Innlent | Morgunblaðið | 31.5.2026 | 18:00 Refastofninn er á undanhaldi Rebbi hefur átt undir högg að sækja á undanförnum árum. Ljósmynd/Bogi Þór Arason Setja bókamerki Stofn íslenska heimskautarefsins hefur minnkað að mun á síðustu 14 árum, en samkvæmt stofnmati Náttúrufræðistofnunar voru talin vera um 4.700 fullorðin dýr í stofninum á móti 7.800 dýrum vorið 2011. Nemur fækkunin um 40%, en ekki er vitað um ástæður þessa. „Þetta er mikil fækkun og óvenjuleg,“ segir Ester Rut Unnsteinsdóttir, spendýravistfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun, við Morgunblaðið. Ekki sé hægt að útskýra að svo komnu máli hvað valdi. Ástandið tengist þó bæði nýliðun í stofninum og dánartíðni, en einnig kunni þéttleikaháð svörun, hærra hlutfall geldra dýra, að vera hluti skýringarinnar. Þá ákveði fæðuframboð hve mikið rými sé fyrir dýrin á hverju svæði. Dragi úr fæðuframboði fækki dýrunum. Þá væri ekki útilokað að fuglaflensa kynni að hafa haft einhver áhrif upp á síðkastið. Hafa beri í huga að hennar hafi ekki orðið vart í tófum fyrr en árin 2024 og 2025. Mest fækkun vestanlands Ester Rut segir athygli vekja að fækkun refa sé mest á vesturhluta landsins, á Vestfjörðum, Norðvesturlandi og Vesturlandi. Meiri stöðugleiki sé í stofninum á austurhluta landsins. Fjallað verður um málið á málþingi um refinn sem haldið verður 9. júní nk. Frá þessari fækkun í stofninum er greint í tilkynningu frá Náttúrufræðistofnun. Skv. henni er nýmæli að mat sé lagt á stofnstærð refs að vori, en í eldra stofnmati hafi yrðlingar sem gotið var að sumri verið taldir með á sama ári, enda séu þeir í veiði taldir sem fullorðin dýr. Lífslíkur þeirra séu litlar á fyrsta ári og aðeins hluti yrðlinga lifi af fyrsta veturinn og geti tekið þátt í tímgun næsta vor. Því sé talið nákvæmara að meta fjölda kynþroska einstaklinga í upphafi tímgunar að vori. Stofnmatið byggist á greiningu veiðigagna; krufningum og aldursgreiningum úr hluta veiðinnar árin 2011-2024. [email protected] Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Star-studded concert event coming to Þingvellir Samtöl átt sér stað símleiðis um helgina Fyrsti sigur tímabilsins í næstsíðustu umferðinni Valur – Víkingur R. kl. 19.15, bein lýsing Refastofninn er á undanhaldi Umræðan Staðalbúnaður tungumálsins Óhreina tauið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sex flugferðum aflýst vegna áhafnaskorts Leggja línurnar um lágmarksbirtu í nýbyggingum Óræð niðurstaða um krónu og evru Vill selja Landsbankann vegna samgöngusáttmálans Mest lesið Í gær Í vikunni Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Sex flugferðum aflýst vegna áhafnaskorts Vara við leigubremsunni Hrifsa heiminn úr klóm tæknirisanna Loka skrifstofum: Funda um óvissu í starfi Loka Vesturlandsvegi vegna malbikunar Linda Dröfn valin kona ársins Einn hlaut hátt í 12 milljónir Segir deiluna „mjög erfiða“ Ísland gæti orðið háð öðrum ríkjum í átökum Myndband: Handtaka í Hveragerði Tekur undir orð Bjarna Breyta fánareglum Reykjavíkurborgar Timburdekkið lagt niður „Grunsamleg háttsemi“ við grunnskóla Hluthafar greiði launin Einn hlaut hátt í 12 milljónir Leyniherbergi í Alþingishúsinu Telur fánamál Snorra ekki hafa vegið þungt Skatturinn slæm ákvörðun en Ísland nái sér á strik Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Nýjast á mbl.is » Star-studded concert event coming to Þingvellir Samtöl átt sér stað símleiðis um helgina Fyrsti sigur tímabilsins í næstsíðustu umferðinni Valur – Víkingur R. kl. 19.15, bein lýsing Refastofninn er á undanhaldi Umræðan Staðalbúnaður tungumálsins Óhreina tauið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Líkur á að kjarasamningar bresti Vill selja Landsbankann vegna samgöngusáttmálans Evruskýrslan án skýrrar niðurstöðu Eldri hjón unnu 336 milljónir Mest lesið Í gær Í vikunni Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Sex flugferðum aflýst vegna áhafnaskorts Vara við leigubremsunni Hrifsa heiminn úr klóm tæknirisanna Loka skrifstofum: Funda um óvissu í starfi Loka Vesturlandsvegi vegna malbikunar Linda Dröfn valin kona ársins Einn hlaut hátt í 12 milljónir Segir deiluna „mjög erfiða“ Ísland gæti orðið háð öðrum ríkjum í átökum Myndband: Handtaka í Hveragerði Tekur undir orð Bjarna Breyta fánareglum Reykjavíkurborgar Timburdekkið lagt niður „Grunsamleg háttsemi“ við grunnskóla Hluthafar greiði launin Einn hlaut hátt í 12 milljónir Leyniherbergi í Alþingishúsinu Telur fánamál Snorra ekki hafa vegið þungt Skatturinn slæm ákvörðun en Ísland nái sér á strik Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“