Innlent | mbl | 2.6.2026 | 16:05 Meiri svartsýni í fréttum en raunveruleikinn sýnir Monika Hjálmtýsdóttir, formaður Félags fasteignasala, á fundi HMS í morgun. mbl.is/Hulda Freyr Bjarnason [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Aukin hætta á meiri verðbólgu Getum ekki verið með bundið fyrir bæði augu Tekur undir orð Bjarna Líkur á að kjarasamningar bresti Skuldahengja yfir ríkjum heims » Fleiri tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn Fasteignamat íbúða hækkar um 1,2% Góð birtuskilyrði lykilþáttur Leggja línurnar um lágmarksbirtu í nýbyggingum Niðurrif og uppbygging í Vogabyggð Lét teikna hagkvæmari íbúðir » Fleiri tengdar fréttir Niðurstaða fasteignamats HMS fyrir árið 2027 kemur ekki á óvart vegna þess að fasteignaverð hefur staðið í stað og lækkað að raunvirði. Þetta segir Monika Hjálmtýsdóttir, formaður Félags fasteignasala, sem ræddi við blaðamann að loknum kynningarfundi HMS á fasteignamatinu en þar flutti hún erindi. Frétt af mbl.is Fasteignamat íbúða hækkar um 1,2% Á fundinum kom fram að fasteignamat íbúða hækkar um 1,2 prósent á milli ára. Hækkunin er mun minni en á sama tíma í fyrra þegar meðalfasteignamatið hækkaði um 10,2%. „Þetta er bara í takti við raunveruleikann,” segir Monika og bætir við: „Svo er bara spurningin, hvernig verða aðstæður á fasteignamarkaði á næsta ári? Það er eitthvað sem við vitum ekki núna.” Til marks um kólnandi markað Jónas Atli Gunnarsson, yfirhagfræðingur hjá HMS, greindi frá því á fundinum að niðurstöður fasteignamatsins væru nokkuð skýrar og til marks um kólnandi markað vegna þess að verð á fasteignum hefði hækkað minna á síðustu misserum og það myndi hækka minna í framtíðinni. Þetta hefði áhrif á fasteignagjöldin. Jónas Atli Gunnarsson á fundinum í morgun. mbl.is/Hulda Betri virkni en kemur fram í fréttum Spurð út í þessa kólnun segir Monika að ákveðin kólnun hafi verið í gangi á fasteignamarkaði og ákveðin fækkun hafi orðið á kaupsamningum, þrátt fyrir þó ágætis virkni. Enn sé verið að selja 800 til 1.000 eignir í hverjum mánuði. Er kólnunin minni en einhverjir vilja meina? „Gögnin tala sínu máli og það er ágæt virkni, bæði á notaða markaðnum og að hluta til á nýbyggingamarkaðnum og það er kannski betri virkni heldur en fréttaflutningur bendir til. Það er meiri svartsýni í fréttaflutningi heldur en raunveruleikinn er að sýna,” svarar hún. Höfum verið í miklu verðbólguumhverfi Fram kom á kynningarfundinum að fasteignamat á höfuðborgarsvæðinu hefði hækkað um eitt prósent á milli ára, þar af um 0,5% í Reykjavík. Um töluverða breytingu er að ræða frá síðustu árum því í fyrra nam hækkunin á höfuðborgarsvæðinu 10 prósentum og árin 2023 og 2024 var hækkunin 23,6% og 13%. Frá fundinum í morgun. mbl.is/Hulda „Við erum náttúrulega búin að vera í miklu verðbólguumhverfi og fasteignaverð hefur ekkert haldið þeim takti. En krónutölulega séð þá er á höfuðborgarsvæðinu 0,5% hækkun. Það þýðir að fasteignaverð er að standa í stað og ekki að halda í við hækkun verðbólgu, í meðaltalsgögnum,” greinir Monika frá og nefnir einnig að skilyrði Seðlabankans um hámarksgreiðslubyrði á fasteignalánum hafi einnig áhrif og séu íþyngjandi fyrir fólk. Monika kveðst þó finna fyrir mikilli trú fólks á fasteignamarkaðnum, bæði á meðal fyrstu kaupenda og annarra. Þetta sé mikilvægur punktur og skýri kannski virknina sem er á fasteignamarkaðnum. Fundargestir í morgun. mbl.is/Hulda Akkeri markaðarins Í erindi sínu á fundi HMS sagði Monika fasteignamat vera akkeri markaðarins. Það veitti mikilvægar upplýsingar fyrir aðila fasteignamarkaðarins, þar á meðal fasteignasala. Fasteignamat næði þó ekki að endurspegla óvenjulegar og sérhæfðar eignir, miklar endurbætur, einstakar staðsetningar eða þegar mjög fáar sambærilegar eignir væru til staðar. Þetta væri sérstaklega algengt í dreifðari byggðum. „Þetta er viðmið af því að það byggir á raungögnum,” segir Monika, spurð nánar út í orð hennar um akkeri markaðarins. „Þess vegna treystum við á fasteignamat og aðilar markaðarins treysta á fasteignamat.” Hún tekur þó fram að fasteignamat sé enginn heilagur sannleikur, heldur eitthvað sem gott er að leita til. Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Aukin hætta á meiri verðbólgu Getum ekki verið með bundið fyrir bæði augu Tekur undir orð Bjarna Líkur á að kjarasamningar bresti Skuldahengja yfir ríkjum heims » Fleiri tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn Fasteignamat íbúða hækkar um 1,2% Góð birtuskilyrði lykilþáttur Leggja línurnar um lágmarksbirtu í nýbyggingum Niðurrif og uppbygging í Vogabyggð Lét teikna hagkvæmari íbúðir » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » ESB bætir við bannlistann „Krabbameinsgreindum er að fjölga“ Svo góðar að það skiptir litlu máli hvað fer fyrst ofan á Besti árangurinn í tæpan áratug „Þetta eru auðvitað kaflaskil í mínu lífi“ Umræðan Af hverju er ESB svona vinsælt? Krónan kostar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Umræðan verið „óvægin, ósanngjörn og röng“ Engin töfralausn til í gjaldmiðlamálum Frederiksen heldur áfram um stjórnartaumana Beint: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Margrét Jónsdóttir Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Mennirnir ekki tengdir fjölskylduböndum „Reta er bara Ozempic á sterum“ Segir lyfin geta dregið fólk til dauða Tveir skólar sameinast í haust Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Markaðsvirði Oculis hrynur „Skelfilega erfið mál“ Margt á huldu um kjör flugmanna Icelandair Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Braut gegn stúlku sem lá á bráðamóttöku Mótmælendur öskruðu og blístruðu á þingheim Flugi Icelandair aflýst vegna mönnunarvanda Jafnlaunavottun lögð niður Kort: Hrinan á svæði þar sem líkur eru á gosupptökum „Ætlaði aldrei að eignast nýja vini“ Útskýring fengin á lágfluginu Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Andlát: Margrét Jónsdóttir Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Nýjast á mbl.is » ESB bætir við bannlistann „Krabbameinsgreindum er að fjölga“ Svo góðar að það skiptir litlu máli hvað fer fyrst ofan á Besti árangurinn í tæpan áratug „Þetta eru auðvitað kaflaskil í mínu lífi“ Umræðan Af hverju er ESB svona vinsælt? Krónan kostar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Umræðan verið „óvægin, ósanngjörn og röng“ Engin töfralausn til í gjaldmiðlamálum Nýjar loftmyndir sýna Ölfusárbrú taka á sig mynd Meiri svartsýni í fréttum en raunveruleikinn sýnir Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Margrét Jónsdóttir Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Mennirnir ekki tengdir fjölskylduböndum „Reta er bara Ozempic á sterum“ Segir lyfin geta dregið fólk til dauða Tveir skólar sameinast í haust Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Markaðsvirði Oculis hrynur „Skelfilega erfið mál“ Margt á huldu um kjör flugmanna Icelandair Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Braut gegn stúlku sem lá á bráðamóttöku Mótmælendur öskruðu og blístruðu á þingheim Flugi Icelandair aflýst vegna mönnunarvanda Jafnlaunavottun lögð niður Kort: Hrinan á svæði þar sem líkur eru á gosupptökum „Ætlaði aldrei að eignast nýja vini“ Útskýring fengin á lágfluginu Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Andlát: Margrét Jónsdóttir Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug