Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 19 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Rússar skutu metfjölda dróna að Úkraínu í maí Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Rússar skutu 8150 langdrægum drónum að Úkraínu í maí og hafa þeir aldrei verið fleiri á einum mánuði, samkvæmt nýrri greiningu AFP-fréttaveitunnar á gögnum úkraínska flughersins. Auk drónanna skutu Rússar rúmlega 200 eldflaugum að Úkraínu, samkvæmt samantekt daglegra skýrslna sem flugherinn birtir og þeim fjölgaði líka frá því apríl. Reykur stígur upp frá drónaárás Rússa á Kyiv, höfuðborg Úkraínu, 24. maí 2026. AP / Zoya Shu Fyrir 5 mínútumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Ágúst Brynjarsson er með Hjartað á milljón Á sumardaginn fyrsta sendi Ágúst Brynjarsson frá sér sína fyrstu breiðskífu, Hjartað á milljón, en hann snéri sér alfarið að tónlistinni í upphafi árs 2024 og hefur komið víða við síðan. Fyrir 9 mínútumÍÞRÓTTIR Handbolti Þórir Hergeirsson mun kenna við HÍ Handboltaþjálfarinn Þórir Hergeirsson hefur verið ráðinn til íþrótta- og heilsufræðibrautar Háskóla Íslands. Þórir stýrði norska kvennalandsliðinu til þriggja heims- og sex Evrópumeistaratitla og vann þar að auki tvenn Ólympíugullverðlaun. Fyrir 37 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Suðurland Ljósmyndaflug yfir Suðurlandi Tvær flugvélar flugu lágt og nálægt hvorri annarri yfir Suðurlandinu í dag. Samkvæmt Isavia er um ljósmyndaflug að ræða. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Íranar draga sig úr viðræðum vegna árása Ísraels Stjórnvöld í Íran ætla ekki að halda áfram viðræðum við Bandaríkin um frið fyrr en Ísraelsher hættir árásum í Líbanon og á Gaza, samkvæmt miðlinum Tasnim sem tengist írönskum stjórnvöldum. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar Skjálfti af stærðinni 4,5 í Hengli Jarðskjálfti af stærðinni 4,5 varð í Hengli klukkan korter fyrir tvö. Hann fannst víða. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Næsti fundur í deilu FÍA og Icelandair liggur ekki fyrir Síðast var fundað í kjaradeilu Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna á föstudag. Flugferð til Zürich var aflýst vegna manneklu fyrr í dag. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Noregur Hákon krónprins fer fyrr heim frá Japan Hákon krónprins Noregs fer fyrr heim en áætlað var úr opinberri heimsókn til Japans. Ástæðan eru veikindi eiginkonu hans, Mette-Marit krónprinsessu. Dóttir þeirra sem er í námi í Ástralíu ætlar líka heim. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Fimm vilja verða dómarar á Norðurlandi eystra Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Fimm sóttu um embætti dómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Norðurlands eystra, sem auglýst var 8. maí og umsóknarfrestur rann út 26. maí: Erna Björt Árnadóttir, aðstoðarmaður dómara við Héraðsdóm Reykjaness, Jón Stefán Björnsson, aðstoðarmaður dómara við Héraðsdóm Reykjaness, Margrét Helga Kristínar Stefánsdóttir, lögfræðingur hjá Umboðsmanni Alþingis, Sigmundur Guðmundsson lögmaður, Þorbjörg I. Jónsdóttir lögmaður. Umsóknir verða afhentar dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara á allra næstu dögum og stefnt er að því að ákvörðun um skipum liggi fyrir hið fyrsta eftir að umsögn berst ráðherra, samkvæmt vef Stjórnarráðsins. Sæti í sal A í héraðsdómi Norðurlands eystra. RÚV / Ólafur Gros Fyrir 2 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Menning Sneisafull dagskrá á Listahátíð Reykjavíkur Listahátíð í Reykjavík er hafin og dagskráin er ekki af verri endanum. Menningarvefurinn tók saman lista yfir nokkra viðburði sem gestir ættu ekki að láta fram hjá sér fara. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Fjögurra vikna gæsluvarðhald vegna gruns um kynferðisbrot gegn fósturbarni Fertugur karlmaður var á föstudag úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald. Hann er grunaður um ítrekuð kynferðisbrot gegn barni sem var í fóstri á heimili hans. Fleiri börn eru í fóstri á heimilinu. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarfélagið Árborg 90 ára afmæli Ungmennafélags Selfoss fagnað Ungmennafélag Selfoss fagnar 90 ára afmæli í dag, 1. júní. Tólf deildir eru innan félagsins með um tvö þúsund og fimm hundruð iðkendum en alls eru félagarnir um átta þúsund. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Malta Tveir særðir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju Kraftmikil sprenging varð í flugeldaverksmiðju á Möltu í morgun. Tveir særðust og fjöldi bygginga varð fyrir skemmdum. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál „Þarna er verið að lýsa gríðarlegu álagi og þungu starfsumhverfi sem þarf að taka á“ Formaður félags grunnskólakennara segir niðurstöður skýrslu um starfsumhverfi í grunnskólum ekki koma sér á óvart. Samkvæmt skýrslunni mæðir mest á umsjónarkennurum. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Leiðir Brann og Freys skilja Freyr Alexandersson hættir í dag sem þjálfari Brann í úrvalsdeild karla í fótbolta í Noregi. Í yfirlýsingu félagsins segir að það sé sameiginleg ákvörðun. Liðinu hefur gengið erfiðlega í upphafi tímabilsins og er sem stendur í 11. sæti. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Múlaþing Ferðaþjónustan finnur fyrir fækkun skemmtiferðaskipa Færri skemmtiferðaskip koma á Borgarfjörð eystra í sumar og ferðaþjónustan finnur fyrir því. Sveitarstjóri segir stjórnvöld þurfa að endurskoða álögur á skipin. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Skagafjörður Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun FNV Siguróli Magni Sigurðsson Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, skrifaði í síðustu viku undir viljayfirlýsingu með Skagfirðingum um stækkun verknámshúss Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Verkefnið hefur verið lengi í bígerð og nú er útlit fyrir að framkvæmdir hefjist næsta vetur. Eins og RÚV.is greindi frá á dögunum hefur sveitarstjórn Skagafjarðar boðist til að halda utan um verkefnið til þess að liðka fyrir uppbyggingunni og nú hefur verið staðfest að Skagafjörður hefur umsjón með framkvæmdum. Ríkissjóður greiðir 60% á móti 40% frá sveitarfélögum á Norðurlandi vestra. Kennt er í gámum sökum húsnæðisskorts á verknámsbraut FNV RÚV / Sölvi Andrason Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Andlát Sigurður Fannar lést í fangelsinu á Hólmsheiði Maður sem lést í fangelsinu á Hólmsheiði í gær afplánaði dóm fyrir að bana dóttur sinni. Lögmaður hans segir málið vekja spurningar um aðbúnað og öryggi fanga. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Framsókn og Sjálfstæðismenn vinna saman í Húnaþingi vestra Siguróli Magni Sigurðsson Framsókn og aðrir framfarasinnar skrifuðu undir meirihlutasamkomulag við Sjálfstæðismenn og óháða í Húnaþingi vestra í gærkvöld. Málefnasamningur var undirritaður á Borðeyri. N-listinn, Nýtt afl, er stærsti flokkurinn í Húnaþingi vestra en hann fær ekki að taka þátt í meirihlutanum. N-listinn fékk 37,8% atkvæða í kosningunum 16. maí og þrjá fulltrúa kjörna. Framsókn og Sjálfstæðisflokkur fengu tvo fulltrúa hvor og mynda saman meirihluta næstu fjögur árin. Örn Arnarson, oddviti Sjálfstæðismanna, verður formaður byggðarráðs og Sigurður Líndal Þórisson, oddviti Framsóknar, forseti sveitarstjórnar. Oddvitar D og B lista. Örn Arnarsson og Sigurður Líndal handsala meirihlutasamkomulag á Borðeyri Faecbook / Facebook Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Allt framhaldsskólanám á einum stað Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur tekið í notkun vef þar sem í fyrsta sinn eru birtar allar viðurkenndar námsbrautir framhaldsskóla á einum stað. Námsbrautirnar sem nú eru birtar á vefnum eru um 400 í 37 skólum. Markmið vefsins framhaldsskolanam.is er að auðvelda aðgang að upplýsingum um námsframboð framhaldsskóla í notendavænu viðmóti og er það liður í aðgerðum stjórnvalda til að bæta yfirsýn yfir menntakerfið og auka stafræna þjónustu, segir í tilkynningu. Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Atlantshafsbandalagið Ungt fólk bregður sér í hlutverk fulltrúa NATO á Alþingi í haust Model NATO ráðstefna verður haldin á Alþingi í haust. Þar fær ungt fólk tækifæri til að bregða sér í hlutverk fulltrúa aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins og takast á við sviðsett alþjóðlegt neyðarástand. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Náttúra Brýnt að „spýta í lófana“ og fjölga friðlýstum hafsvæðum Alþjóðleg markmið gera ráð fyrir verndun 30% land- og hafsvæða fyrir 2030. Ísland er vel á veg komið með að ná því markmiði á landi en aðeins 2% hafsvæða falla undir þessa skilgreiningu. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Pólland Þjóðvegurinn til heljar endurvakinn í Póllandi Leið 666 til Hel hefur verið endurvakin í Póllandi. Pólskt rútufyrirtæki hafði áður látið undan þrýstingi trúarhópa og breytt númeri leiðarinnar. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Flugi Icelandair til Zürich aflýst Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Flugi Icelandair til Zürich í Sviss klukkan 7:20 í morgun var aflýst þar sem ekki tókst að manna áhöfn. Þetta staðfestir Ásdís Ýr Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi Icelandair. Icelandair hefur aflýst nærri 40 flugferðum vegna manneklu frá því að kjaradeilu við flugmenn var vísað til ríkissáttasemjara. Ásdís segir ekki hægt að segja til um hvort fleiri flugferðum verði aflýst í dag. Ekki sé þó útlit fyrir það eins og er. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Hæglætisveður í kraftlítilli lægð Hæglætisveður verður á landinu í dag og næstu daga, þungbúið og svalt austan til í dag og dálítil rigning en lítil úrkoma í öðrum landshlutum þar sem hiti er hærri og gæti farið í allt að 16 stig. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Malta Verkamannaflokkur forsætisráðherrans vann sögulegan sigur í þingkosningum gærdagsins Verkamannaflokkur forsætisráðherra Möltu hlaut rúmlega helming atkvæða í þingkosningum í gær. Þetta eru fjórðu kosningarnar í röð þar sem flokkurinn sigrar. Uggur um efnahagsmál varð til þess að boðað var til kosninga snemma. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Ökumaður handtekinn og annar fluttur á slysadeild eftir umferðaróhapp Markús Þ. Þórhallsson Ökumaður var handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og einn var fluttur á slysadeild með
This article describes a significant increase in Russian long-range drone and missile attacks against Ukraine in May, with over 8,150 drones and more than 200 missiles launched, representing a record monthly volume. The attack vector is direct kinetic bombardment using unmanned aerial vehicles and ballistic/cruise missiles. No specific technical vulnerability, CVSS score, affected software versions, patches, or workarounds are discussed, as the content focuses on real-world military conflict reporting rather than a software security flaw.