Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Góðverk dagsins og jafnvel ársins“

  • What: Art installation of Super Mario on a building in Hringbraut
  • Impact: Local community and tourists
Read Full Article →

Innlent | mbl | 31.5.2026 | 20:30 „Góðverk dagsins og jafnvel ársins“ Hér má sjá listaverkið við Hringbraut. mbl.is/Ólafur Árdal Björn Diljan Hálfdanarson [email protected] Setja bókamerki „Mér datt í hug að segja ykkur frá góðverki dagsins og jafnvel ársins,“ svona byrjaði Ólöf Magnúsdóttir, íbúi við Hringbraut, færslu sem hún birti á hverfishóp Vesturbæjar á Facebook í dag. Í færslunni rekur hún sögu útilistaverks myndlistamannsins Juan Arctic við Hringbraut. Listaverkið sýnir ítalska tölvuleikjakappann Super Mario á hlaupum um borgina og hefur vakið mikla lukku, bæði hjá íbúum hverfisins sem og ferðamönnum sem leggja margir leið sína vestur í bæ til að skoða verkið. Grindverkið útatað veggjakroti „Ég flyt hérna inn árið 2019 og þá er þetta grindverk orðið mjög þreytt og mikið af veggjakroti á því svo við fórum að leita að einhverju til að bæta úr því,“ segir Ólöf í samtali við mbl.is. Henni datt í hug að ef sett yrði upp almennilegt listaverk á grindverkinu myndu veggjakrotarar Vesturbæjarins láta það í friði. „Þá frétti ég af því frá kunningjakonu minni að listamaðurinn Juan, sem nú er orðinn frekar stór listamaður, hefði ekki gert neinar veggmyndir og væri að auglýsa hvort hann gæti fengið vegg einhvers staðar til að skreyta,“ segir hún. Þau hafi svo gert samkomulag um að Ólöf keypti málninguna og Juan málaði vegginn. Á endanum ákváðu þau að mála skyldi Mario á vegginn. Listamaðurinn Juan. mbl.is/Ólafur Árdal Bauðst til að þrífa vegginn Síðasta sumar fékk Ólöf svo símhringingu frá númeri sem hún kannaðist ekki við; á hinum enda línunnar var Guðjón Óskarsson sem hefur getið sér gott orð fyrir að þrífa upp tyggjóklessur á götum bæjarins og var meðal annars valinn Reykvíkingur ársins árið 2021. „Og hann bauðst til að greiða fyrir meira, af því að hornið á Hringbraut og Hofsvallagötu er með mjög miklu veggjakroti og ég hef ekkert náð að gera neitt varðandi það, en hann hringdi og bauðst til þess að borga fyrir að láta fjarlægja það og bæta svo við verkið,“ segir hún. Juan hefur samþykkt að bæta þar við verkið og er vinna nú hafin. „Fyrir ári síðan, þegar Juan samþykkti að gera þetta, hélt hann að Guðjón byggi í húsinu. Hann hafði ekki hugmynd um að þetta væri maður sem væri í sjálfboðaliðastarfi við að hreinsa veggjakrot og tyggjóklessur,“ segir Ólöf að lokum. Frétt af mbl.is Guðjón er Reykvíkingur ársins Frétt af mbl.is Búinn með 18.000 klessur og enn að Útilistaverk Juans við Hringbraut hefur vakið mikla lukku. mbl.is/Ólafur Árdal Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Valur - Víkingur R., staðan er 1:5 „Góðverk dagsins og jafnvel ársins“ Skuldahengja yfir ríkjum heims Fögnuðu sigri á Korpúlfsstaðavelli Gripnir skilríkislausir við umfangsmikinn matvælaþjófnað Umræðan Staðalbúnaður tungumálsins Óhreina tauið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Dróni lenti á kjarnorkuveri í Úkraínu Segir tryggingu í höfn: „Ég er í engum flýti“ Segja kostnaðinn við krónuna líklega meiri en ábatann Sex flugferðum aflýst vegna áhafnaskorts Mest lesið Í gær Í vikunni Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Sex flugferðum aflýst vegna áhafnaskorts Vara við leigubremsunni Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Hrifsa heiminn úr klóm tæknirisanna Viðstöðulaus skjálftahrina á Hellisheiði Loka skrifstofum: Funda um óvissu í starfi Loka Vesturlandsvegi vegna malbikunar Linda Dröfn valin kona ársins Flytja gríðarstór hús eftir þjóðveginum í nótt Myndband: Handtaka í Hveragerði Tekur undir orð Bjarna Breyta fánareglum Reykjavíkurborgar Timburdekkið lagt niður „Grunsamleg háttsemi“ við grunnskóla Hluthafar greiði launin Einn hlaut hátt í 12 milljónir Leyniherbergi í Alþingishúsinu Telur fánamál Snorra ekki hafa vegið þungt Skatturinn slæm ákvörðun en Ísland nái sér á strik Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Nýjast á mbl.is » Valur - Víkingur R., staðan er 1:5 „Góðverk dagsins og jafnvel ársins“ Skuldahengja yfir ríkjum heims Fögnuðu sigri á Korpúlfsstaðavelli Gripnir skilríkislausir við umfangsmikinn matvælaþjófnað Umræðan Staðalbúnaður tungumálsins Óhreina tauið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Menn „passlega ánægðir og passlega óánægðir“ Lyfta grettistaki í Gambíu Dróni lenti á kjarnorkuveri í Úkraínu Segir deiluna „mjög erfiða“ Mest lesið Í gær Í vikunni Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Sex flugferðum aflýst vegna áhafnaskorts Vara við leigubremsunni Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Hrifsa heiminn úr klóm tæknirisanna Viðstöðulaus skjálftahrina á Hellisheiði Loka skrifstofum: Funda um óvissu í starfi Loka Vesturlandsvegi vegna malbikunar Linda Dröfn valin kona ársins Flytja gríðarstór hús eftir þjóðveginum í nótt Myndband: Handtaka í Hveragerði Tekur undir orð Bjarna Breyta fánareglum Reykjavíkurborgar Timburdekkið lagt niður „Grunsamleg háttsemi“ við grunnskóla Hluthafar greiði launin Einn hlaut hátt í 12 milljónir Leyniherbergi í Alþingishúsinu Telur fánamál Snorra ekki hafa vegið þungt Skatturinn slæm ákvörðun en Ísland nái sér á strik Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“

Share this article