Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 18 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Hringvegurinn lokaður við Esjumela til kl. 7 í fyrramálið Alexander Kristjánsson Hringvegurinn verður lokaður í norðurátt á 670 metra kafla við Esjumela og 1.500 metra kafla við Kollafjörð frá klukkan 21 í kvöld til 7 í fyrramálið. Hjáleið verður um Þingvallaveg, Kjósarskarð og Hvalfjarðarveg. Verið er að fræsa og malbika vegkaflana. Þeir voru einnig lokaðir liðna nótt vegna framkvæmdanna. Fyrir 2 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Tugir handteknir vegna mótmæla við varðhaldsbúðir ICE – hópur fólks í hungurverkfalli Hópur fólks í varðhaldsbúðum innflytjendastofnunar Bandaríkjanna er í hungurverkfalli. Það lýsir meðal annars óþrifnaði og ormétnum mat. Tugir voru handteknir þegar mótmælendum og lögreglu lenti saman. Fyrir 11 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Ný mið-vinstri ríkisstjórn í Danmörku Sósíaldemókratar hafa náð saman með Moderaterna, Sósíalíska þjóðarflokknum og Radikale um myndun nýrrar mið-vinstri stjórnar í Danmörku. Útlit er fyrir að Mette Frederiksen verði áfram forsætisráðherra. 69 dagar eru frá kosningum í Danmörku. Aldrei áður hefur tekið jafnlangan tíma að mynda stjórn. FRÉTTAVAKT Fyrir 15 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Hvalfjarðarsveit Hvalfjarðarsveit fagnar 20 ára afmæli Hvalfjarðarsveit fagnar 20 ára afmæli sínu í dag en það varð til á þessum degi við sameiningu fjögurra sveitahreppa sunnan Skarðsheiðar. Enginn áhugi er hjá íbúum sveitarfélagsins á að sameinast öðrum sveitarfélögum. Fyrir 20 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Bannað að heita Mikhael en má heita Snjór Elín Hrönn Jónsdóttir Mannanafnanefnd hefur kveðið upp átta úrskurði um mannanöfn. Sex þeirra voru samþykkt en tveimur hafnað. Nöfnin Jad, Freyjó, Snjór, Elidon, Mollý og Sifjar voru samþykkt. Beiðni um eiginnöfnin Mikhael og Danivaan var hafnað. Nöfnunum var hafnað á þeim forsendum að þau eru ekki rituð í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls. Unsplash Fyrir 33 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Sjálfstæðisflokkurinn stærri en Samfylking eftir kosningar Stuðningur við Sjálfstæðisflokkinn jókst mikið eftir sveitarstjórnarkosningar. Ef aðeins væri litið á svör sem bárust eftir kosningarnar mældist Sjálfstæðisflokkurinn stærri en Samfylkingin í nýjum þjóðarpúlsi Gallups. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Peningar Vilja tryggja að skattalækkun skili sér að fullu til neytenda Samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á hvort álagning olíufélaganna á eldsneyti sé innan eðlilegra marka. Forstjóri eftirlitsins segir fákeppnisaðstæður ríkja á eldsneytismarkaði. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál „Íslenskir sjúklingar hafa verið að njóta góðs af þessari þróun í talsverðan tíma“ Niðurstöður nýrrar alþjóðlegrar rannsóknar gefa til kynna að með erfðaprófum sé hægt að meta líkurnar á gagnsemi lyfjameðferðar. Slík erfðapóf eru notuð hér á landi og framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins segir að íslenskir sjúklingar njóti góðs af. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf Jafnlaunavottun lögð niður og nýtt og einfaldara kerfi tekið upp Frumvarp dómsmálaráðherra um að leggja niður jafnlaunavottun og taka upp nýtt og einfaldara kerfi í staðinn var samþykkt á Alþingi í dag. Með lögunum er verið að koma til móts við ákall atvinnulífsins um einfaldara regluverk. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Grafið undan réttindum á vinnumarkaði og lýðræði um leið Aukin notkun á stafrænu eftirliti til að fylgjast með og ógna starfsfólki er á meðal þess sem veldur því að staða launafólks í ríkjum Evrópu og Ameríku koma verr út nú en fyrir 12 árum. Þetta kemur fram í ársskýrslu ITUC. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Kalla eftir því að Ísrael virði fullveldi Líbanons Íslensk stjórnvöld kalla eftir því að Ísrael virði fullveldi Líbanons og landamæri. Ísraelsher skipaði í dag íbúum í úthverfum Beirút að yfirgefa heimili sín og hótar árásum þar. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar Ekki smeyk og treystir sérfræðingum Stór skjálfti skók suðvesturhornið í dag, íbúi í Hveragerði kveðst ekki smeyk og segist leggja traust sitt á sérfræðinga. Skjálftinn reið yfir klukkan korter í tvö í dag, fjöldi eftirskjálfta hafa fylgt. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnsýsla Telja mikla óvissu um framtíð heilbrigðiseftirlits Starfsmenn heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga eru uggandi yfir fyrirhuguðum skipulagsbreytingum sem eiga að taka gildi um áramótin. Starfsmenn funduðu í dag með Félagi íslenskra náttúrufræðinga vegna mikillar óvissu um framtíð heilbrigðiseftirlits. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vinnumarkaður 370 misstu vinnuna í hópuppsögnum í maí Þorgils Jónsson Alls bárust fjórar tilkynningar um hópuppsagnir í maí 2026, þar sem 370 starfsmönnum var sagt upp störfum. Frá þessu segir á vef Vinnumálastofnunar. Flestar uppsagnirnar í maí tengdust gistingu og ferðaþjónustu. RÚV / Ágúst Ólafsson Flestir þeirra sem sagt var upp störfum störfuðu í gistiþjónustu, alls 270 starfsmenn. 26 starfsmönnum í störfum tengdum ferðaþjónustu var sagt upp störfum, 37 í sjávarútvegi og 37 í fjármálastarfsemi. Uppsagnirnar koma flestar til framkvæmda á síðari helmingi þessa árs. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Niðurstöður Matsferils liggja fyrir „Þessar niðurstöður eiga að segja heilmikið til um stöðu barns í þessum fögum,“ segir forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu. Niðurstöður úr stöðu- og framvinduprófum Matsferils eru nú aðgengilegar foreldrum á island.is. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Flokkur fólksins mælist utan þings Flokkur fólksins mælist með 4,0% fylgi samkvæmt þjóðarpúlsi Gallups og hefur ekki mælst minni á kjörtímabilinu. Sjálfstæðisflokkurinn er að ná vopnum sínum en Miðflokkurinn tapar fylgi milli mánaða. Samfylking er enn stærst og stendur fylgið í stað. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar Engar vísbendingar um kvikusöfnun Fagstjóri jarðskjálftavár á Veðurstofu Íslands telur ljóst að jarðskjálfti sem varð í dag vestur af Hengli tengist flekahreyfingum, ekki séu neinar vísbendingar um kvikusöfnun á svæðinu. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar Eftirskjálfti af stærð 3,8 Ásrún Aldís Hreinsdóttir Eftirskjálfti varð vestur af Hengli tæplega tuttugu mínútum eftir fjögur í dag. Skjálftinn var af stærðinni 3,8 og er því stærsti eftirskjálftinn hingað til. Búast má við eftirskjálftum áfram í dag og á morgun, og jafnvel næstu daga. Skjálfti af stærðinni 4,5 reið yfir svæðið fyrr í dag. Ragnar Visage Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Hlé gert á þingfundi vegna mótmæla af þingpöllum Þingfundi var frestað eftir að mótmælendur trufluðu fundinn með hrópum og lúðrablæstri af þingpöllum. Þingmenn voru að ræða fyrirhugaðar brottfararstöðvar og var varaformaður Miðflokksins nýstiginn í pontu. Fyrir 4 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Ágúst Brynjarsson er með Hjartað á milljón Á sumardaginn fyrsta sendi Ágúst Brynjarsson frá sér sína fyrstu breiðskífu, Hjartað á milljón, en hann snéri sér alfarið að tónlistinni í upphafi árs 2024 og hefur komið víða við síðan. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Þórir Hergeirsson mun kenna við HÍ Handboltaþjálfarinn Þórir Hergeirsson hefur verið ráðinn til íþrótta- og heilsufræðibrautar Háskóla Íslands. Þórir stýrði norska kvennalandsliðinu til þriggja heims- og sex Evrópumeistaratitla og vann þar að auki tvenn Ólympíugullverðlaun. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Rússar skutu metfjölda dróna að Úkraínu í maí Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Rússar skutu 8150 langdrægum drónum að Úkraínu í maí og hafa þeir aldrei verið fleiri á einum mánuði, samkvæmt nýrri greiningu AFP-fréttaveitunnar á gögnum úkraínska flughersins. Auk drónanna skutu Rússar rúmlega 200 eldflaugum að Úkraínu, samkvæmt samantekt daglegra skýrslna sem flugherinn birtir og þeim fjölgaði líka frá því apríl. Reykur stígur upp frá drónaárás Rússa á Kyiv, höfuðborg Úkraínu, 24. maí 2026. AP / Zoya Shu Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Suðurland Ljósmyndaflug yfir Suðurlandi Tvær flugvélar flugu lágt og nálægt hvorri annarri yfir Suðurlandinu í dag. Samkvæmt Isavia er um ljósmyndaflug að ræða. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Íranar draga sig úr viðræðum vegna árása Ísraels Stjórnvöld í Íran ætla ekki að halda áfram viðræðum við Bandaríkin um frið fyrr en Ísraelsher hættir árásum í Líbanon og á Gaza, samkvæmt miðlinum Tasnim sem tengist írönskum stjórnvöldum. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar Skjálfti af stærðinni 4,5 vestur af Hengli Jarðskjálfti af stærðinni 4,5 varð vestur af Hengli klukkan korter fyrir tvö. Hann fannst víða. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Næsti fundur í deilu FÍA og Icelandair liggur ekki fyrir Síðast var fundað í kjaradeilu Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna á föstudag. Flugferð til Zürich var aflýst vegna manneklu fyrr í dag. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Noregur Hákon krónprins fer fyrr heim frá Japan Hákon krónprins Noregs fer fyrr heim en áætlað var úr opinberri heimsókn til Japans. Ástæðan eru veikindi eiginkonu hans, Mette-Marit krónprinsessu. Dóttir þeirra sem er í námi í Ástralíu ætlar líka heim. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Fimm vilja verða dómarar á Norðurlandi eystra Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Fimm sóttu um embætti dómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Norðurlands eystra, sem auglýst var 8. maí og umsóknarfrestur rann út 26. maí: Erna Björt Árnadóttir, aðstoðarmaður dómara við Héraðsdóm Reykjaness, Jón Stefán Björnsson, aðstoðarmaður dómara við Héraðsdóm Reykjaness, Margrét Helga Kristínar Stefánsdóttir, lögfræðingur hjá Umboðsmanni Alþingis, Sigmundur Guðmundsson lögmaður, Þorbjörg I. Jónsdóttir lögmaður. Umsóknir verða afhentar dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara á allra næstu dögum og stefnt er að því að ákvörðun um skipum liggi fyrir hið fyrsta eftir að umsögn berst ráðherra, samkvæmt vef Stjórnarráðsins. Sæti í sal A í héraðsdómi Norðu