Fimm sóttu um embætti dómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Norðurlands eystra, sem auglýst var 8. maí og umsóknarfrestur rann út 26. maí: Erna Björt Árnadóttir, aðstoðarmaður dómara við Héraðsdóm Reykjaness, Jón Stefán Björnsson, aðstoðarmaður dómara við Héraðsdóm Reykjaness, Margrét Helga Kristínar Stefánsdóttir, lögfræðingur hjá Umboðsmanni Alþingis, Sigmundur Guðmundsson lögmaður, Þorbjörg I. Jónsdóttir lögmaður. Umsóknir verða afhentar dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara á allra næstu dögum og stefnt er að því að ákvörðun um skipum liggi fyrir hið fyrsta eftir að umsögn berst ráðherra, samkvæmt vef Stjórnarráðsins. Sæti í sal A í héraðsdómi Norðurlands eystra.RÚV / Ólafur Gros