Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ísland gæti orðið háð öðrum ríkjum í átökum

Read Full Article →

Innlent | mbl | 31.5.2026 | 11:15 Ísland gæti orðið háð öðrum ríkjum í átökum Ráðherrann skoðar setningu sérlaga. mbl.is Setja bókamerki Íslenska ríkið getur ekki gert tilkall til kaupskipa sem sigla undir erlendum fána ef til ófriðar eða annars konar neyðarástands kæmi hér á landi eða á heimsvísu. Sú staða getur komið upp að Ísland verði háð ríkjum þar sem kaupskip eru skráð til flutninga til og frá landinu. Innviðaráðuneytið skoðar setningu sérlaga til að bregðast við þessu. Þetta kemur fram í svari Eyjólfs Ármanssonar innviðaráðherra við fyrirspurn Dags B. Eggertssonar, þingmanns Samfylkingarinnar. Dagur óskaði svara við því hvort mat hefði verið lagt á að hvaða marki aðgangur Íslands að íslenskum kaupskipum gæti takmarkast eða glatast komi til alþjóðlegra átaka, neyðarástands eða annarra alvarlegra truflana á alþjóðlegum flutningakeðjum. Benti hann á að ekkert íslenskt kaupskip hefði siglt undir íslenskum fána í rúma tvo áratugi. „Samkvæmt hafréttarsamningi Sameinuðu þjóðanna skulu skip aðeins sigla undir fána eins ríkis og lúta sérlögsögu þess á úthafinu. Kaupskip sem sigla til og frá Íslandi lúta því á úthafinu ekki lögsögu Íslands þar sem þau eru skráð á skipaskrár annarra ríkja og sigla því undir fána þeirra,“ segir í svari Eyjólfs. Samrýmist ekki áfallaþoli Í svarinu segir jafnframt að hann telji þessa stöðu ekki samrýmast því áfallaþoli sem íslenskt samfélag geri kröfu um. Er það mat ráðherra að efling íslenskrar alþjóðlegrar skipaskrár styrki getu ríkisins til að efla áfallaþol íslensks samfélags við óvenjulegar aðstæður sem geta skapast. Dagur óskaði einnig svara á hvort ráðuneytið hefði unnið greiningar á mögulegum afleiðingum þessa ástands fyrir íslenskt samfélag. Í svari ráðherra segir að ýmis konar vinna hafi verið gerð í ráðuneytinu frá því að kaupskipum fór að fækka. Árið 2004 var skipaður starfshópur til að kanna stöðu þessara mála á þeim tíma. Niðurstöður starfshópsins leiddu í ljós að setja þyrfti á stofn íslenska alþjóðlega skipaskrá sem væri samkeppnishæf við erlendar skipaskrár. Ein ástæða sem var talin upp fyrir því var þjóðaröryggi. Fjárhagslegur ávinningur takmarkaður Annar starfshópur var skipaður árið 2014 sem hafði það hlutverk að kanna hvort unnt væri að útfæra lagaumhverfi í kringum skráningu kaupskipa á Íslandi þannig að Ísland yrði samkeppnishæft á alþjóðavettvangi á sviði kaupskipaútgerðar. Niðurstaða starfshópsins var sú að fjárhagslegur ávinningur af slíkri skrá yrði takmarkaður fyrir íslenska ríkið en skapast gætu afleidd störf og óbeinar tekjur fyrir ríkissjóð vegna ýmissar hliðarstarfsemi sem fylgir slíkri skipaskrá. Áhrif takmarkaðs aðgengis Íslands að kaupskipum komi til átaka eða annarra truflana voru ekki skoðuð sérstaklega í vinnu starfshópsins. Í mars 2021 voru kynnt drög að frumvarpi um íslenska alþjóðlega skipaskrá í samráðsgátt stjórnvalda. Í greinargerð frumvarpsins kom fram að ekki væri talið æskilegt með tilliti til þjóðaröryggis að öll kaupskip sem sigli hingað til lands sigli undir erlendum fána og lúti erlendum lögum. Frumvarpið var ekki lagt fram á Alþingi. Ráðherrann hyggst bregðast við. mbl.is/Eggert Jóhannesson Skoða setningu sérlaga Eyjólfur segist hafa tekið málið upp að nýju innan ráðuneytisins auk þess sem það hefur verið tekið upp á fundum ríkisstjórnarinnar. Í lok svarsins segir að til skoðunar sé í ráðuneytinu að koma á sérlögum þar sem ríkið hafi heimild til að leggja hald á skip í stríði eða hættuástandi. Slík lög eru í gildi í Noregi. „Í Noregi hafa verið sett sérlög þar sem fjallað er um rétt ríkisins, í stríði eða hættuástandi, til að leggja hald á skip (n. Lov om adgang til rekvisisjon av skip m.v. under krig eller kriseforhold). Slík lagasetning er til skoðunar í ráðuneytinu og er þar höfð hliðsjón af vinnu við eflingu áfallaþols samfélagsins og haft samráð við helstu hagaðila innan Stjórnarráðsins.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Yfirvöld lokuðu kaffihúsi vegna „djöfladýrkunar“ Ísland gæti orðið háð öðrum ríkjum í átökum Vill yfirgefa Milan Ætlar að fagna þrítugsafmælinu í garðinum Umræðan Staðalbúnaður tungumálsins Óhreina tauið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segja kostnaðinn við krónuna líklega meiri en ábatann Óræð niðurstaða um krónu og evru Segja stöðuna betri: „Skiljanlega er fólki brugðið“ Spyr hvort staða Landsbókasafns sæmi þjóðinni Mest lesið Í gær Í vikunni Vara við leigubremsunni Hrifsa heiminn úr klóm tæknirisanna Sex flugferðum aflýst vegna áhafnaskorts Linda Dröfn valin kona ársins Loka Vesturlandsvegi vegna malbikunar Einn hlaut hátt í 12 milljónir Segir deiluna „mjög erfiða“ Góð birtuskilyrði lykilþáttur Tæplega þriggja stiga skjálfti á Hengilssvæðinu Kraftlítið lægðasvæði stjórnar veðrinu næstu daga Myndband: Handtaka í Hveragerði Tekur undir orð Bjarna Breyta fánareglum Reykjavíkurborgar Timburdekkið lagt niður „Grunsamleg háttsemi“ við grunnskóla Hluthafar greiði launin Einn hlaut hátt í 12 milljónir Leyniherbergi í Alþingishúsinu Telur fánamál Snorra ekki hafa vegið þungt Skatturinn slæm ákvörðun en Ísland nái sér á strik Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Nýjast á mbl.is » Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Yfirvöld lokuðu kaffihúsi vegna „djöfladýrkunar“ Ísland gæti orðið háð öðrum ríkjum í átökum Vill yfirgefa Milan Ætlar að fagna þrítugsafmælinu í garðinum Umræðan Staðalbúnaður tungumálsins Óhreina tauið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir deiluna „mjög erfiða“ Evruskýrslan án skýrrar niðurstöðu Spyr hvort staða Landsbókasafns sæmi þjóðinni Menn „passlega ánægðir og passlega óánægðir“ Mest lesið Í gær Í vikunni Vara við leigubremsunni Hrifsa heiminn úr klóm tæknirisanna Sex flugferðum aflýst vegna áhafnaskorts Linda Dröfn valin kona ársins Loka Vesturlandsvegi vegna malbikunar Einn hlaut hátt í 12 milljónir Segir deiluna „mjög erfiða“ Góð birtuskilyrði lykilþáttur Tæplega þriggja stiga skjálfti á Hengilssvæðinu Kraftlítið lægðasvæði stjórnar veðrinu næstu daga Myndband: Handtaka í Hveragerði Tekur undir orð Bjarna Breyta fánareglum Reykjavíkurborgar Timburdekkið lagt niður „Grunsamleg háttsemi“ við grunnskóla Hluthafar greiði launin Einn hlaut hátt í 12 milljónir Leyniherbergi í Alþingishúsinu Telur fánamál Snorra ekki hafa vegið þungt Skatturinn slæm ákvörðun en Ísland nái sér á strik Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“

Share this article