Rússlandsher gerði árásir víða um Úkraínu í nótt. Úkraínski fjölmiðillinn Kyiv Independent hefur eftir yfirvöldum að 17, hið minnsta, hafi verið drepnir. 100 eru særðir. Þá er sex manns saknað. Utanríkisráðherra Úkraínu, Andriy Sybiya, sagði í færslu á samfélagsmiðlum í morgun að árásirnar í nótt sýni að Vladimír Pútín Rússlandsforseti hafi ekki fleiri hernaðarlega valkosti í allsherjarinnrás sinni. Hann sagði Pútín vera stríðsglæpamann sem ætti engin spil eftir á hendi nema að valda skelfingu. „Rússar eru að tapa á vígvellinum og eldflaugar fá því ekki breytt,“ sagði hann. Rússlandsher beindi árásunum á borgir víðs vegar um Úkraínu. Hörðustu árásirnar gerði herinn á Kyiv og Dnipro. Úkraínuher segir að Rússar hafi varpað yfir 600 árásardrónum og tugum eldflauga á landið í nótt, þar á meðal flaugum sem erfitt er að stöðva með loftvarnakerfi. Rússlandsher gerði harðar árásir á Úkraínu í nótt. Kyiv Independent hefur eftir yfirvöldum að herinn hafi drepið 17 manns, hið minnsta, og sært 100 manns. Utanríkisráðherra Úkraínu segir árásirnar sýna að Rússar eigi engin spil eftir á hendi. Volodymyr Zelensky varaði við því í gær að samkvæmt leyniþjónustuupplýsingum væru stórfelldar árásir yfirvofandi. Þá hótuðu stjórnvöld í Rússlandi því í síðustu viku að gera kerfisbundnar árásir. Það var eftir að þau sökuðu Úkraínuher um árás á heimavist á herteknu svæði í austurhluta Úkraínu. Stjórnvöld í Úkraínu segja árásina hafa beinst að hernaðarlegu skotmarki. Björgunarsveitir í Úkraínu hafa staðið í ströngu í morgun og leitað að fólki í rústum þeirra bygginga sem Rússlandsher varpaði sprengjum á í nótt.
This article describes a kinetic military attack, not a software vulnerability, and therefore contains none of the requested technical details such as attack vectors, CVSS scores, or version information. It reports on a large-scale Russian missile and drone assault across Ukraine, resulting in significant civilian casualties and infrastructure damage, which Ukrainian officials characterize as an act of terror stemming from a lack of conventional military options.