Innlent | Morgunblaðið | 2.6.2026 | 13:45 Langur hali útistandandi fyrir þinglok Af stjórnarmálum í þinginu eru 45 frumvörp enn óafgreidd í þingsal, mislangt á veg komin, og átta þingsályktunartillögur. mbl.is/Hákon Andrea Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Alþingi Ógnar íslensku atvinnulífi Telja frumvörp vanbúin og geta haft áhrif á lýðheilsu Sjálfstæðisflokkurinn ekki stærri í rúm þrjú ár Jafnlaunavottun lögð niður Getum ekki verið með bundið fyrir bæði augu » Fleiri tengdar fréttir Mörg mál bíða afgreiðslu í þingsal nú þegar rúm vika er til áætlaðra þingloka. Samkvæmt starfsáætlun Alþingis er ráðgert að þingfrestun verði á föstudaginn í næstu viku, 12. júní. Af stjórnarmálum í þinginu eru 45 frumvörp enn óafgreidd í þingsal, mislangt á veg komin, og átta þingsályktunartillögur. Alls bíður 41 frumvarp fyrstu umræðu af þremur en þar af bíða tvö stjórnarfrumvörp. 54 frumvörp eru óafgreidd úr nefnd eftir fyrstu umræðu, þar af 33 stjórnarfrumvörp. Þá hafa 10 frumvörp verið afgreidd úr nefnd og bíða annarrar umræðu, þar af níu stjórnarfrumvörp. Loks bíður eitt frumvarp þriðju umræðu, það er stjórnarfrumvarp. Alls hafa 78 frumvörp verið samþykkt á þessu þingi, það er þá frá þingsetningu sl. haust, og eru 73 þeirra stjórnarfrumvörp. Alls bíða 33 þingsályktunartillögur fyrri umræðu af tveimur eða einnar umræðu, í þeim tilfellum sem það á við, en engin þeirra er stjórnartillaga. 39 tillögur eru óafgreiddar úr nefnd, þar af sjö stjórnartillögur. Þrjár tillögur bíða seinni umræðu, þar af ein stjórnartillaga. Þreifingar hafnar Að þingfundi dagsins í dag meðtöldum eru sjö þingfundir eftir til þingfrestunar, samkvæmt starfsáætlun þingsins. Ljóst er að þingheimi vinnst ekki tími til að afgreiða öll útafstandandi mál á svo skömmum tíma og því verður fróðlegt að sjá hvaða mál verða sett á oddinn. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins eru þreifingar um samkomulag þingflokka þegar hafnar, en þær eru skammt á veg komnar. Athygli vakti hversu fá mál kláruðust á haustþingi miðað við það sem áætlað var í þingmálaskrá og engar góðar skýringar fengust á því hversu miklar tafir voru á því að mál skiluðu sér úr ríkisstjórn til þingsins. Lengi vel voru aðeins þingmannamál tekin fyrir. Þetta leiddi til þess að þegar vetrarþing hófst eftir áramót var halinn þegar orðinn langur. Ekki bætti úr skák að þingsályktunartillaga um ESB-þjóðaratkvæðagreiðslu bættist skyndilega við verkefni þingsins, en tillagan var ekki á þingmálaskrá og var fyrirséð að hún tæki nokkurt pláss þó að í reynd hafi afgreiðsla hennar verið hraðari en menn væntu. Þá var gert tveggja vikna hlé á þingfundum og einnar viku hlé á nefndarfundum vegna sveitarstjórnarkosninga á vorþingi. Umdeild samgönguáætlun Nokkur stór stjórnarmál standa enn út af, þar á meðal þingsályktunartillaga innviðaráðherra að samgönguáætlun, sem er enn í nefnd. Ef ekki kemur til stórkostlegrar málamiðlunar í meðförum nefndar á áætluninni er ólíklegt að tillagan nái fram að ganga. Ekki er aðeins ósætti milli stjórnar og stjórnarandstöðu um málið, það er einnig umdeilt meðal stjórnarliða. Stóri ásteytingarsteinninn er forgangsröðun jarðganga, sem var gjörbylt frá síðustu samþykktu samgönguáætlun. Í fyrri áætlun voru Fjarðarheiðargöng, sem eiga að liggja á milli Egilsstaða og Seyðisfjarðar, efst á forgangslista og á grundvelli þeirrar forgangsröðunar voru sveitarfélög sameinuð. Í þeirri tillögu sem nú er í þinglegri meðferð eru göngin ekki lengur á blaði, þrátt fyrir að vera einu fullhönnuðu jarðgöngin, tilbúin til útboðs og framkvæmda. Ef fram fer sem horfir verða göngin ekki að veruleika í fyrirsjáanlegri framtíð. Þessi ákvörðun innviðaráðherra stendur í mörgum og má búast við því að seinni umræða um tillöguna verði tímafrek. Sum mál umdeild – önnur ekki Bókun 35 við EES-samninginn er annað umdeilt mál, sem ólíklegt er að nái fram að ganga á yfirstandandi þingi. Merkilegt nokk, þá hefur bókun 35 mælst óvinsælli meðal þjóðarinnar en innganga landsins í Evrópusambandið. Þingmeirihluti virðist vera fyrir afgreiðslu málsins, en af undangenginni umræðu að dæma eru þingmenn og ráðherrar Flokks fólksins tilbúnir til þess að hleypa málinu í gegn þrátt fyrir að flokkurinn sé í grunninn ósammála því, eins og fór með áðurnefnda þjóðaratkvæðagreiðslu. Lagareldismálið hefur þótt nokkuð erfitt úrlausnar um langa hríð. Málið er enn í nefnd eftir fyrstu umræðu svo líkur hníga ekki að því að málið verði klárað á yfirstandandi þingi. Seinni umræða um fjármálaáætlun er eftir og þótt hún sé sannarlega umdeild þá er fyrirséð að hún verði samþykkt. Fjárlög, sem byggjast á áætluninni, verða fyrsta mál á dagskrá næsta þings. Annarri umræðu um frumvarp dómsmálaráðherra vegna brottfararstöðvar lauk í gær, en atkvæðagreiðslu var frestað. Engin merkjanleg andstaða er við frumvarpið í þinginu svo málið er meðal þeirra sem líklegt er að ljúki fyrir þingfrestun. Á meðal annarra ókláraðra stjórnarmála sem athygli hafa vakið eru innviðafélag, búvörulög, stytting tímabils atvinnuleysisbóta, aðgerðaáætlun vegna offitu og gjaldtökuheimildir opinberra háskóla vegna nemenda með erlent ríkisfang. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Alþingi Ógnar íslensku atvinnulífi Telja frumvörp vanbúin og geta haft áhrif á lýðheilsu Sjálfstæðisflokkurinn ekki stærri í rúm þrjú ár Jafnlaunavottun lögð niður Getum ekki verið með bundið fyrir bæði augu » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Jimmy Kimmel íhugar að hætta Langur hali útistandandi fyrir þinglok Drög að nýjum hjúskaparlögum birt í samráðsgátt Þarf aðgerð og verður lengi frá Nýjar loftmyndir sýna Ölfusárbrú taka á sig mynd Umræðan Af hverju er ESB svona vinsælt? Staðreyndir um stöðuna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Nýr langtímasamningur við Ljósið í höfn Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Rúmlega 1.100 skjálftar: Dregið hefur úr virkninni Beint: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Margrét Jónsdóttir Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Mennirnir ekki tengdir fjölskylduböndum „Reta er bara Ozempic á sterum“ Segir lyfin geta dregið fólk til dauða Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Tveir skólar sameinast í haust Markaðsvirði Oculis hrynur Skýrt umboð til breytinga Margt á huldu um kjör flugmanna Icelandair Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Braut gegn stúlku sem lá á bráðamóttöku Mótmælendur öskruðu og blístruðu á þingheim Flugi Icelandair aflýst vegna mönnunarvanda Jafnlaunavottun lögð niður Kort: Hrinan á svæði þar sem líkur eru á gosupptökum „Ætlaði aldrei að eignast nýja vini“ Útskýring fengin á lágfluginu Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Nýjast á mbl.is » Jimmy Kimmel íhugar að hætta Langur hali útistandandi fyrir þinglok Drög að nýjum hjúskaparlögum birt í samráðsgátt Þarf aðgerð og verður lengi frá Nýjar loftmyndir sýna Ölfusárbrú taka á sig mynd Umræðan Af hverju er ESB svona vinsælt? Staðreyndir um stöðuna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Rúmlega 1.100 skjálftar: Dregið hefur úr virkninni Fyrsti fundur nýrrar borgarstjórnar Endurskoða Suðurlandsbraut strax Innbrot í Reykjabú: „Ekki dýravelferð að haga sér svona“ Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Margrét Jónsdóttir Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Mennirnir ekki tengdir fjölskylduböndum „Reta er bara Ozempic á sterum“ Segir lyfin geta dregið fólk til dauða Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Tveir skólar sameinast í haust Markaðsvirði Oculis hrynur Skýrt umboð til breytinga Margt á huldu um kjör flugmanna Icelandair Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Braut gegn stúlku sem lá á bráðamóttöku Mótmælendur öskruðu og blístruðu á þingheim Flugi Icelandair aflýst vegna mönnunarvanda Jafnlaunavottun lögð niður Kort: Hrinan á svæði þar sem líkur eru á gosupptökum „Ætlaði aldrei að eignast nýja vini“ Útskýring fengin á lágfluginu Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað