Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Segir sögu húsanna á Akureyri

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 31.5.2026 | 18:45 Segir sögu húsanna á Akureyri Akureyri fyrri tíma kemur oft fyrir bæði í skáldverkum og heimildarritum, að sögn Arnórs Blika, sem hér er með húsin við Norðurgötu í baksýn. mbl.is/Sigurður Bogi Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki Húsin á Akureyri, saga þeirra og fólksins sem þar hefur búið er sérsvið í sögugrúski Arnórs Blika Hallmundssonar. Hann hefur á síðustu árum tekið saman margvíslegan fróðleik um byggingar í eldri hverfum Akureyrar, þar sem er að finna minnst 70 hús byggð á 18. öld. Í bænum eru svo kynstrin öll af húsum reistum á 19. öldinni og þegar kom fram á fyrstu ár 20. aldarinnar fór bærinn, fullur af húsum, að mótast í þeirri mynd sem þekkist í dag. „Ég flutti með fólkinu mínu framan úr Eyjafjarðarsveit hingað á Akureyri og hef alla tíð haft óskaplega þörf fyrir að kynna mér staðreyndir umhverfis míns. Í Eyjafirði kynnti ég mér hvað fjöllin hétu og hvað þau voru há. Mínir helstu áhrifavaldar af skjánum á þessum árum voru meðal annars Ómar Ragnarsson og David Attenborough,“ segir Arnór Bliki sem er umhverfisfræðingur að mennt og kennari við Verkmenntaskólann á Akureyri. Þegar til Akureyrar kom setti fjölskylda Arnórs sig niður á Oddeyri; hverfi þar sem gamlar byggingar hver með sínu lagi eru áberandi. Fljótlega fór Arnór að safna saman upplýsingum um þessi hús og taka af þeim myndir. Birti þessa pistla á vefsíðunni arnorbl.blog.is sem enn er í loftinu. „Ég hef þörf fyrir að miðla þeim fróðleik áfram sem ég viða að mér, eins og afla mér hans. Þessi bloggsíða er enn í fullri notkun en mörg húsanna hef ég tekið fyrir tvisvar; þar hefur verið kominn tími á uppfærslu,“ greinir viðmælandi frá. Mögulega góðæristími Eitt er að tiltekið sé hvaða ár hús sé byggt, úr hvaða efni og svo framvegis. Fleira hangir þó á spýtunni, svo sem saga atburða sem gerðust í húsunum og hvaða fólk bjó þar; stundum það sem hafði meiri áhrif en annað í nærumhverfinu. Í sumum byggingum voru líka fyrr á tíð ýmsar verslanir, iðnaður og önnur starfsemi, sem Arnór segir mikilvægt að halda til haga. Í byggingasögu Akureyrar á síðustu áratugum 19. aldar segir hann eftirtektarvert hve misjafnt er milli ára hve mörg hús eru byggð. Þau séu nánast engin 1881-1884 og 1887-89 en áberandi mörg 1897-99. „Ég hef ekki skýringu á þessu, mögulega hafa árin 1897-1899 verið góðæristími; liðkað hefur verið til um innflutning eða aðföng á til dæmis timbri. Svo ber líka að halda því til haga að mörg hús frá þessum tíma hafa verið rifin eða brunnið. Bærinn er sífellt að breytast,“ segir Arnór. Lengi var byggðin á Akureyri nokkuð strjál en skipulag hennar fór að nálgast núverandi svip þegar kom fram á fyrstu ár 20. aldar. Á þeim tíma fór byggðin að teygja sig upp á Brekkurnar og út á Oddeyrina, þar sem Norðurgatan teygir sig áberandi lengst af þvergötununum norður úr Strandgötunni. Áberandi er svo hversu mörg hús á Akureyri eru byggð árið 1926; mest steinhús. Þarna má nefna byggingar við Eyrarlandsveg, Oddeyrargötu, Hafnarstræti og Aðalstræti í innbænum, einnig við Gránufélagsgötu og Norðurgötu. Húsin sem nú eru öld að aldri eru nokkuð sem Arnór ætlar að leggja sig eftir að kanna á næstunni og skrifa um. Bær í bókmenntum Akureyri fyrri tíma kemur oft fyrir í bókmenntum, bæði skáldverkum og heimildarritum. Þar er að finna mikilsverðan fróðleik, svo sem í Nonnabókunum góðkunnu og sögunum Fátækt fólk og Baráttan um brauðið eftir Tryggva Emilsson. Einnig má nefna skáldsöguna Norðan við stríð eftir Indriða G. Þorsteinsson, sem á unglingsárum átti heima við Norðurgötu á Oddeyri, en þær slóðir eru sögusvið stríðssögunnar. Þá er mikið fjallað um Oddeyrina og umhverfið þar í bókinni Jóhannes á Borg, sem eru æviminningar Jóhannesar Jósepssonar glímukappa og hótelhaldara. „Þegar maður lítur til íbúasögu er áberandi að fram eftir 20. öld settist hér á Akureyri gjarnan að fólk sem áður hafði verið í búskap eða vinnumennsku í sveitum Eyjafjarðar. Einnig úr Þingeyjarsýslum, úr Vopnafirði eða af Héraði. Oft fékkst þetta fólk við iðngreinar og verslun komið hingað í bæinn og hefur eflaust séð fram á betri kjör eins og öllum er í raun eðlislægt í lífsbaráttu sinni. Þetta vil ég hafa með í pistlum mínum um húsin í bænum, sem hafa fengið góðar viðtökur,“ segir Arnór Bliki Hallmundsson. Breið stræti og beinar línur. Fjær á þessari mynd eru húsin nr. 41 og 41a við götuna sem er eitt allra fyrsta fjölbýlið í bænum. Oddeyrargata. Gatan liggur í brekku og hávaxinn gróður við húsin er þar áberandi. Margar byggingar þarna voru reistar á því herrans ári 1926. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Segir sögu húsanna á Akureyri Flytja gríðarstór hús eftir þjóðveginum í nótt Áslaug komin heim og blæs til veislu Sölsa undir sig kastala: „Afgerandi breyting“ í Líbanon Umræðan Staðalbúnaður tungumálsins Óhreina tauið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óræð niðurstaða um krónu og evru Spyr hvort staða Landsbókasafns sæmi þjóðinni Menn „passlega ánægðir og passlega óánægðir“ Fullveldisbaráttunni lauk 1. júní Mest lesið Í gær Í vikunni Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Sex flugferðum aflýst vegna áhafnaskorts Vara við leigubremsunni Hrifsa heiminn úr klóm tæknirisanna Loka skrifstofum: Funda um óvissu í starfi Loka Vesturlandsvegi vegna malbikunar Linda Dröfn valin kona ársins Einn hlaut hátt í 12 milljónir Segir deiluna „mjög erfiða“ Viðstöðulaus skjálftahrina á Hellisheiði Myndband: Handtaka í Hveragerði Tekur undir orð Bjarna Breyta fánareglum Reykjavíkurborgar Timburdekkið lagt niður „Grunsamleg háttsemi“ við grunnskóla Hluthafar greiði launin Einn hlaut hátt í 12 milljónir Leyniherbergi í Alþingishúsinu Telur fánamál Snorra ekki hafa vegið þungt Skatturinn slæm ákvörðun en Ísland nái sér á strik Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Nýjast á mbl.is » Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Segir sögu húsanna á Akureyri Flytja gríðarstór hús eftir þjóðveginum í nótt Áslaug komin heim og blæs til veislu Sölsa undir sig kastala: „Afgerandi breyting“ í Líbanon Umræðan Staðalbúnaður tungumálsins Óhreina tauið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fimm í gæsluvarðhald vegna fíkniefnamáls Evruskýrslan án skýrrar niðurstöðu Hér um bil dáinn í El Grillo Sex flugferðum aflýst vegna áhafnaskorts Mest lesið Í gær Í vikunni Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Sex flugferðum aflýst vegna áhafnaskorts Vara við leigubremsunni Hrifsa heiminn úr klóm tæknirisanna Loka skrifstofum: Funda um óvissu í starfi Loka Vesturlandsvegi vegna malbikunar Linda Dröfn valin kona ársins Einn hlaut hátt í 12 milljónir Segir deiluna „mjög erfiða“ Viðstöðulaus skjálftahrina á Hellisheiði Myndband: Handtaka í Hveragerði Tekur undir orð Bjarna Breyta fánareglum Reykjavíkurborgar Timburdekkið lagt niður „Grunsamleg háttsemi“ við grunnskóla Hluthafar greiði launin Einn hlaut hátt í 12 milljónir Leyniherbergi í Alþingishúsinu Telur fánamál Snorra ekki hafa vegið þungt Skatturinn slæm ákvörðun en Ísland nái sér á strik Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“

Share this article