Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hlé gert á þingfundi vegna mótmæla af þingpöllum

Read Full Article →

Hlé var gert á þingfundi nú á fjórða tímanum eftir að mótmælendur trufluðu fundinn með hrópum og lúðrablæstri af þingpöllum. Þingmenn voru þá að ræða frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöðvar, þar sem á að vista útlendinga áður en þeim er vísað úr landi. Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, var nýstiginn í pontu þegar mótmælandinn hóf að flauta og blístra af þingpöllum. Erfitt að heyra orðaskil en ljóst að mótmælandinn segir þingmönnum að skammast sín. Ingvar Þóroddsson, einn af varaforsetum þingsins sem stýrði þingfundi, var fljótur að hringja bjöllunni og tilkynna að fundi hefði verið frestað. Skömmu síðar var lokað fyrir hljóð og mynd á þingrásinni.

Share this article