Viðskipti | mbl | 2.6.2026 | 16:55 Ásgeir: Skrýtin nálgun í pappírnum Ásgeir á ráðstefnunni í dag. Á hægri hönd hans situr Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka Iðnaðarins. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB ESB bætir við bannlistann Stefna að upptöku evru Beint: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Engin töfralausn til í gjaldmiðlamálum Getum ekki verið með bundið fyrir bæði augu » Fleiri tengdar fréttir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri gagnrýnir skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum. Á ráðstefnu í Hörpu um efni skýrslunnar segir Ásgeir mjög mikilvægt að staða Íslands sé metin á grundvelli þeirrar peningastefnu sem seðlabankinn framfylgi en ekki þeirrar peningastefnu sem átti þátt í að kalla yfir okkur hrunið. „Mér finnst vera kannski skrýtin nálgun í pappírnum að líta á peningastefnu bara sem gjaldmiðil eða bara gjaldeyrismarkaðinn, að taka hann sérstaklega út fyrir sviga. Gjaldeyrismarkaðurinn er bara einn hluti, einn armur peningastefnunnar og ekki sá armur sem þessi seðlabanki sem ég stýri vill leggja áherslu á.“ Frétt af mbl.is Stefna að upptöku evru Ekki sá armur sem bankinn vill leggja áherslu á Segist Ásgeir hafa óskað þess að skýrslan myndi leggja mat á það sem bankinn geri, vaxtastefnuna og hvernig stýritækjum sé beitt og þá stefnu sem bankinn hefur tekið upp eftir sameiningu við Fjármálaeftirlitið. „Þessi umræða snýst oft um háa vexti eins og þessir háu vextir séu sjálfsagður hluti af krónunni en það er í sjálfu sér ekki rétt.“ Ásgeir segir ekkert land hafa orðið fyrir jafnmiklum raunhagkerfisskellum og Ísland og segir hann seðlabankann hafa beitt peningastefnu á þau öll. Frétt af mbl.is Beint: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Ekki hægt að skipta um gjaldmiðil fyrir lægri vexti Í erindi sínu bendir Ásgeir á að umræðan um að hægt sé að skipta um gjaldmiðil og allir fái lægri vexti og geti orðið hamingjusamir virki ekki með þeim hætti. „Við getum ekki tekið upp evru nema þessi þjóð hafi þá fundið upp önnur stýritæki sem hún ætlar að beita á þessi vandamál sem við erum að beita með peningastefnunni. Það skiptir ekki máli hvort við ætlum að taka upp evru eða ekki, þetta eru sömu hlutir sem við þurfum að gera.“ Segir hann líklegt að upptaka evru myndi fela í sér gríðarleg verkefni fyrir bæði seðlabankann og stjórnvöld. Upptaka evru myndi hleypa upp fjármálamarkaðnum og eignaverð myndi hækka mikið. Frétt af mbl.is Engin töfralausn til í gjaldmiðlamálum Fyrsta ríka landið Þá segir Ásgeir að Ísland yrði fyrsta ríka landið sem gengi inn í evruna. Hann segir einnig algjörlega ómögulegt að ætla að taka upp evru nema með gagngerum stofnanabreytingum á vinnumarkaði og fleiri stöðum. Hann minnir á að með upptöku evru muni engir Evrópukarlar eða -konur taka við stjórninni á Íslandi. Hún verði áfram á ábyrgð Seðlabanka Íslands. „Mér finnst að umræðan eigi að snúast um hvernig evran er jákvæð en ekki að reyna að níða niður peningastefnuna hér. Það er verið að setja hlutina í rangt samhengi. Hins vegar er það náttúrulega þannig að evran hefur mjög jákvæð áhrif í för með sér. Hún myndi fela í sér meiri viðskipti, aukna samkeppni og það koma mjög jákvæð áhrif af samþættingu. Hún myndi auka seljanleika á markaði, væntanlega lækka áhættuálög og svo framvegis,“ segir Ásgeir. Seðlabankastjóri segir seðlabankann fagna umræðunni um peningastefnuna. „Við fögnum allri umræðu um peningastefnu, það er okkar áhugamál og starf þannig að það er alveg fengur í því að fá þessa skýrslu.“ Frétt af mbl.is Röng túlkun ráðherra Tengdar fréttir Ísland og ESB ESB bætir við bannlistann Stefna að upptöku evru Beint: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Engin töfralausn til í gjaldmiðlamálum Getum ekki verið með bundið fyrir bæði augu » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Elon Musk selur aðgang að geimnum Sigurður Már Jónsson Er Donald Trump að reka Ísland inn í ESB? Fleira áhugavert Ógnar íslensku atvinnulífi Fólk vill „burt með þetta rugl“ „Skjálftarnir malla áfram“ Nýr langtímasamningur við Ljósið í höfn Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Beint: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Aukin hætta á meiri verðbólgu Viðskipti með Oculis vekja grunsemdir 370 manns sagt upp í maí Áfram lækkar hlutabréfaverð Oculis Anthropic heldur fíleflt á hlutabréfamarkað Nærri milljarður í hagnað af rekstrinum Vinna úr CO2 frá stálrisa Brim kaupir Lýsi á lægra verði Helga hættir sem framkvæmdastjóri Bláa lónsins Viðskipti með Oculis vekja grunsemdir Brim kaupir Lýsi á lægra verði Eldrauð kauphöll í upphafi dags 370 manns sagt upp í maí Hjalti tekur við fyrirtækjaráðgjöf Arion Aukin hætta á meiri verðbólgu Nærri milljarður í hagnað af rekstrinum Sómi í nýjar hendur Hlutabréf Oculis féllu eftir að prófanir skiluðu ekki árangri Anthropic heldur fíleflt á hlutabréfamarkað Helga hættir sem framkvæmdastjóri Bláa lónsins Viðskipti með Oculis vekja grunsemdir Brim kaupir Lýsi á lægra verði Fjölda sagt upp hjá Rapyd: Nú rekið af gervigreind Bendir á fleiri leiðir en að hækka laun Vilja reisa nýtt hótel og leita að fjárfestum Sómi í nýjar hendur Eldrauð kauphöll í upphafi dags Hlutabréf Oculis féllu eftir að prófanir skiluðu ekki árangri Lykilstjórnendur kaupa meirihluta í Air Atlanta Pistlar » Sigurður Már Jónsson Elon Musk selur aðgang að geimnum Sigurður Már Jónsson Er Donald Trump að reka Ísland inn í ESB? Fleira áhugavert Meiri svartsýni í fréttum en raunveruleikinn sýnir Fjárfestingar geta fjölgað iðkendum Engin töfralausn til í gjaldmiðlamálum Frederiksen heldur áfram um stjórnartaumana Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Beint: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Aukin hætta á meiri verðbólgu Viðskipti með Oculis vekja grunsemdir 370 manns sagt upp í maí Áfram lækkar hlutabréfaverð Oculis Anthropic heldur fíleflt á hlutabréfamarkað Nærri milljarður í hagnað af rekstrinum Vinna úr CO2 frá stálrisa Brim kaupir Lýsi á lægra verði Helga hættir sem framkvæmdastjóri Bláa lónsins Viðskipti með Oculis vekja grunsemdir Brim kaupir Lýsi á lægra verði Eldrauð kauphöll í upphafi dags 370 manns sagt upp í maí Hjalti tekur við fyrirtækjaráðgjöf Arion Aukin hætta á meiri verðbólgu Nærri milljarður í hagnað af rekstrinum Sómi í nýjar hendur Hlutabréf Oculis féllu eftir að prófanir skiluðu ekki árangri Anthropic heldur fíleflt á hlutabréfamarkað Helga hættir sem framkvæmdastjóri Bláa lónsins Viðskipti með Oculis vekja grunsemdir Brim kaupir Lýsi á lægra verði Fjölda sagt upp hjá Rapyd: Nú rekið af gervigreind Bendir á fleiri leiðir en að hækka laun Vilja reisa nýtt hótel og leita að fjárfestum Sómi í nýjar hendur Eldrauð kauphöll í upphafi dags Hlutabréf Oculis féllu eftir að prófanir skiluðu ekki árangri Lykilstjórnendur kaupa meirihluta í Air Atlanta