Innlent | mbl | 1.6.2026 | 14:17 „Þetta er hræðilega sorglegt“ Fanginn sem lést afplánaði 16 ára dóm fyrir að hafa orðið dóttur sinni að bana. mbl.is/Árni Sæberg Sólrún Lilja Ragnarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Fangelsismálastjóri segir bæði samfanga og starfsfólk slegið eftir að fangi sem vistaður var í fangelsinu á Hólmsheiði svipti sig lífi aðfaranótt sunnudags. Starfsfólk meðferðarsviðs Fangelsismálastofnunar hefur, ásamt fangapresti, verið að hlúa að fólki, en einnig er boðið upp á félagastuðning. Heildstæð skoðun mun fara fram á atvikinu hjá stofnuninni og umboðsmanni Alþingis verður tilkynnt um það. „Þetta er hræðilega sorglegt og snertir þá sem að þessu koma,“ segir Ragna Bjarnadóttir fangelsismálastjóri í samtali við mbl.is . „ Þetta snertir auðvitað fólk auðvitað illa og fólk er slegið þegar að svona atburður kemur upp hérna.“ Greint hefur verið frá því að maðurinn sem lést hét Sigurður Fannar Þórsson, en hann afplánaði sextán ára dóm fyrir að hafa banað tíu ára dóttur sinni að Hraunhólum við Krýsuvík árið 2024. Frétt af mbl.is Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Mikilvægt að fara yfir alla þætti Ragna segir að lögregla hafi verið kölluð til í fangelsið vegna málsins í gærmorgun, en að lögð hafi verið áhersla á að ná sambandi við aðstandendur, bæði til að upplýsa og hlúa að þeim. „Svo þarf að taka utan um fangana og fangaverði og annað starfsfólk sem kemur að og það er gert með því að starfsfólk meðferðarsviðs Fangelsismálastofnunar, ásamt fangapresti, mætir á staðinn. Einnig er boðið upp á félagastuðning og fleira til þess að reyna að ná utan um aðstæður, sem sagt þá fyrst og fremst innan fangelsisins eru það samfangar og starfsfólk,“ útskýrir Ragna. Þá ber Fangelsismálastofnun að tilkynna umboðsmanni Alþingis um svona atvik, en umboðsmaður hefur eftirlit á grundvelli OPCAT-eftirlits með öllum stöðum þar sem einstaklingar eru frelsissviptir. „Alltaf þegar svona alvarleg atriði koma upp þá er ástæða til þess að setjast niður og skoða málið. Ég held að sé mjög mikilvægt að gera það og fara yfir alla þætti.“ Frétt af mbl.is Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Umboðsmaður skoðar ef tilefni er til Spurð hvort það sé eitthvað sérstakt sem þarf að horfa til við þá skoðun segir hún að heildstæð skoðun þurfi að fara fram. „Það þarf að skoða aðdraganda og það sem gerist á eftir. Svo þarf líka skoða það sem snýr að okkur hjá Fangelsismálastofnun. Svo er auðvitað lögreglunnar að svona rannsaka atvikið sjálft. Þá fær umboðsmaður tilkynningu og skoðar ef hann telur tilefni til. Það er líka mikilvægt að það séu ytri aðilar sem fá þessar upplýsingar.“ Spurð hvort grunur sé um að eftirliti hafi verið ábótavant, segir Ragna ekkert benda til þess á þessu stigi. Þá segist hún ekki geta tjáð sig um það hvort umræddur einstaklingur var undir sérstöku eftirliti eða metinn í sjálfsvígshættu. Hann var í hefðbundnum fangaklefa á Hólmsheiði, en ekki í einangrun. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á: Píeta-samtökin, s. 552-2218, Hjálparsíma Rauða krossins, 1717, og netspjallið 1717.is, Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar, s. 1700, og netspjallið heilsuvera.is. Í neyð hringið í 112. Varðandi stuðning eftir missi í sjálfsvígi er bent á Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar, s. 1700, og netspjallið heilsuvera.is, Sorgarmiðstöð, s. 551-4141, og [email protected] , síma Píeta samtakanna, 552-2218. Í neyð hringið í 112. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Krefur Ragnar svara um niðurskurðinn Myndskeið á æfingu vekur athygli fyrir HM „Þetta er hræðilega sorglegt“ Útskýring fengin á lágfluginu Umræðan Þing í gíslingu Skýrsla sem segir ekki það sem okkur er sagt að hún segi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjármagnar rannsóknir á almyrkva á Íslandi Flytja gríðarstór hús eftir þjóðveginum í nótt Orðskýringarnar orðnar óskiljanlegar Mest lesið Í gær Í vikunni Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Flugi Icelandair aflýst vegna mönnunarvanda „Ætlaði aldrei að eignast nýja vini“ Skólabygging sett á söluskrá „Svo dystópíulegt að það er næstum kómískt“ Staðan gjörbreytt á einum áratug Sigmundur Davíð kynnir nýjan fjölskyldumeðlim Röng túlkun ráðherra Hætt að lesa Njálu í skólum landsins Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Sex flugferðum aflýst vegna áhafnaskorts Vara við leigubremsunni Viðstöðulaus skjálftahrina á Hellisheiði Hrifsa heiminn úr klóm tæknirisanna Flytja gríðarstór hús eftir þjóðveginum í nótt Loka skrifstofum: Funda um óvissu í starfi „Góðverk dagsins og jafnvel ársins“ Loka Vesturlandsvegi vegna malbikunar Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Nýjast á mbl.is » Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Krefur Ragnar svara um niðurskurðinn Myndskeið á æfingu vekur athygli fyrir HM „Þetta er hræðilega sorglegt“ Útskýring fengin á lágfluginu Umræðan Þing í gíslingu Skýrsla sem segir ekki það sem okkur er sagt að hún segi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir tryggingu í höfn: „Ég er í engum flýti“ Orðskýringarnar orðnar óskiljanlegar Skuldahengja yfir ríkjum heims Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Mest lesið Í gær Í vikunni Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Flugi Icelandair aflýst vegna mönnunarvanda „Ætlaði aldrei að eignast nýja vini“ Skólabygging sett á söluskrá „Svo dystópíulegt að það er næstum kómískt“ Staðan gjörbreytt á einum áratug Sigmundur Davíð kynnir nýjan fjölskyldumeðlim Röng túlkun ráðherra Hætt að lesa Njálu í skólum landsins Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Sex flugferðum aflýst vegna áhafnaskorts Vara við leigubremsunni Viðstöðulaus skjálftahrina á Hellisheiði Hrifsa heiminn úr klóm tæknirisanna Flytja gríðarstór hús eftir þjóðveginum í nótt Loka skrifstofum: Funda um óvissu í starfi „Góðverk dagsins og jafnvel ársins“ Loka Vesturlandsvegi vegna malbikunar Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað