- What: Break-in at Reykjabú in Mosfellsbæ
- Impact: Birds were targeted and some were killed
Brotist var inn í Reykjabú í Mosfellsbæ aðfararnótt mánudags þar sem ræktaðir eru kalkúnar og kjúklingar. Þetta staðfestir Hjördís Sigurbjartsdóttir aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Tilkynnt var um innbrotið í gærmorgun. Rannsókn málsins er á frumstigi segir Hjördís og verið að afla gagna. Jón Magnús Jónsson bústjóri á Reykjabúinu segir að brotist hafi verið inn í 4 hús, dyr opnaðar og reynt að reka fugla út. Jón segir málið gríðarlega alvarlegt, innbrotsþjófurinn hafi brotið öll sóttvarnarlög sem setji alla fugla á búinu í hættu. Aflífa þurfti nokkra fugla. Jón Magnús segir þá sem brutust inn hafa skilið eftir bréf eins og skilið var eftir í innbroti í svínabú Stjörnugríss á dögunum. Bréfið var á íslensku og í því kemur fram að inbnbrotið sé gert í yfirskyni dýraverndar. Samkvæmt heimildum fréttastofu bendir allt til þess að sami aðili hafi verið að verki. Innbrotið náðist á öryggismyndavélar sem eru staðsettar víðsvegar um svæðið. Þar sést skýrlega að einstaklingurinn var einn að verki. Fréttin verður uppfærð.