Erlendir leikmenn hafa sett mikinn svip á fótboltaheiminn hér á landi. Fyrstu landnemarnir sýndu framandi takta. Allt í einu mátti sjá utanfótarspyrnur, skæri og jafnvel eins og eina dýfu. Allir eru sammála um að þeir hafi bætt leikinn hér á landi. Einhverjir gætu sagt að það sé hálf ótrúlegt að menn frá fjarlægum löndum séu reiðubúnir að koma hingað til lands til að spila. Í dag eru leikmenn af erlendum uppruna í öllum deildum knattspyrnupíramídans hér á landi. En hver er sá besti? Hverjum á að gefa sérstakan gaum? Á Uni Arge upp á pallborð í þessari umræðu? Nær Salih Heimir Porca inn á topp tíu-listann? Þó að hann sé fyrir löngu orðinn íslenskur í bland við bosníska helminginn. Sitt sýnist hverjum í þessum fræðum en álitsgjafahópur RÚV valdi bestu útlendinga í sögu karlafótbolta hér á landi. Hér má sjá þá bestu í sögunni og hvað álitsgjafar hafa um þá að segja. „Var fljótur að læra íslensku svo hann gæti tuðað meira í dómurum og andstæðingum. Elskar bikara.“ – Almarr Ormarsson um Pablo Punyed Hópinn skipa: Adda Baldursdóttir (Ásgerður Stefanía Baldursdóttir), fyrrum landsliðskona og aðstoðarþjálfari kvennaliðs Breiðabliks. Almarr Ormarsson, fyrrum knattspyrnumaður og íþróttafréttamaður Arnar Gunnlaugsson, þjálfari íslenska landsliðsins í fótbolta Ejub Purisevic, fyrrum knattspyrnumaður og þjálfari Elfa Björk Sigurjónsdóttir, sparkspekingur og stuðningskona ÍA Elvar Geir Magnússon, ritstjóri og blaðamaður á Fótbolta.net Guðrún Inga (Gunninga) Sívertsen, fyrrum landsliðskona og skólastjóri Verzlunarskóla Íslands Henry Birgir Gunnarsson, íþróttafréttamaður á Vísi og grillari Hjörvar Hafliðason, doktor í fótboltafræðum og eigandi Dr. Football Hörður Magnússon, fyrrum framherji FH og lýsandi Hrafnkell Freyr Ágústsson, sparkspekingur Dr. Football Ingvi Þór Sæmundsson, íþróttafréttamaður hjá Vísi og rithöfundur Jóhann Skúli Jónsson, lögfræðingur og hlaðvarpsstjórnandi Draumaliðsins/Svona var Ísland Óskar Ófeigur Jónsson, íþróttablaðamaður á Vísi og tölfræðiséní Stefán Pálsson, sagnfræðingur og sparkspekingur Tómas Þór Þórðarson, fyrrum íþróttafréttamaður og þingmaður Sjálfstæðisflokksins Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson, íþróttafréttamaður og sagnfræðingur Víðir Sigurðsson, einn reyndasti íþróttafréttamaður landsins og höfundur bókanna um íslenska knattspyrnu Willum Þór Þórsson, fyrrum þjálfari og núverandi forseti ÍSÍ Hvernig er fyrirkomulagið? Álitsgjafar völdu tíu bestu erlendu leikmenn íslenskrar fótboltasögu. Sá flottasti að þeirra mati fékk tíu stig, sá næstflottasti níu og svo koll af kolli þar til að tíunda sætið fékk eitt stig. Allir sem fæddir eru annars staðar en á Íslandi komu til greina. Þá skipti ekki máli hversu lengi þeir hafa leikið hér eða í hvaða deild. Álitsgjafar fengu nokkuð lausan taum. Þá voru álitsgjafar einnig beðnir um að bæta við nokkrum nöfnum ef þeir vildu votta leikmönnum virðingu sem áttu ekki erindi inn á topp tíu-listann. Hópurinn fór yfir víðan völl. Voru það stærstu mistök í sögu KR að láta einn leikmann á topp tíu-listanum fara? Þá er mannæta í varnarmannsformi á topp tíu-listanum auk manna sem ýmist notuðu ruslapoka eða enduðu næstum í ruslakistunni. Auk þess heyrum við af Messenger-skilaboðum frá Gabon. Gefum álitsgjöfunum orðið. Hvað sagði Víðir Sigurðsson um Patrick? Hvernig lítur listi Víðis út? Víðir Sigurðsson er einn reyndasti íþróttafréttamaður Íslands, og reyndar þótt víðar væri leitað. Hann setti Patrick í efsta sæti á sínum lista og fór yfir feril hans. Víðir hefur um árabil kosið fyrir hönd Íslands í Ballon d'Or kjöri France Football um besta leikmann heims. Víðir veit því hvað hann syngur þegar kemur að listagjörð. „Patrick Pedersen hefur sett mikinn svip á íslenska fótboltann, allt frá því hann kom fyrst til Vals á miðju sumrinu 2013 og skoraði í fyrsta leiknum. Hann hefur þrisvar orðið markakóngur deildarinnar, tvisvar verið kosinn bestur í deildinni af leikmönnum andstæðinganna, og þá hefur hann orðið þrisvar Íslandsmeistari með Val og einu sinni bikarmeistari. Patrick sló markamet deildarinnar í fyrra og það eru ekki miklar líkur á að það verði tekið af honum næstu áratugina. Mikilvægi hans fyrir Val sást best þegar hann slasaðist í bikarúrslitaleiknum á síðasta ári. Hlíðarendaliðið tapaði honum og vann aðeins tvo leiki af síðustu átta í Bestu deildinni án hans, en var með tveggja stiga forystu á verðandi meistara Víkings þegar Daninn meiddist. Hann var á góðri leið með að setja nýtt markamet á einu tímabili í deildinni þegar hann slasaðist. Íslenski fótboltinn hefur svo sannarlega hentað honum vel, Patrick freistaði þess í tvígang að taka skrefið yfir í sterkari deild en sneri fljótlega aftur á Hlíðarenda í bæði skiptin.“ Listi Víðis Patrick Pedersen Lúkas Kostic Nikolaj Hansen Steven Lennon Allan Borgvardt Milan Stefán Jankovic Gary Martin Zoran Daníel Ljubicic Pablo Punyed Tommy Nielsen Sérstök tilnefning : Jens Martin Knudsen. Hver er besti erlendi leikmaður í sögu fótbolta karla hér á landi? Álitsgjafar íþróttadeildar RÚV skera úr um hver þykir sá besti. Hafa þeir smekk fyrir Jens Martin Knudsen? En Gary Martin? Hversu ofarlega endar Pablo Punyed?Hver er besti erlendi leikmaður í sögu fótbolta karla hér á landi? Álitsgjafar íþróttadeildar RÚV skera úr um hver þykir sá besti. Hafa þeir smekk fyrir Jens Martin Knudsen? En Gary Martin? Hversu ofarlega endar Pablo Punyed?Hver er besti erlendi leikmaður í sögu fótbolta karla hér á landi? Álitsgjafar íþróttadeildar RÚV skera úr um hver þykir sá besti. Hafa þeir smekk fyrir Jens Martin Knudsen? En Gary Martin? Hversu ofarlega endar Pablo Punyed?Hver er besti erlendi leikmaður í sögu fótbolta karla hér á landi? Álitsgjafar íþróttadeildar RÚV skera úr um hver þykir sá besti. Hafa þeir smekk fyrir Jens Martin Knudsen? En Gary Martin? Hversu ofarlega endar Pablo Punyed?Hver er besti erlendi leikmaður í sögu fótbolta karla hér á landi? Álitsgjafar íþróttadeildar RÚV skera úr um hver þykir sá besti. Hafa þeir smekk fyrir Jens Martin Knudsen? En Gary Martin? Hversu ofarlega endar Pablo Punyed? Hverjir eru næstir á lista? Það voru nokkrir ansi nærri því að smokra sér inn á topp tíu listann. Hér koma þeir fimm næstu á listanum. Sinisa Valdimar Kekic Hávaxinn, leikinn, klókur og gat leyst nær allar stöður. Sinisa Kekic er Grindavíkurgoðsögn og gerði í raun allt sem þeir gulklæddu báðu hann um á árunum 1996 til 2005. Síðar fór hann á flakk og lék með Þrótti, Víkingum, HK, Reyni Sandgerði og að lokum hreiðraði hann um sig á Höfn í Hornafirði með Sindra. Hvað sögðu álitsgjafarnir? Ejub: „Hefði verið gaman að sjá hann með stærri liðum, af því hann sem einstaklingur virtist geta gert allt.“ Ingvi: „Frábær leikmaður sem gat spilað allar stöður á vellinum. Reyndist Grindavík ómetanlegur um langt árabil og entist ótrúlega lengi. Leikskilningur og tækni upp á tíu og síðan smókur eftir leik. Hefði verið áhugavert að sjá hvernig hann hefði spjarað sig með betra liði. Var lengi orðaður við íslenska landsliðið þrátt fyrir að vera kominn talsvert yfir þrítugt.“ Þorkell Gunnar: „Ég einhvern veginn get ekki sleppt Kela á svona lista. Það var óþolandi fyrir mig sem stuðningsmann Fram að sjá liðið spila við Grindavík. Kekic, Ramsey og Paul McShane höfðu einstakt lag á að fara illa með Fram-liðið ár eftir ár. Í minningunni skoraði Kekic einhvern veginn alltaf. Frábær leikmaður, og reyndar líka sem yfirmaður sundlaugarinnar á Hornafirði.“ Arnar Gunnlaugsson: „Stórkostlegur í fótbolta. Hæfileikaséð á mjög háu level-i.“ Óskar Ófeigur: „Er einstakur meðal erlendra leikmanna. Hann hefur nánast spilað allar stöður á vellinum nema kannski markið. Hann kom hingað sem framherji, flakkaði síðan um allan völl og endaði sem varnarmaður. Hann gleymdi aldrei hvernig á að skora mörk og var alltaf stórhættulegur í teig mótherjanna sama hvaða stöðu hann spilaði. Fáir komast í hans flokk þegar kemur að leiklestri og útsjónarsemi inni á vellinum.“ Henry Birgir: „Pirrar mig hversu fljótt hefur fennt yfir feril þessa magnaða leikmanns. Algjörlega stórkostlegur fótboltamaður. Gjörsamlega láku af honum gæðin. Spilaði allar stöður eins og kóngur. Fór svo væntanlega í sígó í hálfleik. Hafði ekkert fyrir þessu.“ Hrafnkell: „Gat spilað senter, miðju, hafsent. Það skipti engu máli. Hann var góður alls staðar. Löðrandi í gæðum. Hefði örugglega spilað fyrir betri lið og verið betri hérna ef hann hefði bara haft meiri metnað. Ekki reykt og kannski borðað og æft eins og maður. Því að gæðin voru óumflýjanleg. Gjörsamlega magnaður.“ Hér að neðan má sjá Kekic skora bæði mörk Grindavíkur í 2-1 sigri gegn Fram sumarið 1997. Hver er besti erlendi leikmaður í sögu fótbolta karla hér á landi? Álitsgjafar íþróttadeildar RÚV skera úr um hver þykir sá besti. Hafa þeir smekk fyrir Jens Martin Knudsen? En Gary Martin? Hversu ofarlega endar Pablo Punyed? Kennie Chopart Kennie Chopart eldist eins og gott jótlenskt rauðvín (já, Danir framleiða rauðvín). Kom fyrst hingað til lands sem snaggaralegur framherji en hefur með árunum færst aftar á völlinn. Í dag gerir hann í raun það sem Fram og Rúnar Kristinsson þarf frá honum, hvort sem það er að brjóta niður sóknir eða skora mörk. Hefur aðlagast afar vel hér á landi og er vel metinn af stuðningsmönnum allra þeirra liða sem hann hefur leikið fyrir. Kennie Knak Chopart virðist vera rétt að byrja. Hvað sögðu álitsgjafarnir? Almarr: „Daninn sem eldist eins og Danablu. Kom sem sóknarmaður, færðist hægt og rólega niður völlinn og nú, hálf fertugur, spilar hann sem box-to-box miðvörður. Skorar gríðarlega mikilvæg mörk og kemur í veg fyrir gríðarlega mikilvæg mörk hinum megin á vellinum. Leikmaður sem þú nennir aldrei að spila á móti en vilt alltaf hafa í liðinu þínu.“ Jói Skúli: „Vanmetinn leikmaður í öllum svona listum og tilnefningum sem hefur tekið að sér ýmis verkefni í ótrúlegustu liðum og alltaf staðið sig fáránlega vel. Eitthvað svo ótrúlega heiðarlega góður í fótbolta.“ Hrafnkell: „Var nálægt því að setja hann inn á listann. Hann er gjörsamlega frábær og verður bara betri með hverju árinu. Hann hefur færst aftar á völlinn með árunum og er bæði geggjaður sem hafsent í þriggja manna og sem vængbakvörður. Framan af var hann kantframherji.“ Gunninga: „Frábær leikmaður, vinnusamur og skilaði sínu.“ Adda: „Gert vel allstaðar sem hann kemur. Algjör lykilleikmaður fyrir bæði KR og Fram.“ Ejub: „Karakter, vilji og ákefð sem hann sýnir ár eftir ár, er eitthvað sem maður vill sjá hjá leikmanni (sjaldgæft að sjá).“ Willum: „Frábær leikmaður, frábær einstaklingur og er enn að. Virkilega félagslega sterkur, skemmtilegt eintak og mikill keppnismaður, sem gefur mikið af sér.“ Scott Ramsay Uppáhalds örfætti leikmaður uppáhalds örfætta leikmannsins þíns. Grindvíkingar elska Scott Ramsey enda skoraði hann ófá glæsileg mörk í Lýsistreyjunni gömlu og góðu. Hann var einn af þeim sem voru alltaf tæpir á að vera í standi. Sagan segir að hann hafi æft um tíma í ruslapoka á undirbúningstímabilinu til að skafa af sér kílóin. Hlaðborð kemur tvisvar við sögu hjá álitsgjöfum. En töfrarnir voru þarna. Þorkell Gunnar: „Þvílíkur töframaður með boltann. Óþolandi góður í fótbolta. Það skipti einhvern veginn engu máli hvort hann væri í formi eða ekki, hann fór alltaf illa með andstæðingana.“ Jói Skúli: „Gæði og fleira.“ Stefán Pálsson: „Það er eitthvað í loftinu eða vatninu í Grindavík sem gerir það að verkum að skoskir fótboltamenn blómstra þar. Scott Ramsay virtist alltaf hafa tekið aukadiskinn á hlaðborðinu en alltaf tókst honum að skora og þá helst í blálokin þegar hann virtist vera örmagna. Maður var alltaf smeykur með Ramsey í hinu liðinu.“ Óskar Ófeigur: „Var magnaður leikmaður, skemmtileg blanda af tækni og harðfylgni og auðvitað með magnaðan vinstri fót. Hann er stoðsendingahæsti erlendi leikmaðurinn í sögu deildarinnar. Hann skoraði mögnuð mörk upp úr engu og sóknarleikur hans liða snerist oft í kringum hann. Formið var stundum að stríða honum en á sínum besta degi voru fáir betri.“ Henry Birgir: „Þykkur með gæði. Reyndar endalaus gæði og það var hrein dásemd að fylgjast með honum spila. Þó svo hann færi aukaferðir á hlaðborðið þá kom það aldrei niður á gæðunum. Félagar hans fengu heldur betur að borða er hann mataði þá endalaust.“ Almarr: „Leit aldrei neitt sérstaklega hættulega út, aðeins of þéttur á velli oft og með kæruleysislegt yfirbragð. Svo fékk hann boltann í lappir og þú áttaðir þig á því hversu hættulegur hann í raun var. Boltinn límdur við vinstri fótinn og þú vissir aldrei hvort hann myndi þruma honum framhjá þér eða leika á þig, og líklega skipti það ekki máli því þú gast hvort sem er ekkert komið í veg fyrir það.“ Hvað með McShane? Í kjölfarið af Ramsey má nefna að Willum Þór var með nafn Paul McShane á lista. „Frábær og fjölhæfur leikmaður (hjá Keflavík, Grindavík og Fram) og skemmtilegt eintak.“ David Winnie Skotinn eitilharði myndaði afar sterkt miðvarðapar með Þormóði Egilssyni hjá KR. Þrátt fyrir að hafa ekki leikið lengi með liðinu markaði hann djúp spor í Vesturbænum yfir þrjú tímabil frá 1998 til 2000. Hann kom hingað til lands eftir langan feril í Skotlandi og spilaði stóran þátt í fyrsta Íslandsmeistaratitli KR í 31 ár, árið 1999. Endaði á að stýra KR sjálfur og er í dag íþróttalögfræðingur í Skotlandi. Gunningi Sívertsen: „Leiddi vörn KR í mörg ár og skilaði titlum í hús.“ Stefán Pálsson: „Lykilmaður í því þegar KR tókst að landa fyrsta meistaratitlinum í þrjá áratugi, stuðningsmönnum allra annarra félaga til mikillar gremju. Er í dag einn helsti fótboltalögfræðingur Skotlands og duglegur að rækta tengslin við Ísland. “ Henry Birgir: „Þrír titlar í 37 leikjum með KR og aðeins 25 mörk á sig með hann inn á. Nítján hrein lök. Ótrúleg tölfræði. Á mjög stóran þátt í því að KR varð loksins meistari eftir eyðimerkurgönguna á síðustu öld. Skotinn var veggur sem menn komust ekki yfir.“ Að neðan má sjá myndskeið úr 0-3 sigri KR gegn Þrótturum 1998 á Laugardalsvelli. Winnie skorar þar annað mark KR. Tækniörðugleikar í upptöku hjá RÚV ollu því að myndefni seinni hálfleiksins var svart-hvítt. Hver er besti erlendi leikmaður í sögu fótbolta karla hér á landi? Álitsgjafar íþróttadeildar RÚV skera úr um hver þykir sá besti. Hafa þeir smekk fyrir Jens Martin Knudsen? En Gary Martin? Hversu ofarlega endar Pablo Punyed? Gary Martin – markaði spor í þjóðarsálina Gary Martin vakti mikla athygli hér á landi. Hann var afar virkur á samfélagsmiðlum og veitti fólki hér á landi innsýn í líf sitt. Það var oft mikið fjaðrafok í kringum Gary en hann vissi upp á hár hvar markið var, og reyndar er, því að hann leikur enn með liðinu Hebburn Town í sjöttu efstu deild Englands. Gary kallar sjálfan sig Gaz Bov á samfélagsmiðlum, en bov er slangur frá Norður-Englandi, sem má þýða sem slétt sama, (e. can't be bothered, sem styttist í bov). Gary er fyrst og fremst „just a kid from Darlington“ og var elskaður af stuðningsmönnum flestra liða sem hann lék fyrir. Hvað sögðu álitsgjafarnir? Jói Skúli: „Algjör trúður en sennilega hefur enginn útlendingur markað jafn djúp spor í þjóðarsálina innan sem utan vallar. Ég mun alltaf tala um virðinguna sem hann hafði fyrir deildinni. „The magic of the cup“ er eitthvað sem enginn hafði sagt um Mjólkurbikarinn áður en Gary John mætti. Þess utan, lúsiðinn, ógnaði sífellt með hraða sínum og krafti og skoraði helling af mörkum.“ Tómas Þór: „Oft litið á hann sem einhvern trúð enda hagaði hann sér stundum þannig en frábær leikmaður upp á sitt besta og raðaði inn titlum.“ Gunninga: „Markakóngur sem gat klárað leiki fyrir liðið sitt.“ Hverjir eru næstir? Það fengu ófáir leikmenn virðingu á nafn sitt, ýmist með því að fá stig með því að vera á topp tíu lista álitsgjafa, eða þá að fá útkall (e. shoutout) þrátt fyrir að ná ekki inn á lista. Tvíeykið Salih Heimir Porca og Izudin Daði Dervic voru á lista hjá nokkrum álitsgjöfum. Það fennir hratt yfir minni fótboltaáhugamanna en báðir voru þeir í raun í því mengi að vera allt of góðir til að leika hér á landi. Saga þeirra er sögð í þáttaröðinni Balkanbræður. Hér að neðan má lesa um Porca og sögu hans. Adda: „Kóngurinn! – Ein mesta gjöf sem við Íslendingar höfum fengið.“ Ejub: „Myndi vera gaman að sjá hann spila í dag við betri aðstæður, umgjörð og í því umhverfi sem leikurinn er í dag.“ Hér að neðan má sjá myndskeið úr 2-4 sigri Vals gegn Stjörnunni árið 1996. Porca er þar allt í öllu í sóknaraðgerðum Valsmanna. Izudin Daði Dervic Izudin Daði Dervic náði því afreki að leika fyrir íslenska landsliðið. Alls urðu landsleikirnir fjórtán á árunum 1993 til 1995. Það er ekkert slor. Kom sér afar vel fyrir hér á landi. Lék fyrst með FH áður en hann færði sig yfir til Vals og svo KR. Fór síðar á flakk og lék meðal annars með Barðaströnd tímabilið 2001 í 3. deild karla. Ejub: „Einn af fáum útlendingum sem hafa spilað með íslenska landsliðinu, afrek út af fyrir sig.“ Hjörvar Hafliðason var einnig með Daða ofarlega, í þriðja sæti á sínum lista. Willum: „Fljótur og öflugur varnar- og sóknarlega.“ Hörður Magnússon nefndi einnig nafn Daða. Hverjir fengu útkall? Við höldum áfram að kíkja á erlenda leikmenn sem álitsgjafarnir vildu votta virðingu með einum eða öðrum hætti. Oliver Ekroth Víkingurinn Oliver Ekroth rataði á topp tíu lista hjá nokkrum álitsgjöfum. Arnar Gunnlaugsson var með hann í 7. til 8. sæti ásamt Gunnari Vatnhamar. Hann er afar fastur fyrir og hefur raðað inn titlum frá því hann kom til landsins 2022. Almarr: „Íslenskasti miðvörður deildarinnar sem er ekki frá Íslandi. Það var eins og Sölvi Geir og Kári Árna hafi tekið hann á fund fyrir fyrstu æfingu og sagt honum nákvæmlega hversu langt hann gæti gengið í vörninni án þess að dómarar myndu dæma á það. Stór ástæða þess að Víkingar hafa verið jafn góðir og raun ber vitni.“ Gunninga: „Leiðtogi inni á vellinum.“ Alexander Scholz Daninn Alexander Scholz hefði með réttu aldrei átt að koma hingað til lands. Mikill ævintýramaður sem dúkkaði upp í Stjörnunni í Copa Mundial-skónum sínum. Frábær leikmaður sem nýtti frídaga í að ferðast um landið og var nýkominn úr bakpokaferðalagi um Asíu þegar hann kom hingað til lands. Spilaði sumarið 2012 með Stjörnunni og átti svo frábæran feril, sem stendur enn yfir en hann leikur með FC Tokyo í Japan. Hefur leikið með Lokeren, Standard Liége, Club Brugge, Midtjylland, Urawa Red Diamonds, Al Wakrah og jú, Stjörnunni í Garðabæ. Hrafnkell: „Við fengum náttúrulega að sjá lítið af honum en ferill hans í kjölfarið á Íslandi sannar hversu ótrúlega góður hann var og er. Allt of góður til að spila hérna þegar hann kom hingað. Það var bara af því að hann var á einhverjum skrítnum stað í lífinu. Henrik Bodker kemur honum í dag. Gæinn er búinn að eiga gjörsamlega frábæran feril síðan og er búinn að moka inn seðlum.“ Jói Skúli: „Alexander Scholz er besti leikmaðurinn sennilega miðað við hvað gerðist í kjölfarið en ætti ég þá ekki líka bara að hafa David James á listanum eða jafnvel Lee Sharpe?“ Sam Tillen Enski vinstri bakvörðurinn Sam Tillen gerði stoðsendingar að listformi á árum sínum með Fram og FH. Framarinn Almarr Ormarsson vakti líka athygli á því hve góð vítaskytta hann var. Almarr: „Það pæla kannski ekki margir í bakvarðastöðunni þegar kemur að erlendum leikmönnum en Samuel Lee Tillen var bæði mjög góður varnarlega sem og sóknarlega. Fór yfirleitt ekki mikið fyrir honum fyrr en honum hitnaði í hamsi og þá átti hann það til að láta vaða í tæklingar af breska skólanum. Var svo afbragðsfín vítaskytta í þokkabót.“ Óskar Ófeigur setti einnig virðingu á nafn Sams. Hverja tók Stefán Pálsson út fyrir sviga? Sagnfræðingurinn Stefán Pálsson dró tvö óvænt nöfn upp úr hattinum þegar hann veitti sín útköll. René Houseman KR-ingar héldu að þeir væru að detta í lukkupottinn þegar Argentínumaðurinn René Houseman var til í að leika fyrir liðið árið 1985. Hann var í heimsmeistarahópi Argentínu árið 1978. Að lokum lék hann aldrei fyrir KR en bróðir hans kom til landsins og var arfaslappur, en var þó ágætis yngri flokka þjálfari fyrir KR-inga. „Argentínuævintýri KR-inga er náttúrlega einhver skemmtilegasta útlendingasagan í íslenskum fótbolta. Hann var svo sannarlega stórlaxinn sem slapp í burtu.“ Aron Jóhannsson Enginn gleymir því þegar Aron Jóhannsson ákvað að leika fyrir bandaríska landsliðið í fótbolta árið 2013. Tæknilega séð erlendur leikmaður enda fæddur í Mobile, Alabama í Bandaríkjunum. Var frábær ungur með Fjölni og seldur út. Sneri svo aftur í lið Vals og hafði þá fært sig aftar á völlinn. Er nú án liðs en sér eflaust ekki eftir því að hafa leikið fyrir Bandaríkin. Það eru afar fáir „erlendir“ Íslendingar sem hafa leikið á heimsmeistaramóti. „Ekki margir Bandaríkjamenn sem hafa náð að pluma sig í íslenska boltanum. Hvað þá frá Alabama sem maður tengir fremur við ruðning og hafnabolta.“ David James David James lék með ÍBV sumarið 2013 er hann hélt í ævintýri með vini sínum Hermanni Hreiðarssyni sem stýrði þá Vestmanneyingum. Stefán Pálsson var vitaskuld með hann á topp tíu listanum sínum. Stefán Pálsson: „Við Luton-stuðningsmenn verðum að standa saman. David James var afar óvænt viðbót við íslenska boltann þetta eina tímabil sem hann spilaði í Eyjum. Sennilega „stærsta nafnið“ sem leikið hefur hér heima og verðskuldar tilnefningu.“ Gott veður eyðilagði fyrir honum og góður dönskukennari Það hafa ófáir Danir leikið vel hér á landi. Hinn léttleikandi Jacob Schoop lék afar vel með KR sumarið 2015. Schoop lék reyndar líka sumarið 2016 en Hrafnkell Freyr vill meina að gott veður árið 2015 hafi sett strik í reikninginn. Jacob Schoop Jói Skúli: „Var með biluð gæði þangað til hann hætti að nenna þessu.“ Hrafnkell: „Svo er annar sem ég dýrkaði svo mikið, sérstaklega fyrri umferðina sem hann spilaði hérna. Gæðin voru svaðaleg og ég held einhvern veginn að gleðin hans í liðinu hafi verið ástæðan fyrir því að hann náði ekki heilu tímabili. Það var gott veður þetta sumarið og hann var mikið á djamminu, en þvílíkur leikmaður.“ Rasmus Christiansen Sennilega hugljúfasti útlendingur sem hefur leikið hér á landi. Harður í horn að taka en brosmildur, góðhjartaður og afbragðs kennari. Gunninga Sívertsen var hann með á topplista sínum. Gunninga: „Vinnusamur og taktískur leikmaður sem skilaði alltaf sínu. Toppmaður innan sem utan vallar. Hann er líka frábær dönskukennari :).“ Talandi um Dani þá gaf Adda útkall á þá Simon Tibbling og Michel Præst. Danirnir hans Willums Willum fór sínar eigin leiðir og nefndi nokkra leikmenn sem hann stýrði á þjálfaraferli sínum. Hann tók þá Rene Carlsen og Dennis Bo Mortensen sérstaklega út fyrir sviga. „Carlsen var frábær í stöðu vinstri bakvarðar í Íslandsmeistaraliði Vals 2007. Gat líka spilað á vængnum og var góður sóknarlega og varnarlega með góðar spyrnur og góðan leikskilning.“ „Íslandsmeistaralið Vals 2007, sem var frábært lið, var með mjög öflugt framherjapar í Gumma Ben og Helga Sig, en Dennis Bo gaf liðinu helling og kraft þegar á þurfti að halda. Hann var mjög öflugur leikmaður og raðaði mörkum á undirbúningstímabilinu 2008 en sleit krossbönd og því miður náðu hans hæfileikar því ekki að skína eins skært og í stefndi.“ Auk þess nefndi Willum Morten Beck sem lék undir stjórn hans hjá KR og sagði: „Frábær bakvörður hjá KR 2016, 2017 og 2018.“ Daninn hans Henry Henry Birgir Gunnarsson nefndi nafn Sörens Hermansens á nafn. Þróttarar voru í efsta sæti eftir fyrri umferðina 2003 en enduðu á að falla. Henry Birgir: „Raðaði inn mörkum fyrir Þrótt á einu furðulegasta tímabili félags í efstu deild. Efstir eftir fyrri umferð en féllu svo. Hermansen var ekki mjög áberandi í leikjum en skoraði samt nánast alltaf. Frábær eiginleiki.“ Daninn hans Þorkels Hans Yoon Mathiesen lék með Fram í tvö ár, 2006-2007, og svo með Keflavík sumarið 2008. Þorkell Gunnar: „Lágvaxinn leikinn Dani af asískum ættum sem var á mála hjá Fram í nokkur ár. Skemmtilegur miðjumaður sem ég hafði gríðarlega gaman af. Verst hvað hann var oft meiddur.“ Dennis Siim Þá er vert að nefna að Hörður Magnússon og Elfa Björk Sigurjónsdóttir nefndu danska miðjuherforingjann Dennis Siim á nafn. Hann var yfirburðamaður á miðjunni hjá FH 2006 til 2009. Hvernig var listi Hjörvars? Patrick Pedersen Steven Lennon Izudin Daði Dervic Tommy Nielsen Zoran Miljkovic Salih Heimir Porca Símun Samuelsen Gunnar Vatnhamar Allan Borgvardt Sinisa Valdimar Kekic Tveir óvæntir – eða hvað? Almarr Ormarsson var einn með tvö nöfn á blaði, þá Fred og Sandor Matus. Fred var í tíunda sæti og Sandur fékk útkall. Skyldi engan undra, enda Almarr Framari og KA-maður. En hvað sagði hann um þá? Fred Fred hefur reynst þvílíkur happafengur fyrir Fram frá því hann kom fyrst í næstefstu deild árið 2018. Almarr: „Brasilíumaðurinn síkáti. Er kannski ekki með titlana líkt og flestir hinir erlendu leikmennirnir en hann gæti farið fram hjá þeim öllum í símaklefa. Smellpassaði í sóknarboltann hans Jóns Sveinssonar og Rúnar Kristinsson hefur þurft að aðlaga sig að leikstílnum hans, ekki öfugt.“ Sandor Matus Ungverski markvörðurinn Sandor Matus er goðsögn í gula og bláa hluta Akureyrar. Almarr: „Spilaði langmest bara í næstefstu deild en hefði auðveldlega getað verið markmaður í efstu deild allan þann tíma. Besti markmaður einn á einn sem ég hef séð hér á landi og einn mesti vítabaninn.“ Valur, Valur, Valur. Willum, Willum, Willum Jóhann Skúli vildi votta hafsentum í Val sérstaka virðingu. „Dean Holden fyrrum þjálfari Bristol City og Stoke var trylltur hafsent fyrir Val, það var líka Thomas Guldborg Christiansen, sem ég vil meina að hafi hafið þetta Óla Jó-era. Barry Smith algjörlega geggjaður gaur og leikmaður líka.“ Willum Þór Þórsson talaði líka vel um Barry Smith og segir hann einn besta miðvörð sem hefur leikið hér á landi. „Lykilleikmaður í Íslandsmeistaraliði Vals 2007. Leiðtogi á velli, tapaði sjaldan eða aldrei návígi og gerði aðra leikmenn í kringum sig betri. Einn besti miðvörður sem hefur leikið hér á landi.“ Júgóslavnesk gæði Það væri glæpur ef nöfn Zorans Daníels Ljubicic og Milans Stefáns Jankovic kæmu ekki við sögu. Þeir voru á nokkrum topp- og virðingarlistum hjá álitsgjöfunum. Jankó er Grindavíkur goðsögn og Zoran dúkkaði óvænt upp í neðri deildar liði HK. Báðir áttu þeir afar farsælan feril. Gefum Víði Sigurðssyni orðið um Zoran. „Þeir júgóslavnesku knattspyrnumenn sem komnir voru til Íslands árið 1992 voru steini lostnir þegar þeir fréttu að Zoran Ljubicic væri á leiðinni til 4. deildarliðs HK í Kópavogi, sem þá var nýstofnað og tók við af ÍK sem hafði leikið í 3. deildinni um árabil. Zoran, sem varð íslenskur ríkisborgari nokkrum árum síðar og tók upp millinafnið Daníel, hafði þá leikið frá 18 ára aldri með Sarajevo, einu af sterkustu liðum Júgóslavíu. Hann og landi hans Ejub Purisevic skutu HK upp um tvær deildir á tveimur árum og Zoran átti síðan farsælan feril í efstu deild með ÍBV, Grindavík og Keflavík. Hann lék 169 leiki í efstu deild hér á landi, var fyrirliði Keflvíkinga þegar þeir urðu bikarmeistarar árið 2004 og vann það fágæta afrek að eiga fimm stoðsendingar í kveðjuleik sínum með þeim í efstu deild sama haust, í 6-1 sigri gegn Fram. Zoran, sem var einstaklega leikinn og útsjónarsamur miðjumaður, átti síðan eftir að þjálfa Keflavíkurliðið en var áður spilandi þjálfari Völsungs í 1. deild.“ Arnar Gunnlaugsson um Jankovic: „Kom með seinni skipunum en gæða varnarmaður án og sérstaklega með bolta. Þakið hans var hátt þegar hann var yngri.“ Willum Þór Þórsson nefndi þá báða sérstaklega. Hér að neðan má sjá þá báða skora í 0-2 sigri Grindavíkur gegn Fram sumarið 1995. Hver er besti erlendi leikmaður í sögu fótbolta karla hér á landi? Álitsgjafar íþróttadeildar RÚV skera úr um hver þykir sá besti. Hafa þeir smekk fyrir Jens Martin Knudsen? En Gary Martin? Hversu ofarlega endar Pablo Punyed? Grindavík, Gabon og göturnar Gilles Mbang Ondo varð markakóngur með Grindavík árið 2010 er hann skoraði 14 mörk í 20 leikjum. Afar hraður, afar skemmtilegur og afar ógleymanlegur. Jói Skúli: „Virðingu á nafn Gilles Mbang Ondo. Geggjuð týpa“ Tómas Þór: „Göturnar munu aldrei gleyma.“ Þorkell Gunnar: „Gabonbúinn sem raðaði inn mörkunum fyrir Grindavík. Skrautlegur karakter sem var duglegur að stunda partý og sverma fyrir kvenfólki þegar hann var ekki að spila. Ætlaði sér greinilega langt, því ég man eftir því að hafa fengið send skilaboð frá honum hvort það var á Messenger eða bara í tölvupósti að óska eftir myndskeiði með mörkum frá sér og einhverjum töktum sem hann hefur ætla að senda á einhvern erlend félög.“ Prince Rajcomar Prince Rajcomar vakti mikla athygli hérlendis er hann lék með Breiðablik og KR. EInn álitsgjafi nefndi hann á nafn. Jói Skúli: „Ég ætlaði ekki að eltast við að nefna nöfn bara til að nefna þau, en Prince Rajcomar er nafn sem verður að koma fram í þessari umræðu.“ Erum við að gleyma Færeyingum? Gunnar Vatnhamar er fulltrúi Færeyinga á topp tíu listanum en það hafa fleiri litað íslenskt fótboltalíf. Símun Samuelsen Færeyingurinn Símun Samuelsen var afar leikinn með knöttinn. Lék alls fjögur tímabil með Keflavík, 2005 til 2007 og svo 2008 til 2009. Var ansi nærri því að tryggja Keflvíkingum titilinn 2007. Elvar Geir: „Sannkallaður skemmtikraftur sem litaði deildina vel á meðan hann spilaði hérna. Þurfum að finna fleiri svona gimsteina í Færeyjum.“ Jens Martin Knudsen Markvörður sem vakti afar mikla athygli hér á landi. Hann talaði skemmtilega íslensku í viðtölum og varði mark Leiftursmanna frá Ólafsfirði á gullaldarárum þeirra. Jens væri með 20 í „eccentricity“ í Football Manager tölvuleiknum. Var um tíma þekktur fyrir að leika með svokallaða smokkahúfu á hausnum. Jói Skúli: „Mig langaði alveg ótrúlega mikið að setja Jens Martin Knudsen á lista, sem bara einn af okkar litríkustu erlendu leikmönnum og fyrir að vera einn af mínum bestu vinum.“ Víðir Sigurðsson gaf Jens sérstakt útkall og fór yfir feril hans. „Jens Martin Knudsen er einn frægasti erlendi leikmaðurinn sem hefur leikið með íslensku félagsliði. Jens Martin komst á forsíður heimspressunnar árið 1990 þegar Færeyingar skelltu Austurríki í sínum fyrsta leik í undankeppni stórmóts og Jens skartaði hvítri ullarhúfu sem gerði hann nánast ódauðlegan, ásamt frábærri frammistöðu í leiknum. Jens kom til Ólafsfjarðar árið 1998 og tók í þrjú ár virkan þátt í ævintýri Leifturs sem þá lék í efstu deild um sex ára skeið og spilaði nokkrum sinnum í Evrópukeppni fyrir Íslands hönd. Jens lék m.a. sjö Evrópuleiki með Leiftri á þessum þremur árum, átti t.d. stórleik gegn belgíska stórliðinu Anderlecht í UEFA-bikarnum og ekki síður þegar Leiftur lék sinn fyrsta og eina bikarúrslitaleik, árið 1998, en mátti sætta sig við tap gegn ÍBV á Laugardalsvellinum. Jens setti sinn svip á lið Leifturs og úrvalsdeildina á þessum þremur árum, enda líflegur karakter og góður markvörður sem varði mark færeyska landsliðsins um átján ára skeið, frá og með fyrsta opinbera landsleik Færeyja sem var einmitt gegn Íslandi á Akranesvelli árið 1988.“ Uni Arge? Já, takk Fyrst við erum að tala um Færeyinga þá var Stefán Pálsson með Uni Arge á lista. Marksækinn framherji sem var oftar en ekki fastari fyrir en varnarmennirnir sem hann mætti. Lék með Leiftri og ÍA. „Teljast Færeyingar vera alvöru útlendingar á svona lista? Eru þeir kannski ekki bara svona 50% útlendingar? Flottur ferill hér heima og stórkostleg ferilsskrá eftir árunum í boltanum lauk. Okkar maður hefur skrifað haug af bókum, sent frá sér hljómplötur og leikstýrt kvikmyndum. Nema hvað?“ Hér að neðan má sjá myndskeið frá 2-4 sigri Leifturs gegn Valsmönnum á Hlíðarenda sumarið 1999. Rætt er við Inga Björn Albertsson og Jens Martin Knudsen fyrir leik. Athugið að spólan hættir um miðjan leik. Hver er besti erlendi leikmaður í sögu fótbolta karla hér á landi? Álitsgjafar íþróttadeildar RÚV skera úr um hver þykir sá besti. Hafa þeir smekk fyrir Jens Martin Knudsen? En Gary Martin? Hversu ofarlega endar Pablo Punyed? Vinkillinn er greinaflokkur þar sem leitast er við að segja áhugaverðar íþróttasögur frá ýmsum sjónarhornum.