Álverð náði í morgun sínu hæsta stigi í fjögur ár. Verð á framvirkum samningum með ál í Málmkauphöllinni í London (LME) hefur hækkað um 0,5% í dag og stendur í 3.692 dölum á tonnið. Verðið fór hæst upp í 3.707,5 dali á tonnið í morgun en það hafði ekki verið hærra frá því í mars 2022, skömmu í kjölfar innrásar Rússlands í Úkraínu. Hækkunin í morgun er rakin til aukinnar áhættu um framboð frá Miðausturlöndum eftir að Bandaríkin og Íran skiptust á loftárásum, að því er segir í frétt Reuters . Um 9% af álframboði heims má rekja til Miðausturlanda. Lokun Hormússunds hefur takmarkað útflutning frá svæðinu og innflutning á nauðsynlegum hráefnum til álframleiðslu. Sjá einnig Álverð rýkur upp