Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Beint: Ráð­stefna um krónu, evru og framtíð gjald­miðlamála

Read Full Article →

Ráð­stefna um framtíð gjald­miðlamála á Ís­landi fer fram í Silfur­bergi í Hörpu í dag frá klukkan 14 til 17. Daði Már Kristó­fers­son fjár­mála- og efna­hags­ráðherra efnir til ráð­stefnunnar í til­efni af út­gáfu s kýrslu um val­kosti Ís­lands í gjald­miðlamálum . Skýrslan var unnin af hópi er­lendra sér­fræðinga og er henni ætlað að leggja grunn að upp­lýstri um­ræðu um framtíðar­fyrir­komu­lag gjald­miðlamála á Ís­landi. Daði Már flytur opnunará­varp. Cat­herine L. Mann, einn höfunda skýrslunnar og fyrr­verandi aðal­hag­fræðingur OECD, kynnir niður­stöður sér­fræðinga­hópsins. Þá flytja Boris Vujcic, vara­banka­stjóri Seðla­banka Evrópu, og Ás­geir Jóns­son seðla­banka­stjóri erindi. Að erindum loknum fara fram pall­borðs­um­ræður um krónuna, evruna og framtíð gjald­miðlamála á Ís­landi. Þar taka þátt Daði Már, Cat­herine L. Mann, Þórarinn G. Péturs­son vara­seðla­banka­stjóri og Sigríður Bene­dikts­dóttir, lektor við Columbia-háskóla. Síðara pall­borðið fjallar um vinnu­markað og sam­keppnis­hæfni í breyttu gjald­miðla­um­hverfi. Þar taka þátt Sigurður Hannes­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­taka iðnaðarins, Finn­björn A. Her­manns­son, for­seti Alþýðu­sam­bands Ís­lands, Gylfi Zoega, pró­fessor við hag­fræði­deild Háskóla Ís­lands, og Una Jóns­dóttir, for­stöðumaður hag­fræði­deildar Lands­bankans.

Share this article