sem stefnt er á opnun Hlévangs í september. Þar verða 24 skammtímahjúkrunarrými. Frétt af mbl.is Örtröð á Landspítalanum hamlar smitvörnum „Auk þessa átti ráðuneytið samstarf við hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu snemma á þessu ári sem gerði kleift að opna nokkur skammtímahjúkrunarrými til ráðstöfunar fyrir Landspítala. Þá er unnið að gerð sk. marksamnings sem gerir hjúkrunarheimilum sem það geta kleift að bæta við allt að 10% rýmafjölda án sérstakra viðræðna við ríkið,” segir jafnframt í svarinu. Landspítalinn í Fossvogi. mbl.is/Jón Pétur Skriður eftir margra ára stöðnun Fram kemur að eftir margra ára stöðnun í uppbyggingu hjúkrunarheimila sé kominn skriður á verkefni og framkvæmdir. Tvö ný heimili hafi verið opnuð á liðnu ári, í Reykjanesbæ og í Kópavogi með samtals 144 rýmum, þar af 114 nýjum. Á næsta ári muni hjúkrunarrýmum fjölga um tæp 200. Frétt af mbl.is Nýtt 80 rýma hjúkrunarheimili Hrafnistu opnað í Reykjanesbæ Frétt af mbl.is Nýtt 64 rýma hjúkrunarheimili í Kópavogi Í svarinu er einnig bent á framkvæmdaáætlun um uppbyggingu hjúkrunarheimila 2026 til 2030 sem var birt í mars síðastliðnum. Þar er gert ráð fyrir fjölgun um 1.335 ný rými á tímabilinu, auk endurbóta með bættri aðstöðu í 152 hjúkrunarrýmum. Frétt af mbl.is Hyggjast fjölga hjúkrunarrýmum um tæpan helming Frétt af mbl.is Inga Sæland boðar áhyggjulaust ævikvöld Tengdar fréttir Hjúkrunarheimili, skortur Hyggjast fjölga hjúkrunarrýmum um tæpan helming Hjúkrunarrýmum lokað í Seljahlíð Halda eftir 105 þúsundum Ekki best að hafa fólk heima Ekki líkur á framlengingu samninga » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Bráðamatsdeild opnuð í september Þrjár jafnar á toppnum París SG Evrópumeistari eftir vítakeppni Hátt í 200 nemendur útskrifaðir úr MR Myndir: Léku listir sínar í Vatnsmýrinni Umræðan Staðalbúnaður tungumálsins Óhreina tauið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Breytingar boðaðar í borginni Lét teikna hagkvæmari íbúðir Spyr hvort staða Landsbókasafns sæmi þjóðinni Menn „passlega ánægðir og passlega óánægðir“ Mest lesið Í gær Í vikunni Myndband: Handtaka í Hveragerði Tekur undir orð Bjarna Breyta fánareglum Reykjavíkurborgar Timburdekkið lagt niður „Grunsamleg háttsemi“ við grunnskóla Hluthafar greiði launin Leyniherbergi í Alþingishúsinu Skatturinn slæm ákvörðun en Ísland nái sér á strik Telur fánamál Snorra ekki hafa vegið þungt Miðill læknaði hann af kviðsliti Lést við barnsburð á Landspítalanum Inga farin í veikindaleyfi Eldri hjón unnu 336 milljónir Myndband: Handtaka í Hveragerði Veðurstofan varar við eldingaveðri og gul viðvörun gengur yfir Inga Sæland: Vonast til að verða ekki lengi frá Andlát: Stefán Jökulsson Séra Kristján segir af sér vegna meints brots Einn fluttur á slysadeild eftir harðan árekstur Daði tjáir sig um símtalið við Hildi Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Nýjast á mbl.is » Bráðamatsdeild opnuð í september Þrjár jafnar á toppnum París SG Evrópumeistari eftir vítakeppni Hátt í 200 nemendur útskrifaðir úr MR Myndir: Léku listir sínar í Vatnsmýrinni Umræðan Staðalbúnaður tungumálsins Óhreina tauið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Margt jákvætt í nýjum verðbólgutölum Breytingar boðaðar í borginni Íhugar að kynna samningsmarkmið Eldri hjón unnu 336 milljónir Mest lesið Í gær Í vikunni Myndband: Handtaka í Hveragerði Tekur undir orð Bjarna Breyta fánareglum Reykjavíkurborgar Timburdekkið lagt niður „Grunsamleg háttsemi“ við grunnskóla Hluthafar greiði launin Leyniherbergi í Alþingishúsinu Skatturinn slæm ákvörðun en Ísland nái sér á strik Telur fánamál Snorra ekki hafa vegið þungt Miðill læknaði hann af kviðsliti Lést við barnsburð á Landspítalanum Inga farin í veikindaleyfi Eldri hjón unnu 336 milljónir Myndband: Handtaka í Hveragerði Veðurstofan varar við eldingaveðri og gul viðvörun gengur yfir Inga Sæland: Vonast til að verða ekki lengi frá Andlát: Stefán Jökulsson Séra Kristján segir af sér vegna meints brots Einn fluttur á slysadeild eftir harðan árekstur Daði tjáir sig um símtalið við Hildi Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað