Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Skjálfti af stærðinni 4,5 í Hengli

  • What: Earthquake of magnitude 4.5 recorded in Hengill
  • Impact: Local communities affected
Read Full Article →

Jarðskjálfti af stærðinni 4,5 varð í Hengli klukkan 13:45. Hann fannst meðal annars vel í Hveragerði og á Selfossi, á höfuðborgarsvæðinu og á Akranesi. Elísabet Pálmadóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir upptökin hafa verið vestur af Húsmúla í vesturhluta Hengilsins. Jarðskjálftahrina hófst snemma í gærmorgun og skjálftarnir orðnir um 600 talsins. Þetta er stærsti skjálftinn sem orðið hefur í hrinunni. Eftirskjálftar hafa orðið og búast má við þeim áfram í dag og á morgun, og jafnvel næstu daga. Elísabet segir að skjálftar af þessari stærð í Hengli ekki svo óvenjulega, en að áfram verði fylgst vel með. Fannst vel í Hveragerði Erlingur Gunnarsson, íbúi í Hveragerði, fann vel fyrir skjálftanum og segist hafa tuskast til þegar skjálftinn reið yfir. „Glerskápurinn glamraði mikið og hurðirnar á honum opnuðust, svo hætti skjálftinn bara en það glamraði mikið.“ Erlingur segir að óþægilegt sé að að finna fyrir svo stórum skjálftum, einn snarpur hafi sömuleiðis riðið yfir í gær. Fréttin verður uppfærð.

Share this article