Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Hlustið á rök reyndra manna og kvenna“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 31.5.2026 | 16:30 „Hlustið á rök reyndra manna og kvenna“ Skrifstofum heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga verður lokað á milli 10-13 á morgun. mbl.is/Eggert Jóhannesson Björn Diljan Hálfdanarson [email protected] Setja bókamerki Mikil óvissa ríkir um framtíð starfsfólks heilbrigðiseftirlitsins vegna lagabreytinga sem nú eru til meðferðar á Alþingi, að sögn Þorkels Heiðarssonar, formanns Félags íslenskra náttúrufræðinga. Breytingarnar fela í sér færslu á verkefnum frá heilbrigðisnefndum og heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga og til ríkisstofnana. Skrifstofum Heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga verður lokað um tíma á morgun vegna fundar starfsfólks sem félagið hefur boðað til. Á fundinum verður reynt að slá að einhverju leyti á óvissuna. Frétt af mbl.is Loka skrifstofum: Funda um óvissu í starfi Starfsfólki verði ekki boðin störf „Það eru mjög margir óvissuþættir í stöðunni og slíkt veldur auðvitað bara titringi meðal starfsfólks og við höfum orðið mjög vör við það. Við erum í rauninni á þessum fundi að fara yfir þær upplýsingar sem við höfum fengið og reyna að kortleggja með starfsfólkinu hvaða réttindi séu undir,“ segir Þorkell í samtali við mbl.is. Hann segir það óljóst hvort núverandi starfsfólki verði boðin störf þegar breytingarnar ganga í gegn. „Það virðist vera sem því verði ekki boðin störf heldur verði því sagt upp og þurfi svo að sækja um.“ Frétt af mbl.is Mikil andstaða í umsagnarferli Kalla eftir skýrleika Hann segir félagið hafa sent nokkrar umsagnir til Alþingis vegna draga að frumvarpinu. Einnig hafi það fundað með ráðuneytunum. „Félagið hefur bara kallað eftir því í marga mánuði að þetta sé skýrt og þetta sé skýrt hratt og óvissu sé eytt,“ segir hann og bendir á að þegar starfsfólk flytjist milli ríkisstofnana haldi það öllum sínum réttindum. Það eigi ekki við um þá sem flytjist frá heilbrigðiseftirlitum sveitarfélaganna. „Ef við tökum til dæmis hina nýju stofnun Atvinnuveganna, þar eiga þeir sem flytjast innan ríkisins á milli stofnana, til dæmis frá Fiskistofu, að halda öllum sínum réttindum en þeir sem flytjast frá heilbrigðiseftirlitum sveitarfélaga eiga að missa þau öll.“ Frétt af mbl.is Sérfræðingar mótmæltu á kynningarfundi ráðherranna Gríðarlega skammur tími Hann segir það afar mikilvægt þegar ráðist er í svo viðamiklar breytingar að það sé gert fumlaust og að það liggi ljóst fyrir hvað breytingarnar hafi í för með sér. Breytingarnar eiga að öllu óbreyttu að taka gildi um áramótin 2027 og Þorkell segir það gríðarlega skamman tíma til undirbúnings. „Okkar skilaboð til þingnefnda í þessu máli hafa bara verið mjög skýr: Skýrið málið fljótt og vel og hlustið á rök reyndra manna og kvenna í þessu máli,“ segir hann að lokum. Frétt af mbl.is „Þessar breytingar verða ekki óumdeildar“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Yfirgefur Liverpool í sumar Íslendingaliðið þýskur meistari Fór óvart í FB „Hlustið á rök reyndra manna og kvenna“ Sigurganga Gróttu heldur áfram Umræðan Staðalbúnaður tungumálsins Óhreina tauið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fimm í gæsluvarðhald vegna fíkniefnamáls Segja kostnaðinn við krónuna líklega meiri en ábatann Leggja línurnar um lágmarksbirtu í nýbyggingum Dróni lenti á kjarnorkuveri í Úkraínu Mest lesið Í gær Í vikunni Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Sex flugferðum aflýst vegna áhafnaskorts Vara við leigubremsunni Hrifsa heiminn úr klóm tæknirisanna Loka skrifstofum: Funda um óvissu í starfi Loka Vesturlandsvegi vegna malbikunar Linda Dröfn valin kona ársins Einn hlaut hátt í 12 milljónir Segir deiluna „mjög erfiða“ Ísland gæti orðið háð öðrum ríkjum í átökum Myndband: Handtaka í Hveragerði Tekur undir orð Bjarna Breyta fánareglum Reykjavíkurborgar Timburdekkið lagt niður „Grunsamleg háttsemi“ við grunnskóla Hluthafar greiði launin Einn hlaut hátt í 12 milljónir Leyniherbergi í Alþingishúsinu Telur fánamál Snorra ekki hafa vegið þungt Skatturinn slæm ákvörðun en Ísland nái sér á strik Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Nýjast á mbl.is » Yfirgefur Liverpool í sumar Íslendingaliðið þýskur meistari Fór óvart í FB „Hlustið á rök reyndra manna og kvenna“ Sigurganga Gróttu heldur áfram Umræðan Staðalbúnaður tungumálsins Óhreina tauið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segja stöðuna betri: „Skiljanlega er fólki brugðið“ Menn „passlega ánægðir og passlega óánægðir“ Eldri hjón unnu 336 milljónir Evruskýrslan án skýrrar niðurstöðu Mest lesið Í gær Í vikunni Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Sex flugferðum aflýst vegna áhafnaskorts Vara við leigubremsunni Hrifsa heiminn úr klóm tæknirisanna Loka skrifstofum: Funda um óvissu í starfi Loka Vesturlandsvegi vegna malbikunar Linda Dröfn valin kona ársins Einn hlaut hátt í 12 milljónir Segir deiluna „mjög erfiða“ Ísland gæti orðið háð öðrum ríkjum í átökum Myndband: Handtaka í Hveragerði Tekur undir orð Bjarna Breyta fánareglum Reykjavíkurborgar Timburdekkið lagt niður „Grunsamleg háttsemi“ við grunnskóla Hluthafar greiði launin Einn hlaut hátt í 12 milljónir Leyniherbergi í Alþingishúsinu Telur fánamál Snorra ekki hafa vegið þungt Skatturinn slæm ákvörðun en Ísland nái sér á strik Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“

Share this article