- What: Salary list of government employees in Iceland
- Impact: Public information about public sector salaries
Heilbrigðisstarfsfólk, læknar og hjúkrunarfræðingar, er áberandi á lista yfir rúmlega tvö þúsund launahæstu starfsmenn og embættismenn ríkisins í samantekt Fjársýslunnar fyrir efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis. Lægstu mánaðarlaunin á listanum, frá apríl 2025 til mars 2026, nema rúmlega 1.500 þúsund krónum til sérnámslæknis á Landspítala og þau hæstu 6,6 milljónum til framkvæmdastjóra Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða. Þar á milli má finna tæplega 100 framhaldsskólakennara, 63 prófessora, sendiherra, ráðherra, þingmenn, dómara og starfsfólk Landhelgisgæslu og lögreglu, svo dæmi séu tekin. Í lok maí var fjallað um tekjur þeirra 250 launahæstu á vef RÚV og læknar voru 89 prósent þeirra. Ef við horfum til þeirra í næstu sætum á eftir við má sjá tvo dómara við Hæstarétt með rúmar 2,6 milljónir hvorn, ríkissaksóknara, dómsstjóra og ráðherra auk nokkurra lækna, hjúkrunarfræðings og nokkurra framkvæmdastjóra við Landspítalann. Ráðuneytisstjórar, dómarar og prófessor með kringum 2,5 milljónir Mánaðarlaun ráðuneytisstjóra forsætisráðuneytisins og fleiri ráðuneyta nema milli tæpra 2,5 og rúmra 2,6 milljóna króna á þessu tímabili, sem er næstum það sama og níu ráðherrar þénuðu. Eftirlitsmaður og stjórnandi hjá Samgöngustofu fengu um 2,5 milljónir króna í mánaðarlaun og dómarar við Landsrétt rúmar 2,4 milljónir. Laun stýrimanns og flugmanns hjá Landhelgisgæslunni voru á svipuðum nótum og í 371. fyrsta sæti má sjá prófessor við HÍ með rúmar 2,4 milljónir í mánaðarlaun. Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu og forstöðumenn Fjársýslunnar, Skattsins og Vegagerðarinnar ásamt framkvæmdastjóra Sjúkrahússins á Akureyri voru með ríflega 2,3 milljónir í mánaðarlaun og ríkissáttasemjari rétt tæplega það. Ótilgreindur starfsmaður Fjölbrautaskólans í Breiðholti þénaði 2.258 þúsund, svipað og launahæsti framhaldsskólakennarinn og launahæsti sjúkraliðinn hjá Landspítala. Alls eru sex sjúkraliðar á listanum og laun nokkurra framhaldsskólakennara og skólastarfsfólks nema um og yfir tveimur milljónum mánaðarlega. Saksóknarar, aðstoðarmenn ráðherra og forsetaritari á listanum Ríkislögmaður og Sýslumaður höfuðborgarsvæðisins höfðu 2.155 þúsund krónur í mánaðarlaun líkt og allnokkrir forstöðumenn stofnana á borð við Náttúruverndarstofnun, Matvælastofnun og Landhelgisgæsluna. Saksóknarar í héraði og hjá ríki eru margir með tæpar tvær milljónir í mánaðarlaun, svipað og forstöðumaður Fangelsismálastofnunar. Aðstoðarmenn ráðherra höfðu, líkt og forsetaritari, um 1,8 milljónir í laun en forsetinn 4,2 milljónir, sem eru hæstu laun kjörins fulltrúa. Landsbókavörður, Þjóðleikhússtjóri, Þjóðminjavörður og forstöðumaður Þjóðskjalasafns eru í kringum þúsundasta sæti á listanum með tæpar 1,8 milljónir og laun margra þingmanna eru milli 1,5 og 1,8 milljónir. Efnahags- og viðskiptanefnd óskaði eftir samantekt Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis óskaði eftir samantekt Fjársýslunnar á heildarlaunagreiðslum þeirra sem njóta heildarlaunagreiðslna frá 1,5 milljón króna á mánuði frá FSR, til þeirra 250 sem nutu hæstu heildarlaunagreiðslna á mánuði. Sú beiðni var hluti af vinnu nefndarinnar við frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um breytt viðmið á uppfærslu launa kjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna. Einnig skyldi tilgreina hvort viðkomandi væri í hópi þeirra þjóðkjörnu fulltrúa og æðstu embættismanna sem frumvarpið tekur til.