Heimsmeistaramót karla í fótbolta hefst 11. júní og lýkur með úrslitaleik í New York 9. júlí. Ef marka má spár veðbanka munu Spánn og England mætast í honum. Frakkland þykir reyndar líklegra til að vinna mótið en England en úrslitakeppnin raðast þannig upp að Spánn og Frakkland geta ekki mæst í úrslitum ef þau vinna bæði sína riðla. Þá myndu þau mætast í undanúrslitum, kæmust þau bæði svo langt. Spánverjar, sem urðu Evrópumeistarar fyrir tveimur árum, þykja ögn líklegri til að vinna mótið en Frakkar samkvæmt mörgum veðbönkum en flestir setja sama stuðul á þessi lið. Englendingar eru skammt undan og svo er smá stökk í næstu þjóðir; Brasilíu, ríkjandi heimsmeistara Argentínu og Portúgal. Þjóðverjar eiga möguleika þótt minni sé og Hollendingar svo sem líka, og eru þannig efsta liðið á listanum sem aldrei hefur orðið heimsmeistari (Holland hefur þrisvar fengið silfrið). Athygli vekur að Noregur er samkvæmt þessu níunda líklegasta liðið til að verða heimsmeistari en liðið hefur aldrei komist lengra en í 16-liða úrslit og er á sínu fyrsta heimsmeistaramóti síðan 1998. Af þeim þjóðum sem hafa orðið heimsmeistarar er Úrúgvæ neðst á listanum og þykir ekkert sérstaklega líklegt til afreka. Þar eru Ítalir, sem fjórum sinnum hafa hampað titlinum, ekki taldir með enda komust þeir ekki á mótið. Heldur Kane áfram að skora? Englendingurinn Harry Kane kemur sjóðheitur inn í mótið, hann skoraði 58 mörk fyrir Bayern München í öllum keppnum á nýafstöðnu tímabili. Hann þykir líklegur í að hreppa gullboltann sem besti maður mótsins en er með mjög svipaða stuðla og Spánverjinn Lamine Yamal sem hefur þó verið að glíma við meiðsli. Samherji Kane hjá Bayern, Frakkinn Michael Olise, á líka góðan möguleika á verðlaununum sem og landi hans Kylian Mbappe. Veðbankar þora heldur ekki öðru en að setja lágan stuðul á Lionel Messi sem hreppti þessi verðlaun fyrir fjórum árum. Þrátt fyrir markaskorun Harry Kane undanfarna mánuði er Mbappe talinn líklegri til að enda markahæstur, þó munurinn á stuðlum þeirra sé ekki mikill. Spánverjinn Mikel Oyarzabal er næstur á lista, svipað sennilegur og hinn norski Erling Haaland. Aftur vilja veðbankar ekki afskrifa Lionel Messi. Hart barist um gullhanskann Besti markvörður mótsins fær gullhanskann í verðlaun. Veðbankarnir virðast eiga erfiðara með að spá í þau verðlaun en líklegastir eru; Emiliano Martinez (Argentína), Unai Simon (Spánn), Allison Becker (Brasilía), Mike Maignan (Frakkland), Jordan Pickford (England), David Raya (Spánn) og Ederson (Brasilía). Martinez fékk verðlaunin á síðasta móti en það má teljast undarlegt að á meðal efstu manna séu tveir spænskir markmenn og tveir brasilískir. Það verður að teljast sennilegra að Unai Simon verði í byrjunarliði Spánar og Allison Becker hjá Brasilíu. Þá er besti ungi leikmaðurinn einnig kjörinn og þar kemur ekki á óvart að hinn 18 ára Lamine Yamal þyki líklegastur. Hann hlaut sambærileg verðlaun á Evrópumótinu fyrir tveimur árum. Frakkinn Désiré Doué, sem verður 21 árs á morgun, kemur einnig sterklega til greina sem og landi hans, hinn tvítugi Warren Zaïre-Emery. Allir 104 leikir heimsmeistaramótsins í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó verða sýndir beint á RÚV og RÚV 2. Allt um mótið má finna á sérstakri HM-síðu okkar .